Mímir - 01.07.1987, Page 4

Mímir - 01.07.1987, Page 4
„Það sem vantar helst hjá okkur er. . . akademískt andrúmsloft“. — Hringborðsumræður um nám og kennslu í íslenskum fræðum við Háskóla íslands. Ritnefnd Mímis fékk í vor bá huemvnd að efna til hringborðsumræðna um íslenskunám, eðli bess og tilgang. Ritnefndin fór þess á leit við tvo nemendur úr íslenskudeildinni, bau Gunnar Þorstein Halldórsson og Soffíu Auði Birgisdóttur, að kalla saman nokkra kennara sína til spjalls og kaffidrykkju og urðu fyrir val- inu prófessorarnir Bjarni Guðnason og Höskuldur Þráinsson ásamt þeim Eiríki Rögnvaldssyni og Matthíasi Viðari Sæmunds- syni nýskipuðum lektorum. Fræðalið vort brást að vonum ljúfmannlega við, og hér á eftir fer árangur umræðnanna sem haldnar voru í turnherbergi Hótels Borgar í mars síðastliðn- um. Fyrsta spurningin sem fulltrúar Mímis lögðu fyrir lærifeður sína var hvert þeir teldu vera höfuðmarkmið íslenskunámsins. „Að öðlast pínulítinn skilning á lífinu . . .“ Bjarni: Það liggur nú ljóst fyrir að höfuð- markmið með íslenskunámi hefur alltaf verið talið tvenns konar, annars vegar starfsmenntun og hins vegar þroskamenntun, og ég held að þetta sé ekki umdeilanlegt. Hins vegar má segja að íslenskunámið hafi fengið aukið vægi á síð- ustu árum sökum ásóknar erlendra áhrifa. Og af því að ég er nokkur þjóðemissinni þá tel ég að það komi verulega í hlut þeirra sem leggja stund á íslensku og kynnast sögu þjóðarinnar, tungu og bókmenntum, að standa vörð um sjálfstæði þjóðarinnar. Á tímum fjölmiðlunar er ábyrgð þeirra sem leggja stund á íslensku meiri í sífelldri sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Þegar þú talar um starfsmenntun, gildir það þá jafnt fyrir fræðimennsku og kennslustörf? Bjarni: Já, með starfsmenntun á ég auðvitað við að nemendur útskrifist sem hæfir kennarar og með almenna starfsmenntun, þ.e.a.s. að hver einstaklingur þroskist persónulega við námið. Því það er líka höfuðmarkmið að menn öðlist nokkurn skilning á umhverfi sínu, pínu- lítinn skilning á lífinu — og þar hef ég í huga þroskamenntun. Er einhver munur þarna á B.A.-stigi og cand.mag.-stigi? Bjarni: Já, það er stigsmunur fyrst og fremst. Fyrra stigið á að veita almenna þekkingu í fræðigreininni. Nemendur eiga að temja sér al- menn fræðileg vinnubrögð og kunna að standa á eigin fótum í fræðigreininni. Cand.mag.- stigið er auðvitað framhald af B.A-stiginu og þar eiga menn að öðlast meiri dýpt, enn meiri kunnáttu í fræðilegum vinnubrögðum og vera vísindalega sjálfstæðir. Umfram allt eiga þeir að hafa öðlast meiri gagnrýni en áður. Hefur þú einhveiju við þetta að bæta, Matthías? Matthías: Einhver sagði við mig að markmið B.A.-námsins væri fyrst og fremst að kenna fólki að lesa, en cand.mag.-námsins að nýta þann lestur. En varðandi menningarlegt hlut- verk íslenskunnar, þá held ég að það sé mjög mikilvægt, því að í gegnum þókmenntirnar 4

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.