Goðasteinn - 01.09.1967, Page 89

Goðasteinn - 01.09.1967, Page 89
Björn Sigurbjarnarson: Guðmundur Ólafsson frá Fjalli Minningarorð i. Höfuð bar og herðar yfir hversdagsrjianna flokk í ranni. Guðm. Friðjónsson Guðmundur Ólafsson var fæddur 9. des. 1874 í Fjalli á Skeiðum. Faðir hans var Ólafur, f. 1830, b. Fjalli, d. þar 1878, Stefánsson prests , Reynisþingum og Sólheimaþingum, d. 1845, Stefánssonar pr. Stóra-Núpi, Þórsteinssonar pr. Krossi Stefánssonar. Kona Þór- steins pr. Krossi og móðir Stefáns á Núpi var Margrét Hjörleifs- dóttir pr. Valþjófsstöðum, skálds og gáfumanns, Þórðarsonar b. Starmýri, Þórvarðssonar. Kona Stefáns pr. Núpi og móðir Stefáns pr. Reynisþingum var Guðný Þórláksdóttir lögrm. Móum á Kjalar- nesi Gestssonar pr. Skrauthólum Árnasonar og Þórdísar Jónsdótt- ur lögrm. Esjubergi, Þórlákssonar lögrm. Sigurðssonar. Kona Stef- áns pr. Reynisþingum og móðir Ólafs b. Fjalli var Kristín, d. 1890, níræð, Ólafsdóttir pr. Sólheimaþingum Árnasonar pr. Holti Eyja- fjöllum, Sigurðsscnar, af Steingrímsætt og kh. Valgerðar, d. 1855, 87 ára, Þórðardóttur pr. Kálfholti Sveinssonar, Einarssonar úr Akur- cyjum. Kona Árna pr. í Holti var Kristín Jakobsdóttir stúdents við Búðir vestra, ins hamramma, Eiríkssonar. Var Kristín systir Jóns sýslum., föður Jóns Espólíns sýslum. og fræðimanns. Móð:r Guðmundar Ólafssonar var Margrét yngri, f. 1840 í Fjalli Goðasteinn 87

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.