Mímir - 01.07.1987, Side 21
litaheiti af þessum toga fyrir sem ekki sjást hjá
körlunum þ.e. dökkgrátt og Ijósbleikt.
Ljósrautt kemur fyrir sem nafn á tveimur
litum: lit númer 10 (sjá viðauka), sem að
mínu mati er bleikur litur, og númer 21 (sjá
viðauka) sem er appelsínugulur eða -rauður
litur. Það bendir til þess að ekki séu öllum
körlum þessi litaheiti (bleikt og appelsínugult)
töm, og ég held að engin kona myndi taka sér
litarheitið Ijósrautt í munn. Þá vaknar sú
spurning hvort bleikt eigi heima með hinum
grunnlitunum. Ljósbrúnt hjá körlunum kem-
ur í staðinn fyrir beis og drapplitað hjá
konunum, og dökkrautt hjá körlunum verður
dimm- eða hárautt hjá konunum.
Dökkgrátt hjá konunum er grátt eða stein-
grátt hjá körlunum og þegar konur svara
Ijósbleikt eru málningarlitirnir beinhvítt og
beingult komnirtil sögunnar hjá körlunum.
Það er einnig athyglisvert að sjá þau svið
sem fólk leitar fanga á með litaheiti sem falia í
3. flokk. Konurnar notuðu litaheiti sem vís-
uðu til matar, en þau sem fram komu eru
þessi: sítrónugult, kirsuberjarautt, karrígult,
sinnepsgult, ferskjulitað, plómulitað. Karlarn-
ir hafa engin slík litaheiti, nema appelsinugult
og vínrautt, en það verða að teljast of gróin
litaheiti í málinu til þess að geta haft beina
skírskotun til ávaxtarins og vínsins.
Konur nefna húðlit og andlitslit en slík heiti
koma aldrei fyrir hjá körlunum. Þessi heiti
voru svör við Iit númer 17, en þar komu
karlarnir með beinhvítt og beingult eins og
áður gat.
Einn flokk litaheita fann ég sem karlar sitja
einir að, og voru það litaheiti sem vísuðu til
hægða. Hjá körlunum koma fyrir heitin
barnaskítsgult og smábarnakúkagult í lit
númer 13 (sjá viðkauka), en konur hafa ein-
mitt karrígulan og sinnepsgulan þar, en þau
heiti falla undir iitaheiti tengd mat, eins og
áður var minnst á. Lit númer 14 (sjá viðauka),
vill einn karlinn nefna kúkabrúnan, en þar
hafa konurnar brúnt, rauðbrúnt og leirrautt.
í könnun Birgittu Bragadóttur, sem um gat í
kafla 3.2, kom m.a. fram að karlar notuðu
frekar nöfn málningarlita en konur. í könnun
minni nefndu aðeins karlar litaheitin beinhvítt
og beingult, sem teljast málningarheiti, en ein
kona sagði að litur númer 1 væri út í okkur-
gult, sem telst líka vera málningarheiti. Þann
lit nefndu flestir karlarnir bara gulan, en einn
nefndi hann dökkgulan.
Ef litið er á afmörkuðustu litaheitin, eða
þau sem falla í 4. flokk, kemur í ljós að konur
not slík litaheiti tvisvar sinnum oftar en karl-
arnir í könnuninni. Konurnar svara 19 sinn-
um með orðum úr þessum flokki en karlarnir
9 sinnum. Það er einnig eftirtektarvert að öll
níu svörin hjá körlunum tengjast lilla eða
drapplituðu, en konurnar hafa talsvert meiri
fjölbreytni í þessum flokki þó flest heitin teng-
ist þessum litum hjá þeim einnig. Nokkrar
nota líka beis en það heiti kemur í stað drapp-
litaðs hjá körlunum og sumum kvennanna.
Meira mætti fjalla um niðurstöður þessarar
könnunar, þótt ófullkomin hafi verið, en hér
verður látið staðar numið að sinni.
4.4 Niðurstöður
Greinilegt er að um nokkurn mun er að
ræða á notkun Iitaheita hjá konum og körlum.
Konur virðast nota nákvæmari Iitaheiti en
karlar. Ef litið er á mun á notkun litaheita eft-
ir aldri kemur í ljós að hann er minni en á
milli kynja.
5. Kvennaorð?
5.1 Könnun á notkun lýsingarorða
Könnun mín á notkun lýsingarorða fór
þannig fram að ég hafði lista með 18 lýsingar-
orðum, flestum úr slangurorðabókinni eins og
áður sagði. Þátttakendur voru spurðir hvort
þeim væru orðin töm, eða hvort þeir notuðu
þau stundum eða aldrei. Spurt var til dæmis
þannig: „Mundir þú segja að eitthvað væri
huggulegtT''.
Eins og gefur auga leið er þetta mjög gallað
form. Þegar fólk er spurt svona, svarar það
kannski eins og það sjálft óskar að tala, frekar
en eins og það talar í raun og veru. Á þetta
21