Mímir - 01.07.1987, Side 54
sköpunarmátt tungumálsins, skáldlega beitingu
þess og víxlverkan milli þess forms sem er á
heiminum og þess forms sem er á tungumál-
inu.
Alltént liggur það í augum uppi að þegar
Adam hafði endurskoðað þær kröfur sem
lungumálið gerir um Reglu og Samhljóman
fengu afkomendur hans það í hendurnar stór-
um ríkara að formi til.
Og því er það að þegar Kain og Abel hafa
uppgötvað aðrar og nýjar reglur, og það ein-
mitt eftir brautum tungumálsins, þá liggur auð-
vitað beinast við að myrða Adam. Þetta síðasta
atriði dregur okkur jafnvel enn lengra en áður
burt frá hefðbundinni ritskýringu og fleygir
okkur miðja vegu milli mýtunnar um Satúrnus
og mýtunnar hans Sigmunds. En það er regla í
öllu ruglinu því Adam kenndi mannkyninu að
til þess að koma nýrri skipan á lyklana þarf að
endurskrifa boðin.
Guðmundur Andri Thorsson þýddi.
Prentum af tölvudiskum á
leysi-prentara, minnkum,
stækkum, fjölritum, ljósritum,
röðum, heftum, brjótum, bindum,
límum, skerum, pökkum, sendum,
- brosum.
sími 22435
Háskólafjölritun
54