Goðasteinn - 01.06.1985, Síða 20
vitnisburð að hann gæti ekki fagnað vinum sínum svo að munaði
frá öðrum þvi hann væri allra vinur. Ég hverf nú sem hraðast frá
þessu, kæri nafni, því ég ætlaði ekki að fara að rita yður hólsbréf,
„hverf heldur til eðlis míns” (eins og sagt var um tröllin að fornu
fari), það er sögulegur fróðleikur.
Ég hefi ætlað mér að safna miklu í sumar og næstkomandi vetri,
en hvort það verður nema sem komið er, efast ég um, því mig er
þegar farið að skorta pappír, því ég verð að ætla minni góðu móður
nokkuð, því hana langar til ég skrifi upp Sögu af Valdbrandi
svikara. Þar fyrir utan skrifa ég svo margt af ýmsu smádóti.
Tólf arkir sendi ég þér með Gísla litla í Holti sem viðauka til
þjóðsagna þeirra er þér en nú með höndum hafið að safna,
ýmislegur samtíningur og kann það vel að vera að sumt af því heyri
ekki safni yðar til. Til á ég handrit af Gyðingnum gangandi miklum
mun lengra en þó allt það sama sem prentað er í Þjóðsögunum. Veit
ég ekki hvort ég á að fara að rita það en ómögulegt er að semja þar
af viðbætir. Þess verð ég að biðja yður, kæri nafni, að leiðrétta og
lagfæra þar sem þörf þykir orðfæri eða ef í kynni vanta stöku orð
og staf, sem ég veit að vera muni, þar ég hefi ritað það mestallt um
sláttinn af mesta flýtir, opt með bitann uppí nrér. Kvæði hef ég
ýmisleg sem ég hefi ekki komist til að skrifa.
Yður þykir máske einkennilegt það ég hefi opt hnýtt aptan við
sögurnar það ég veit um æfi þeirra, enda eru langflestar eptir
móður minni sem ákaflega er uppá öll vísindi og eru þær sögur
fleirstar eptir ömmu hennar og fóstru Guðrúnu Gísladóttir. En eins
og merkilegar sögur eru þess verðar að geta þess hver þær hafa sagt,
svo sem er gjört af höfundi Ólafs sögu Tryggvasonar, svo eru þjóð-
sögurnar (víst sumar þeirra) verðar þess og þurfa þess heldur engu
síður við. Ég þorði ekki að geyma þetta lengur, því ég hélt ég mundi
ekki fá kostnaðarlausa ferð seinna.
Það heyri ég að þér hafið engar sögur um Paradísarhelli né
Snorraríki inni á Þórsmörk. Heyrt hefi ég sögu um hvorutveggja,
þó næsta óskilmerkilegar, enda er ég búinn að gleyma því sem ég
heyrði um Paradísarhellir, enda skrif'a ég ekkert um hann fyrr en ég
er búinn að skoða hann, sem ég hefi í áformi að gjöra á sunnu-
daginn um Ieið og ég fer með blöðin út að Holti.
18
Goðasteinn