Mímir - 01.06.1996, Side 66
„Þessi línulega hugsun í
málfræðinni heillaði mig“
Viðtal við Sigríði Sigurjónsdóttur
Á fallegu vetrarkvöldi, ekki alls fyrir löngu, hitt-
umst við: Hugrún Hrönn Ólafsdóttir, Álfheiður
Ingimarsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir og átt-
um saman notalega stund. Sigríður hefur lokið
doktorsgráðu í máltökufrœðum og okkur Álfheiði
lék forvitni á að kynnast henni og hugðarefnum
hennar ofurlítið nánar. Fátt er líka skemmtilegra
en að dreypa á bjór og spjalla um frœðin. Sigríður
sagði okkurfrá náminu, rannsóknunum og ástinni
sem býr hinum megin við hafið.
Hvaðan kemurðu?
„Ég er borinn og barnfæddur Reykvíkingur og
eftir landspróf hóf ég nám í Menntaskólanum við
Hamrahlíð á náttúrusviði. Ég stundaði nám þar á
árunum 1976-1979. Að loknu stúdentsprófi
bauðst mér starf hjá Rannsóknarstofnun landbún-
aðarins og ég vann þar í eitt ár en áttaði mig
fljótlega á að náttúruvísindin voru ekki fyrir mig.
Ég sá mig ekki alveg sem sloppa- eða stígvélalíf-
fræðing ævina á enda. Ég skráði mig því í íslensku
haustið 1980. Ári seinna byrj-
aði ég í almennum málvísind-
um því bókmenntafræðin höfð-
aði ekki til mín. Mér hefur
alltaf þótt stærðfræðin
skemmtileg og þessi línulega
hugsun í málfræðinni heillaði
mig. Ég kláraði B.A.-próf í al-
mennum málvísindum með ís-
lensku sem aukagrein. B.A.-
ritgerðin mín nefnist: Aðblást-
ur: Útbreiðsla og upptök,
skrifuð hjá Jóni Gunnarssyni.
Þetta var mjög skemmtilegt
viðfangsefni og í rauninni var
ég að rekja fornu siglingaleið-
irnar, því aðblásturinn virðist
hafa fylgt víkingunum. Hann
kemur fyrir í mállýskum í Suð-
vestur-Noregi, en þaðan komu
víkingarnir eins og allir vita. Eins er aðblástur
ríkjandi í hljóðkerfi bæði færeyskunnar og íslensk-
unnar. Aðblástur kemur líka fyrir í skosk-gelísku
mállýskunum sem talaðar eru á Suðureyjum og
norðvesturhluta Skotlands þar sem víkingarnir
höfðu viðdvöl og tóku sér þræla.“
Hvað vakti áhuga þinn á máltökufræðum?
„Þegar ég var á mínu fyrsta ári í almennum
málvísindum 1981, var Randa Mulford komin
hingað til lands. Með komu hennar varð vakning
meðal málfræðinga um máltökurannsóknir.
Randa hafði lokið doktorsprófi frá Stanford há-
skóla í sálfræðilegum málvísindum, með máltöku
barna sem sérgrein. Hún þekkti Höskuld, og
Siggu konuna hans, og fékk styrk til að koma
hingað og skoða máltöku íslenskra barna og
kenndi auk þess við Háskólann í tvö ár. Nokkru
áður, árið 1978, hófust fræðilegar rannsóknir á
máli barna hér á landi með Indriða Gíslasyni og
Jóni Gunnarssyni sem þá hófu undirbúning að
64