Mímir - 01.06.1996, Page 23
Hún er allt um það dæmd til að rífa sjálfa sig niður
í menningu sem lítur á náttúruna sem hervöll og
stríðsfeng.
Við slík skilyrði getur náttúrufar manna orðið
að því sem meiðir, nauðgar og myrðir; kátt og
brútalt manneðlið verður að síhungruðum blóð-
drekk sem í skugga krosstrésins tvístrar sjálfum
sér og umhverfi sínu; því máttur táknsins afmáist
ekki þótt því sé snúið við eða hafnað með orðum.
Þegar svo er komið hafa mörk barnsvinar og
barnsmorðingja horfið innan ímyndar sem minnir
með ömurlegum hætti á stelpu eina úr Skagafirði,
Guðrúnu frá Syðsta-Vatni, sem flæktist vestur um
Laxárdal á tímum móðuharðinda. Er sagt að hún
hafi steikt hvolp nýgotinn á Mörk og etið en áður
var hún svo matvönd og tærilát að ekki var gjört til
hæfis; var hún kölluð Tófu-Gunna. Stelpa þessi
fékk gisting á bæ einum í Refasveit þar sem barns-
lík lá í útikofa og urðu menn þess varir að hún
gekk úr bóli sínu um nóttina sem þá var björt.
Þegar komið var að henni var hún tekin að skera
vöðva úr líkinu og vildi éta en var hindruð. A
öðrum bæ ætlaði hún að skera barn lifandi á háls
en móðir þess kom að og var hún þá rekin út í
illviðrið. Það er seinast frá Guðrúnu sagt að hún
dó á eyðibýli í sveitinni og lögðust hundar á hræ
hennar.
Grein þessi er að hluta byggð á erindi sem flutt var í
fundaröðinni „Forboðnir ávextir" á vegum SHI 2.
nóvember 1993. Heimildir um hellismálverkið í
Lascaux og Gilles de Rais eru fengnar úr eftirtöldum
ritum Georges Bataille: Lascaux or the Birth ofArt.
Þýð. Austryn Weinhouse. Genf 1955; Les larmes
d’Eros. París 1961; Le Procés de Gilles de Rais. París
1965. Sagan um Tófu-Gunnu er sótt fyrir ábendingu
Jóns Torfasonar í Húnvetningasögu eftir Jón Espólín
og Gísla Konráðsson (Lbs. 2244, 4to).
LEIKFÉLAG 2i<» BORGflRLEIKHÚSIO
REYKJAVÍKUR Vp Sími: 568 8000
Samkeppni um leikhúsverk
í tilefni aflOO ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur 11. janúar 1997
efnir félagið til samkeppni um leikhúsverk.
Höfundar leikhúsverka sem áhuga hafa á að taka þátt í keppninni sendi inn:
A) Nýtt frumsamið leikrit.
eða
B) Handrit að leiksýningu.
Með handriti að Ieiksýningu er átt við fullbúið
handrit, eins og kostur er, að leiksýningu (mögu-
leiki er á t.d. að rithöfundur, leikmyndateiknari og
leikstjóri sendi inn saman handrit). Um getur verið
að ræða leikgerð af öðru verki, frumsamið leikrit
o. s.frv. Ekki er átt við óperu eða ballettverk í venju-
legum skilningi.
Þriggja manna dómnefnd mun fjalla um leikverkin
og er hún skipuð leikhússtjóra LR, fulltrúa til-
nefndum af Rithöfundasambandi íslands og full-
trúa tilnefndum af félögum í Leikfélagi Reykjavík-
ur.
Dómnefnd getur veitt þrenn verðlaun: 1. verðlaun
að upphæð 500.000 kr., 2. verðlaun að upphæð
300.000 kr. og 3. verðlaun að upphæð 200.000 kr.
Það verk sem kann að hljóta 1. verðlaun verður
tekið til sýninga í lok afmælisárs LR.
Niðurstöður dómnefndar verða kynntar á 100 ára
afmæli Leikfélags Reykjavíkur 11. janúar 1997.
Skilafrestur er til 11. nóvember 1996 og skulu
handrit merkt dulnefni en rétt nafn höfunda(r)
fylgja í lokuðu umslagi og skulu þau send:
Leikfélag Reykjavíkur
Samkeppni um leikhúsverk
Pósthólf 3390
123 Reykjavík.
21