Goðasteinn - 01.06.1985, Page 24
keyptar í fyrra og hittið fyrra nema Kristindómsbókin, hana fékk
ég í vor þegar ég fann hann næst eptir það ég kom að sunnan í vor.
Enn á ég eina bók allþykka sem ég veit ekki hvað heitir því framan
við hana vantar fremstu blöðin. Ekki vænt ég það sé: Um skyldu
mannsins við Guð? Hún er þessleiðis innihalds, í mörgum flokkum,
skiptum i hugleiðingar.
Fleira á ég nú ekki sem í þessa átt stefnir. Til er, að ég ætli
fáanlegt: 8. Sá Kristni eptir Gallert, þýðt af Þorvaldi skólakennara
Böðvarssyni, líka 9. Gíslapostilla (samt veit ég ekki með vissu hvort
hún fæst. Sama er að segja um 10. Reikningsbók Ólafs amtmanns.
11. Maturtabók Eggerts Ólafssonar (Þér verðið að forláta mér þó
ekki skrifi ég nákvæmara titil bóka þessara því þær eru mér fjærri).
12. Bók Doctors Jóhanns Arndt... Kaupmannahöfn 1732. 13.
Davíðs Saltari og Vasakver. Þessi 10—13 veit ég ekki hvort eru
fáanlegar. 15. Iðrunar Saltari og Huggunar Saltari eptir Síra
Þorgeir Markússon á Útskálum, Hólum 1775. Líka 17. Yðrunar
Spegill eptir Sigvarð Lykke... Hólum 1775, á ég sjálfur þó ég varla
tími að láta hann. 18. Fæðingar Sálmar Síra Gunnlögs S. Hólum
1775 (fyrsta útgáfa).
Fleira get ég nú ekki nefnt þessu sinni en bráðlátur væri ég að fá
að vita það með næstu póstgöngu, þá reyni ég hvað ég get.
Ráð geri ég fyrir yður þyki skrýtið uppátæki mitt í vetur, það ég
hefi verið að tína saman og safna ýmsum sjaldgæfum orðum,
íslenskum eða útlenskum svo sem fyrr meir gjörði Ólafur sekriteri
Olavíus, eru þau orðin ærið mörg.
Mér þækti það annars eiga heirna fyrir lærðu mönnunum ungum
sem lítið hafa að starfa að safna í þessa átt í eina orðabók og sýna
mönnum fram á hver orð einkum eru útlend, með því kynni þá
margur að sjá og læra okkar móðurmál rétt, því margir gjöra það
af stærilæti að sletta útlendum orðum fram í daglegt tal og opt —
að ég meina — í rangri merkingu. Vili þér sjálfur gjöra það, legg ég
fúslega til minn litla skerf, annars held ég því áfram við tækifæri
að safna þessu svona á blöð heima við sjálfum mér til gamans.
Eins er ég að safna saman Leikum og formála við þá sem tíðkast
hafa og tíðkast enda nokkuð enn, einkum meðal unglinga. Þessir
leikir flestallir eru að einhverju áhangandi fornaldar sagnastörfum,
22
Goðasteinn