Goðasteinn - 01.09.1967, Page 77

Goðasteinn - 01.09.1967, Page 77
stundarkorn, cf fólk vildi fá sér froðuspón. Froðan nefndist ýmist strokkfroða eða luntafroða. Ekki skal farið lengra út í þessa „sálma“, og er strokkþætti þar með lokið. Ath. Lýsing á verklagi við smjörgerð er að mestu miðuð við heimabyggð mína, Eyjafjöll. Rétt er að láta þess getið, að grein mín um bitafjalir í síðasta hefti Goðasteins á fyrst og fremst við Vestur- Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu og þá allra helzt svæð- ið milli Þjórsár og Mýrdalssands. Þar fullyrði ég, að hafi verið al- menn venja að hafa bitafjalir í skipum og julum langt fram eftir 19. öld. Öðru máli mun hafa gegnt um vorbáta Landeyinga, í hæsta lagi fjórróin för, enda hafði ég þá ekki í huga í grein minni. Nægar hcimildir hef ég um þessa venju til þess að vita, að hún tíðkaðist í Austur-Skaftafellssýslu, Vestmannaeyjum, Árnessýslu og Gull- bringusýslu en ekki nægar til þess að segja, að hún hafi verið al- menn, nema þá helzt í Vestmannaeyjum. Könnun í þessu efni er bagi að því, að varla veit neinn um upphafið. Ein setning í grein minni hefur brjálazt: Bls. 68, 5. lína a. o. „Framan á bitann“ o. s. frv. Rétt skal hún vera á þessa leið: Fram- an á skipið var oft fest lítið nafnspjald . . . en aftan á bitann var fest áletruð bitafjöl. Fyrir þessu geri ég væntanlega betri grein síðar, að því er varð- ar fyrrgreint heimasvæði mitt. Þ. T. Goðasteinn 75

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.