Mímir - 01.06.1996, Page 40

Mímir - 01.06.1996, Page 40
fyrsta skipti í skólablaðinu í menntaskólanum, þegar ég var svona 17 ára, en þau ljóð komust ekkert í bókina, þau voru fyrnd. Svo birti ég í Birtingi á þessum menntaskólaárum og seinna komu nokkur ljóð í Tímariti Máls og menningar. Ég var ennþá á Kúbu þegar Þangað vil ég fljúga kom út. Ég fékk hana að vísu senda þó að póst- samgöngur við Kúbu væru erfiðar en það var ósköp einmanalegt því það voru engir Islendingar á Kúbu, engir sem ég gat sýnt hana. Það fylgdu með henni einhverjar úrklippur að heiman, þá hafði verið skrifað um hana í blöðin. Hún fékk frekar jákvæðar viðtökur og það var ósköp nota- legt, en ég fékk engin alvöru viðbrögð við henni fyrr en ég kom heim, þegar hún var ársgömul eða eitthvað svoleiðis og það var svolítið seint. Hafðirðu einhverjar sérstakar fyrirmyndir í skáldskapnum? Hvaðan fékkstu hvatningu til að byrja að yrkja? Pabbi var góður hagyrðingur og var þar að auki með talsverða skáldadrauma þegar hann var ung- ur, en hann kom þessu ógurlega lítið á framfæri. Hann hafði ekki mikinn áhuga á að trana sér fram. Það var ekki fyrr en hann var dáinn sem við syst- kinin gáfum út lítið kver með ljóðum og vísum eftir hann. Pabbi var mjög ánægður með það að ég væri að yrkja og ýtti mér eiginlega út á þessa braut, má segja. Hann var alltaf að benda mér á einhver skáld sem ég þyrfti endilega að lesa og koma með bækur sem ég átti að kíkja í. Þannig að hann var mjög hvetjandi. Annars voru það tvö skáld sem höfðu mest áhrif á mig þegar ég var að byrja að yrkja og það voru Snorri Hjartarson og Steinn Steinarr. Mér hefur gengið verr að uppgötva einhver kvenleg áhrif. Það voru svo fáar konur sem höfðu gefið út ljóða- bækur þegar ég var að byrja og ég man ekki eftir að jafnöldrur mínar hafi mikið verið að birta ljóð þegar mitt hnoð fór að sjást í skólablaði MR og víðar. Hinsvegar var ég komin yfir þrítugt þegar ég gaf út fyrstu bókina, og þá höfðu t.d. Nína Björk og Steinunn gefið út bækur, fleiri en eina hvor, og þó er Steinunn talsvert yngri en ég. Svo vissi ég auðvitað af Vilborgu og sá ljóð eftir hana í Tímariti Máls og menningar sem barst mér öðru hverju meðan ég var í Moskvu — fyrir nú utan að hún kom einu sinni í heimsókn til mín í eigin persónu. Ástu Sigurðardóttur hitti ég tvisvar stuttlega og heillaðist af frásagnargáfu hennar, hún sagði svo skemmtilegar sögur af skrýtnu fólki. Ég vissi reyndar af henni allt frá því að sagan hennar fræga, Sunnudagskvöld til mánudags- morguns, birtist í Lífi og list. Þá var ég nefnilega í sveit fyrir vestan, hjá fólki sem þekkti til hennar og talaði um hana og söguna. Ég var ekki nema níu ára, og las ekki söguna fyrr en seinna, en man vel eftir að hafa í laumi dáðst að þessari djörfu konu sem hneykslaði fólk svo rosalega. Það er vel hugsanlegt að þessar konur hafi haft áhrif á mig þótt ég geri mér ekki alveg grein fyrir því. Satt að segja minnir mig að þær konur sem mig langaði mest til að líkjast þegar ég var ung- lingur hafi yfirleitt verið myndlistarkonur — og þó ætlaði ég aldrei að fást við myndlist. Það var bara eitthvað sterkt og frjálst og öðruvísi við þessar konur og það heillaði mig. EFTIRMÆLI Minn síðasti dagur mun líða að kvöldi sem aðrir dagar sólin mun setjast og fólk mun ganga til svefns og kannski verður einhverjum einhversstaðar að orði: hún Inga dó í dag og annar mun spyrja hver var hún, hvað gerði hún? Og mætti ég ráða svörum þann dag mundi ég segja: þótt dagar hennar yrðu stundum hver öðrum líkir þessi sama brennandi sól í hvirfilpunkti á hádegi og kvöldin með jasmínangan úr garði náungans og annarra manna börn að leikjum á götunni og einveran köld og stingandi angistarfull heimþrá þrátt fyrir þetta gat hún glaðst yfir litlu einsog barn sem skilur allt. (Þangað vil ég fljúga) Það er klárt upphaf í Þangað vil ég fljúga, fœð- ing skáldsins, en skáldið deyr líka í bókinni í Ijóð- inu „EftirmæliÆtlaðir þú aldrei að yrkja meira? Jú, þarna ætlaði ég það nú. En það er samt 38

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.