Goðasteinn - 01.06.1985, Page 100
Betsyar, smíðaði grindverk í kring og gekk vel og snyrtilega frá öllu.
Var síðan vel hirt um þennan kirkjugarð áratugum saman, en um
síðir var hann aflagður og stofnaður nýr á öðrum stað. Féll þá gamli
garðurinn í óhirðu og þar á meðal leiði Betsyar með steininum
góða.
Árin liðu, byggðir íslendinga efldust og blómstruðu og land-
nemarnir sem og John Ramsey, vinur þeirra, öldruðust og dóu.
Nokkrum árum eftir að John féll frá kom ungur smiður frá íslandi,
Trausti Vigfússon að nafni, og settist þarna að í nýbyggðunum í
Manitoba. Hann keypti sér land nálægt Winnipegvatni og reisti þar
bæ sinn. Nokkru eftir að Trausti settist þarna að dreymdi hann
mjög skíran og einkennilegan draum. Honum fannst hann standa
úti fyrir húsi sínu. Þá kom til hans hávaxinn og þreklegur Indíáni,
er kynnti sig sem John Ramsey. Kvaðst hann vera vel kunnugur á
þessum slóðum, því að þarna hefði hann veitt í gamla daga bjóra,
refi, merði, bjarndýr, elgi og fleiri dýr, þar sem Trausti hefði nú reist
hús og ræktað akur. En hann spáði því, að þetta væri gott land,
þegar skógurinn hefði verið ruddur og mýrarnar ræstar fram.
En erindi sitt með því að birtast Trausta svona í draumi væri að
biðja hann að smíða og setja upp nýja rimlagirðingu umhverfis leiði
konu sinnar í gamla kirkjugarðinum í Sandvík. Hann mundi
þekkja það á marmaralegsteini, er á væri letrað gullnum stöfum
nafnið Betsy Ramsey. Trausti maldaði í móinn yfir þessari bón og
sagði eins og satt var, að hann væri fátækur landnemi og ætti fuilt
í fangi með að framfleyta fjölskyldu sinni. Einnig sagði hann að
efnið í slíka girðingu mundi kosta talsverða upphæð og nefndi líka
að i Nýja-íslandi væru margir smiðir og lagtækir menn sem hann
gæti fremur beðið um þetta en sig. John Ramsey svaraði því þá til
að þótt hann hefði þekkt suma þessara manna allvel, þá fengjust
þeir ekki einu sinni til að hlusta á sig, hvað þá vinna verkið. Hann
sagðist heldur ekki geta boðið neinum borgun vegna þess djúps,
sem staðfest væri milli þessara tveggja heima, það er lifenda og
dauðra. Hélt hann samt áfram að klifa á þessu þar til Trausti lét
undan bænum hans og lofaði að gera eins og hann bað.
Skömmu eftir þennan einkennilega draum byrjaði Trausti að saga
niður efni í rimla fyrir girðinguna. En hann hafði mikið að gera við
98
Goðasteinn