Goðasteinn - 01.06.1985, Page 19
skóla, og þá treysti ég drenglyndi Jóns lögf'ræðings Guðmunds-
sonar, því að eins og hann kemur fram sem ötull og einarður svo
muni hann reynast mér eindreginn mannvinur, ekki síst í orða
fulltingi.
Þér megið ekki misvirða við mig né hneykslast á því þó mín sterka
löngun reki mig máske nokkrum stigum oflangt fram yfir mát
kurteisinnar. Kannske einhverjir bíejarbúar yrðu mér eins
eðallyndir eins og þeir urðu fyrrum Andrési Hjaltalín (svo minnir
mig hann héti), sem Þjóðólfur gat um einu sinni.
Ég treysti svo Guði mínum að hann gefi það að væri samin
bænaskrá af ykkur nöfnum þessu viðvíkjandi, einkum gætuð þér
fengið fleiri fulltingismenn. — Doktór Pétur og Páll málfræðslu-
maðui fá einstakt gott orð af almenningi, altíð sama herra yfir-
dóinari Jón Pétursson — þá mundi hann svo mýkja hjörtu þeirra
að til nokkurs kæmi. En Guð mundi launa þá uppskeran kemur því
ég get ekki.
Fyrirgefðu mér allt þetta, kæri vinur, en umfram allt ritið mér
aptur miða í sumar einhvern tíma hvernig sem annað gengur.
Endast svo þessi miði með vinsemd og virðingu af yðar einlægum
vin.
Jón Sigurðsson.
Jón Árnason hefur skrifað á bréfið: „20/6 sendar Þjóðsögur II með áskrift en
ekki skrifað, 12/1 65 skrifað.”
„Bótin af altarisklæðum” sem um getur í bréfinu er af altarisklæði sem álfkona
átti að hafa gefið Hvalsneskirkju. Hún hefur borist að Varmahlíð undir Eyjafjöllum
með Ingveldi Jónsdóttur, ekkju séra Sæmundar Einarssonar á Útskálum (d. 1826).
Ingveldur varð seinni kona Sigurðar Jónssonar stúdents í Varmahlíð. Þessi bútur úr
altarisklæðinu var skráður inn í Forngripasafnið 22. júní 1865 og Jón Árnason
biskupsskrifari sagður gefandi. Sagan um altarisklæðið er prentuð í Þjóðsögunt
Jóns Árnasonar. „Það hefir verið úr gulu (?) skinni, saumað með gylltum vír og gulu
silki.” Um gripinn getur einnig í bréfi 4. febrúar 1865.
Steinum þann lta September, 1864
Kær heilsan. Alúðarfyllsta þakklæti fyrir allt gott, einkum fyrir
sendinguna með föður mínum mér allsóvænta. Þó ekki svo óvænta
sem margur mundi ætla því Reykvíkingar gáfu Jóni Árnasyni þann
Goðasteinn
17