Goðasteinn - 01.06.1985, Side 89

Goðasteinn - 01.06.1985, Side 89
son, að máli. Hann var rúmlega hálfsjötugur þriðju kynslóðar Islendingur og ættaður úr Norður-Þingeyjarsýslu. Helgi var hress og ræðinn í besta lagi. Kvaðst hann hafa neitað að selja ríkinu jörð sína og hefði í hyggju að sitja sem fastast á óðali sínu í Mikley á hverju sem gengi. íslensku talaði hann betur en margir heima og naut þess í ríkum mæli að spjalla við okkur á tungu forfeðranna. Þá dró hann ekki af sér í gestrisni og höfðingskap, því að veitingar bar hann fyrir okkur meira en hægt var að torga. Þar á meðal var harðfiskur, sem hann verkaði sjálfur og átti í miklu magni í hjalli sínum. Bragðaðist fiskurinn ágætlega og allan hafði hann veitt hann sjálfur í Winnipegvatni, en Helgi stundaði veiðar af kappi eins og flestir höfðu gert, meðan byggðin í Mikley var og hét. Þeir Guðmundur Albert og Þorleifur fræddu okkur um fjölmargt frá fyrri dögum í þessari sérstæðu sveit. Meðal annars kom fram hjá þeim nokkur sársauki yfir því, hvernig farið hefði verið með íbúana og þeir nánast flæmdir burt. Ýmsir þeirra vildu nú helst snúa aftur, en það virtist ekki auðvelt úr því sem komið var. Þó væri málinu haldið vakandi og ekki væri víst að öll sund væru lokuð. íslendingaborgin Gimli Einn daginn sem við dvöldumst vestra, fórum við í heimsókn að Gimli, sem er samfelldasta byggðin í Nýja-íslandi og eins konar höfuðborg. Við byrjuðum á því, að heimsækja fræðsluskrifstofu kaupstaðarins. Þar hittum við fyrir fræðslustjórann A1 Olson og gjaldkerann Don Björnson, sem báðir eru af íslenskum ættum eins og raunar flest af því fólki, sem þarna starfar. Vorum við upplýstir um flesta þætti skólamála í þessum byggðum, en að því loknu fórum við með þeim A1 og Don í Minjasafn Nýja-íslands, sem er í gömlu timburhúsi niður við vatnið og hafði þar fyrrum verið íshús og fiskverkun. í safni þessu er mikill sægur minja og muna frá fyrri árum og því auðvelt að átta sig á aðbúnaði og lifnaðarháttum landnemanna frá fyrstu tíð. Einnig var þar mikið af bókum, blöðum, sendibréfum, póstkortum, ljósmyndum og öðru fræðandi efni. Er auðséð á öllu að vel hefur verið staðið að söfnun og uppsetningu þessara gömlu muna. Goðasteinn 87
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.