Mímir - 01.06.1996, Side 5

Mímir - 01.06.1996, Side 5
Nokkur orð frá ritnefnd Flest deildarfélög Háskóla íslands standa í ein- hvers konar blaðaútgáfu en afraksturinn er afar ólíkur og reyndar tilgangurinn Iíka. Sum blaðanna hafa skemmtanagildið að höfuðatriði, önnur eru liður í fjáröflun o.s.frv. Mímir hefur, eins og áskrifendum er kunnugt, verið með ýmsu móti gegnum árin, en á undanförnum árum hafa rit- nefndir blaðsins tekið þá stefnu að Mímir eigi fyrst og fremst að vera vandað fagtímarit um íslenskt mál og bókmenntir og vonar fráfarandi ritnefnd að það hafi tekist með þessu 43. tölublaði blaðs- ins. Efni þessa tölublaðs ber töluverðan keim af því að Mímir, félag stúdenta í íslenskum fræðum, er fimmtugur á árinu. Af því tilefni var saga félagsins tekin saman og nokkrir gamlir og virðulegir Mím- isliðar fengnir til að leggja til efni í blaðið. Ætlunin var að birta myndir af öllum fimmtíu fyrrverandi formönnum félagsins, en alllangt er síðan síðast voru birtar myndir af formönnum félagsins. Heimtur voru hins vegar ekki nógu góðar og biður ritnefndin þá skilvísu Mímisformenn sem brugð- ust við beiðni okkar og sendu mynd velvirðingar á umstanginu. I sárabætur fyrir lesendur birtast í þessu tölublaði myndir af flestum greinarhöfund- um. Þetta er í þágu íslenskunema framtíðarinnar því við stúdentar vitum að gamlar myndir af kenn- urum og öðrum þjóðþekktum mönnum úr fræð- unum er það skemmtilegasta sem stúdentar kom- ast yfir. Að öðru leyti er efni blaðsins að stofninum til námsritgerðir stúdenta í íslensku auk skáldskapar og tveggja viðtala við tvær athyglisverðar konur, Ingibjörgu Haraldsdóttur skáld, þýðanda og for- mann Rithöfundasambands Islands og Sigríði Sig- urjónsdóttur, doktor í máltöku barna og dósent í íslenskri málfræði. Það er von ritnefndarinnar að blaðið falli les- endum í geð, svo rækilega að þeir sýni ánægju sína í verki, rölti með gíróseðilinn í bankann og ... Með sólríkum sumarkveðjum Hugrún Hrönnn Ólafsdóttir Sigtryggur Magnason og Sigþrúður Gunnarsdóttir. Eftirtaldir aðilar fá þakkir fyrir veittan stuðning: Bókmenntafræðistofnun Háskóla íslands Málvísindastofnun Háskóla íslands 3

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.