Goðasteinn - 01.06.1985, Side 95
Þessi skilyrði voru:
1. Að þeir hefðu fullan borgararétt svo sem innfæddir íbúar í
Kanada.
2. Að þeir fengju hæfilega stórt landsvæði fyrir sig, sem
heppilegt væri fyrir nýlendu þeirra.
3. Að þeir fengju að halda öllum persónulegum réttindum sínum
svo sem tungu og þjóðerni fyrir sig og afkomendur sína um alla
framtíð.
Þessi skilyrði voru samþykkt og hófst svo mikil leit að hentugu
landi undir nýbyggð íslendinga. Eftir talsverða fyrirhöfn og
athuganir var ákveðið að þeir fengju land í óbyggðunum norður á
sléttunum vestan Winnipegvatns. Þar var ekkert fólk fyrir, nema
hvað slæðingur af Indíánum hafðist þar við.
Hófst nú brátt erfitt ferðalag á ný og þá ýmist með járnbrautar-
lestum eða skipum á vötnunum miklu og að síðustu með ferju niður
Rauðána um Winnipeg og út á Winnipegvatn. Koma þessara inn-
flytjenda vakti mikla eftirtekt í Winnipeg, sem í þá daga var lítill
kaupstaður með um eitt þúsund íbúa. Fólkið þyrptist niður að ánni
til að sjá íslendingana, sem það hélt vera lágvaxna, þrekna og með
svart, slétt og sítt hár eða sem næst eins og Eskimóar í útliti. Það
ætlaði því ekki að trúa eigin augum, er þessir Ijóshærðu og
bjartleitu, og hávöxnu landnemar birtust og sumir staðhæfðu að
þetta hlyti að vera einhver annar hópur en íslendingarnir. En hinn
22. október 1875 var stigið á land í Víðirnesi og þá hófst óðar mikil
barátta við að koma sér upp húsaskjóli og búa í haginn fyrir
veturinn, sem var á næsta leiti.
Á leiðinni höfðu þessir væntanlegu landnemar ákveðið að kalla
byggð sína Gimli, sem var staður friðar og velsældar í norrænni
goðafræði. En fyrsta veturinn þarna bjuggu menn sannarlega ekki
við neina velsæld og mörg fyrstu árin voru reglulegir þrenginga- og
reynsiutímar. Fólkið var ókunnugt veðurfari og staðháttum og
kunni lítt að bjarga sér. Það varð að þola kulda, hungur og skort af
öllu tagi. Einnig barst í byggðarlagið mannskæð bólusótt, sem
deyddi fjölda fólks. Þá þurfti að þola engisptettufaraldur, flóð og
margvíslega aðra óáran. Margir gáfust upp og leituðu fyrir sér á
öðrum slóðum, en samt sem áður hélt Gimlibyggðin velli sem og
Goðasteinn
93