Goðasteinn - 01.06.1985, Side 30

Goðasteinn - 01.06.1985, Side 30
betra heims nóttina þess 25. janúar næstliðins með hægu andláti úr svefni og var það mér ánægjusöm harmastund að vaka yfir henni og veita henni þá seinustu þjónustu er mér var unnt, harmastund að missa þá móður hverrar einasta mark og mið var að tendra í hjörtum okkar það ljós er til eilífs lífs leiðir, ánægja að sjá hana andast með allri þeirri róserni sem guðhræðslan hefir í för með sér, innganga svo í þann eilífa fögnuð. Seinasta orð hennar til okkar systkinanna var vorkunnsemi við okkur að vaka svo lengi yfir henni. Fann hún þá hvað æfistundunum leið, leit til okkar með rósömu, blíðu brosi, sofnaði svo og vaknaði ekki framar til þessa lífs eptir það ég var að enda við að lesa henni niðurlag af II. kapítula fyrra bréfs Páls postula til Korintumanna. Síðan hefi ég ekki komist að að skrifa, ekki heldur haft eirð á neinum hlut, með því ég sýktist líka og er enn rúmfastur, svo að ég get varla skrifað yður miða þennan. Bjóst því við að pósturinn mundi fara áður. Afbragðs vel tók sóknarpresturinn, síra Kjartan, umburðarbréfi yðar og hefir bæði starfað að sjálfur og fengið aðra til að rita lista yfir gamlar prentaðar bækur og viljað vanda hann að öllu eptir fyrirmælum yðar. Fátt ætla ég uppkomi afargamalt annað en Stóri katikismus Lúters með formálum síra Arngríms á Melstað, Iðrunar íþrótt, Sermon urn Helvíti frá 1693 með Appendix um íhugun eilífrar sælu. Þar af sést Spegill eilífs lífs er prentaður af herra Guðbrandi og útlagður 1607. Séð hefi ég ekki svo ómerkilegt handrit. Það eru Öndrur gömlu, fyrri parturinn, sem ég ætla fáanlegar séu því menntavinur á i hlut, Einar son Einars gamla Sighvatssonar á Skála. Flann hefir líka af sjálfsdáðum útvegað brýni sem fannst þar sem mælt er hof Þórs hafi verið á Þórsmörk og ekki látið það þó honum hafi verið boðið í það geip, annaðhvort sendir hann það með mér eður færir yður það sjálfur fari hann suður að sumri til Jónasar eins og ég hefi beðið hann um. Ég á ómögulegt við að gjöra þó mér dokist lítið fyrir yður í þessleiðis störfum eður Jónasi í hinum. Beri svo við að þér finnið Jón assisor Pétursson þá berið honum kæra kveðju mína og það ég hafi í hyggju að enda öll mín orð við hann um ættartölu sem við töluðum um í vor eð var, því mér þætti 28 Goðasteinn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.