Goðasteinn - 01.06.1985, Side 6

Goðasteinn - 01.06.1985, Side 6
en verið þreklítill og með bæklaðan fót. Þuríður minntist einnig á Sesselju móður Jóns, sagði að hún hefði verið svo slitviljug að hefði hún látið það eftir sér að láta sér renna í brjóst utan við varpann, er fólk tók sér miðdagshvíld um túnasláttinn, þá hefði hún haft mjaltahausinn sinn fyrir kodda svo öruggt væri að svefninn yrði ekki meira en rétt fuglsblundur. Bók sá ég í æsku sem bar það með sér að Jón Sigurðsson í Steinum hafði bundið hana. Bandið var komið á vonarvöl og úr spjöldunum dró ég gömul spil og brot úr handriti af rímum og riddarasögum frá aldamótunum 1700. Brotin setti ég saman í kver sem dr. Björn Karel Þórólfsson hafði síðar að láni og ég veit nú ekki hvar er niður komið. Ungur að árum blandaði ég svo geði við Jón í Steinum í ættar- tölubók hans í handritasafni Landsbókasafnsins (ÍB. 545, 8vo). Hún ber höfundi sínum, fátækum sveitapilti, fjærri ættbókum, merkilegt vitni um elju og brennandi áhuga á fræði og sögu. Bestu uppsprettur hennar eru fróðleiksfólkið sem Jón átti aðgang að, gáfuð og fróð móðir og þrír vitrir og fróðir bændur, Einar Sighvatsson hreppstjóri á Ysta-Skála, Jón Jónsson í Hamra- görðum undir Eyjafjöllum (1782—1868) og Páll Sigurðsson í Árkvörn (1808—1873). Saman við ættarrakningar blandast margvíslegur fróðleikur um fólkið sem frá er sagt. Jón í Steinum Jón í Steinum var fæddur þar 25. mars 1840, sonur Sigurðar Vigfússonar og Sesselju Jónsdóttur. Ættir þeirra verða ekki raktar hér en um þær má fræðast í ættbókum Jóns. í Steinum var eitt af fáum sveitaþorpum landsins á þessum tíma og kirkjustaður. Þarna bjuggu 8 bændur á 60 hundraða jörð, flestir við þröngan hag. Gott ósengi, silungsveiði í Holtsósi og sjávarafli héldu fólki við líf og bú. En fólkið átti auð sinn í fornri íslenskri menningu, í menningu gamalla bóka og sögnum, kvæðum og þulum, sem fluttust í frásögn frá einni kynslóð til annarrar. Fátækt og fróðleiksást einkenna framar öllu öðru ævi Jón í Steinum. Þáttaskil urðu í ævi hans 1853. Þá tók hann fótarmein 4 Goðasteinn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.