Úrval - 01.09.1976, Side 120
118
URVAL
þessum tímum dags þú ætlar að velja
og haltu svo fast við þá. (Auka-
biti er einn drykkur af einhverju
og ein tegund af fastri fæðu eins og
sneið af ristuðu brauði eða ávöxtur).
Stöðug neysla aukabita milli mál-
tíða er ein helsta örsök ofþyngdar.
Forðastu slíkt. Bragðaðu ekki á mat,
meðan þú ert að matreiða hann.
Slepptu jafnvel sykurlausum drykkj-
um nema sem fastákveðnum þætti
máltíða eða aukabita. Þeir hvetja þig
annars til þess að drekka vegna
bragðsins fremur en þorsta, og sam-
kvæmt reynslu okkar geta þeir gegnt
mikilvægu hlutverki til þess að
viðhalda rangri áthegðun.
Ef þú ert vön að fá þér áfengan
drykk á undan kvöldmat, skaltu
halda þvi áfram, en þú verður þá að
neyta hans við matborðið, hann
verður að vera einn þáttur máltíðar-
innar. Minnstu þess, að vínandi er
fæða og að þú verður að hafa
stjórn á neyslu hans sem annarrar
fæðu. Þegar þú ert í veislum, skaltu
neyta aðeins drykkjar og einnar
fæðutegundar, og er það þá kvöld-
aukabitinn þinn.
Næstum allir sjúklingar okkar láta
í ljósi furðu, þegar þeir eru beðnir
um að borða þrjár máltíðar og tvo
aukabita daglegai. ,,Ég er þegar orðin
ofþung,” stundi Marsha, húsmóðir
nokkur, sem var um 160 pund. ,,Ég
mun þenjast út eins og loftbelgur.”
En hún treysti okkur, og hún hætti
ekki fyrr en hún hafði grennst um
40 pund.
Þú skalt ekki gera neinar undan-
tekningar, og þú skalt ekki laga át-
venjur þínar eftir kröfum annars
fólks. Það ert þú sjálf, sem átt við
þetta vandamál að stríða. Skýrðu
fjölskyldu þinni frá þessu vandamáli
og láttu hana laga sig eftir þínum
átvenjum. Slepptu ekki hádegismat
úr. Þú skalt ekki fresta því að neyta
kvöldverðar, ef maki þinn kemur
ekki heim fyrr en seint. Haltu áfram
að færa nákvæmlega hjá þér hvað þú
borðar, hvenær, hvar og með hverj-
um og hversu vel þér hefur gengið
að halda þessu í röð og reglu. Þú
skalt ekki byrja á þriðja þrepi með-
höndlunarinnar, fyrr en þú hefur
sannað fyrir sjálfri þér, að þú getir
farið í einu og öllu eftir settum
reglum í sjö daga íröð.
3. KOMDU GÓÐU SKIPULAGI Á
INNKAUP ÞÍN OG GEYMSLU.
Nú þarftu að hafa stjórn á því,
hvaða fæðutegundir þú kaupir og
hvernig þú geymir þær. Kaupirðu
venjulega samkvæmt innkaupalista?
Ef svo er ekki, skaltu nú byrja á því.
Það getur verið, að þú verðir að hnika
innkaupunum svolítið til, þegar þú
ert komin í búðina, kaupa einhverja
tegund kjöts, sem er boðin á kosta-
kjörum eða kaupa aðra tegund af
osti. En gættu þess bara að bæta engu
á listann, heldur láta þetta koma í
stað einhvers annars á honum.
Ef þú hefur gleymt að skrifa eitthvað
á listann, skaltu bara neita þér um
það. Og þú skalt alltaf vera södd,