Mímir - 01.06.1996, Blaðsíða 68

Mímir - 01.06.1996, Blaðsíða 68
matsprófinu heyra börnin hins vegar sömu próf- setninguna þrisvar sinnum á eftir þremur mismun- andi sviðsetningum. Á eftir hverri sviðsetningu heyrir barnið sömu setninguna og þarf að dæma hvort prófsetningin getur haft þessa tilteknu merkingu. Þar sem allar hinar þrjár mismunandi túlkanir á prófsetningunni eru sviðsettar fyrir framan barnið þá gefur þetta próf barninu færi á að segja til um hvaða túlkanir á prófsetningunni því finnast tækar og hverjar því finnast ótækar. Þetta próf fer annars þannig fram að einn rann- sóknarmaður heldur á handbrúðu sem kann ís- lensku ekki nógu vel og er að reyna að læra meira. Handbrúðan segir stundum eitthvað vitlaust og stundum eitthvað rétt og verkefni barnsins er að segja handbrúðunni hvenær hún segir eitthvað vit- laust og hvenær hún segir eitthvað rétt. Annar rannsóknarmaður segir handbrúðunni og barninu sögu og sviðsetur söguna með litlum brúðum og dóti fyrir framan handbrúðuna og barnið. Þegar sögunni er lokið lýsir handbrúðan því sem gerðist með prófsetningunni og barnið á að dæma hvort setning handbrúðunnar sé tæk eða ótæk lýsing á því sem gerðist í sögunni. Setningin var alltaf sönn, en það var spurning um hvort endurvísarnir ’sjálfan sig’ og ’sig’ og persónufornöfnin ’hann’ og ’hún’ gætu haft tiltekinn undanfara eða ekki. Mat- sprófið hefur það því fram yfir aðgerðarprófið að barninu er gefið færi á að segja til um hvaða túlk- un eða túlkanir á prófsetningunni eru málfræði- lega réttar að mati þess og hvaða túlkun eða túlk- anir eru ótækar. Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar verið er að prófa skilning barna á aftur- beygða fornafninu ’sig’ og persónufornöfnum þar sem oft koma fleiri en einn möguleiki til greina því að prófsetningarnar eru oft tvíræðar. Matsprófið gefur því mun betri mynd af málhæfni barnsins en aðgerðarprófið. Við hittum hvert barn sex sinnum og tilraunin gekk mjög vel. Ég hafði í upphafi töluverðar áhyggjur af því hvernig börnin myndu taka mér, en þau lifðu sig inn í sögurnar og höfðu mikinn áhuga á að fá að leika við okkur. Ég fór á barnaheimilin með brúðurnar og setti upp hálf- gert brúðuleikhús. Ég var með aðstoðarmann- eskju á launum af styrk sem ég fékk frá Vísinda- ráði Bandaríkjanna og hún sá um að segja söguna með litlu brúðunum og ég lék handbrúðuna.“ Komu niðurstöður doktorsrannsóknar þinnar á óvart eða voru þær eitthvað í líkingu við það sem þú bjóst við? „Það kom í ljós að íslensk börn, alveg eins og börn sem prófuð hafa verið erlendis, eru haldin svokallaðri fornafnatregðu. í hefðbundnu bindi- kenningunni, sem Chomsky kom fram með 1981, er gert ráð fyrir Bindilögmáli A og Bindilögmáli B. Bindilögmál A segir að endurvísar eins og ’sjálfan sig’ verði að vísa í næsta frumlag, þeir eru bundnir innan setningarinnar. Bindilögmál B seg- ir hins vegar að þriðju persónufornöfn geti ekki haft undanfara innan setningarinnar heldur verða þau að vísa út fyrir setninguna sem þau koma fyrir í. Samsetti endurvísirinn ’sjálfan sig’ og þriðju persónufornöfn eru sem sé í fyllidreifingu. Ef þessi bindilögmál eru hluti af þessum abstrakt málfræðilögmálum sem fólki eru ásköpuð við fæð- ingu, eins og Chomsky gerir ráð fyrir, þá myndi maður búast við að börn stæðu sig jafnvel í setn- ingum sem ’sjálfan sig’ kemur fyrir í og í setning- um sem þriðju persónufornöfn koma fyrir í. Það hefur hins vegar sýnt sig allsstaðar þar sem þetta hefur verið rannsakað að tlest börn vita að sam- settir endurvísar verða að vísa í næsta frumlag, en á sama tíma leyfa mörg þessara sömu barna þriðju persónufornöfnum að vísa í frumlag innan sömu setningar, og brjóta þannig Bindilögmál B. Þau 66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.