Mímir - 01.07.1987, Qupperneq 78
Ritdómar
Lífið er eins og hafið
Fríða A. Sigurðardóttir:
Eins og hafið
Vaka-Helgafell 1986.
Skáldsagan Eins og hafið fjallar um afmark-
aða veröld sem nokkrar fjölskyldur og einstakl-
ingar tilheyra. Þessi veröld er gamla húsið sem
persónur sögunnar búa í. Húsið er í eigu
athafnamanns í þorpinu er húsið tilheyrir og
leigir hann nokkrum fjölskyldum og einstakl-
ingum. í risinu búa Petra og Beggi, gömul hjón
er vinna bæði í frystihúsinu og þar hefur Steini
smiður einnig herbergi. Á hæðinni búa Jón og
Þórunn ásamt yngstu dóttur sinni Kristínu. Og
þar býr einnig önnur dóttir þeirra, Svana, með
börnunum sínum þeim Gullýju og Pésa. í
kjallaranum býr Odda ásamt syni sínum Leifa
og uppfinningamaðurinn Kjartan. Þær persón-
ur sem lesendur kynnast best eru Beggi, Petra,
Pési, Steini, Kristín og Gullý því sagan er að
miklu leyti sögð til skiptis frá sjónarhóli
einhvers þeirra og úr hugskoti þeirra. Svana er
líka mikilvæg persóna. Hún er fyrirmynd
Kristínar og Gullýjar sem þær vilja þó ekki
líkjast. Sagan gerist á einu sumri en vísað er til
baka í tíma og einnig er sagt frá þorpinu eftir
því sem þörf er á til nánari skýringa og lýsinga
á lífi fólksins í húsinu.
Styrkur sögunnar liggur í trúverðugum
heimi, sérstaklega persónunum sem verða ljós-
lifandi fyrir lesendum og langanir þeirra, sorgir
og hamingja og einnig daglegt amstur fer að
skipta máli út fyrir heim sögunnar. Veröld
sögunnar er full mótsagna rétt eins og hið raun-
verulega líf manna er. En jafnframt er hún full
af hlýju og mannelsku; viðkvæmni og samúð
með persónum eins og Steina og Oddu sem
verða á einhvern hátt undir í lífinu, bjartsýni
og trausti á krakkana, sérstaklega Gullý.
Það sem skiptir máli og ræður ákvörðunum
manna í veröld sögunnar eru samskipti og
samlíf fólks, vinátta, ást og afbrýðisemi, tog-
streita, bæling og misskilningur en einnig
virðing og hluttekning. Aðalatriðið í lífi fólks-
ins í sögunni eru tengsl við aðra og tilfinningar
og af þeim þáttum ræðst einnig skipulag og
stjórnsýsla í samfélaginu sem sagan birtir. En
ekki eru það alltaf jákvæðar tilfinningar sem
ráða eins og til dæmis þegar íbúum gamla
hússins er sagt upp húsnæðinu. Uppsögnina
má rekja til reiði eiganda hússins í garð íbú-
anna og sú reiði fær útrás vegna sárinda hans er
tengdasonurinn nær ekki kjöri í alþingiskosn-
ingum.
I fyrsta kafla bókarinnar er dregin upp mynd
af sögu hússins eða öllu heldur sögum þess því
til eru margar útgáfur af sögunni allt eftir því
hver segir hana og hvenær og einnig hvaða
ástand ríkir á sögutímanum:
í vorrökkrinu breytir gamla húsið um svip, það
fær á sig annan blæ þetta hús sem dagurinn ger-
ir að hröri. .. (bls. 5).
Þannig hvískra þær gömlu konurnar. En
kannski er sagan ekki sönn. Hver veit? Það er
svo margt sem skolast til í djúpum brunni tím-
ans. Sumar segja hana að minnsta kosti öðru-
vísi. Allt öðruvísi. (bls. 7).
Sífellt er svo vikið að því hversu sannleikur
og saga eru afstæð; þau eru háð viðhorfum ein-
staklinga og skapi í það og það skiptið og
einnig tíma og umhverfi. En hvernig sem útgáf-
78