Mímir - 01.07.1987, Síða 43

Mímir - 01.07.1987, Síða 43
formi tjáningar og formi inntaks. Vinnulíkanið verður því að hafa þann búnað sem sýni hæfi- leika tungumálsins sjálfs til að mynda innri mótsagnir. Það verður líka að sýna hvernig estetísk notkun á tilteknu tungumáii er einhver hentugasta leiðin til að mynda þessar mótsagn- ir. Loks verður líkanið að sanna að allar mót- sagnir sem myndaðar eru með estetískri notkun tungumálsins á því plani þar sem form tjáningar er, bera jafnt í sér mótsagnir á formi inntaksins; endanlega leiða þær síðan til gjör- breyttrar skipunar á hugmyndum okkar um heiminn og sýn á hann. Við skulum ýta þessari tilraun úr vör með því að ímynda okkur ákveðnar frumaðstæður sem komast í kreppu: þetta er aldingarðurinn Eden og íbúarnir mæla á edenska tungu. Ég fæ líkan mitt að því tungumáli lánað úr Grammarama-athugun G. Millers (Psychology and Communication, New York 1967), nema Miller útbjó líkan sitt ekki sérstaklega fyrir edenskt tungumál. Hann var einungis að velta því fyrir sér hvernig einn málnotandi framleið- ir tilviljanakenndar runur eininga með tveimur grunntáknum (D og R) og fær við þeim stjórn- uð viðbrögð sem búin eru til í því skyni að skýra hvaða runur eru málfræðilega rétt mynd- aðar; síðan prófaði Miller hæfni málnotandans til að raða saman myndunarreglunum á þeim runum sem reyndust réttar. Líkani hans var raunar ætlað að vera athugun á tungumála- námi, en í minni tilraun hittum við fyrir þau Adam og Evu sem vita þegar hvaða runur eru réttar og beita þeim í samræðum sínum jafnvel þótt þau hafi aðeins óljóst hugboð um þær myndunarreglur sem að baki búa. Merkingareiningar og merkingarbærar runur í aldingarðinum Eden Þótt þau búi við allsnægtir hafa Adam og Eva fundið upp afar takmarkaðar runur af merkingareiningum sem valda því að tilfinn- ingaleg viðbrögð þeirra við jurta- og dýraríki skipa sér í röð þar sem eitt er tekið fram yfir annað, en á hinn bóginn beita þau þessum runum síður til að flokka hvert fyrirbæri sér- staklega eða gefa því nafn. Þessar merkingar- einingar má flokka í sex riðla: Já vs Nei Ætt vs Óætt (Þar sem ætt stendur fyrir „ætlað til áts“, „matvæli“, „mig langar í mat“, og svo framvegis.) Gott vs Vont (Þessi andyrðing spannar jafnt siðferðislega og líkamlega reynslu.) Fallegt vs Ljótt (Þessi andyrðing spannar öll stig yndis, skemmtunar, löng- unar.) Rautt vs Blátt (Þessi andyrðing nær yfir öll smástígustu blæbrigði reynsl- unnar af litaskalanum: jörðin er skynjuð rauð og himinninn blár, kjötið er rautt en steinar eru bláir, og svo framvegis.) Snákur vs Epli (Þetta er eina andyrðingin sem merkir hluti fremur en eigin- leika hluta eða viðbrögð við þeim. Við skulum átta okkur á því að á meðan allir aðrir hlut- ir eru innan seilingar, vaxa þessir tveir síðustu öðruvísi fram sökum síns framandi eðlis; við skulum bara játa það strax að lykillinn nær ekki utan um þessar tvær menning- areiningar fyrr en Guð hefur kveðið upp staðreyndadóm sinn um ósnertanleika eplisins. Því gerist það að þegar snákur- inn kemur í ljós hringaður um tréð þar sem eplið hangir, þá er dýrið með einhverjum hætti skráð sem mótsvörun við ávextinum og verður að sér- stakri menningareiningu á meðan öll önnur dýr eru skynjuð sem „æt“ eða „vond“ eða jafnvel „rauð“ án þess að þar komi til frekari sértekning frá heillegri skynjun á heimin- um.) 43
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.