Mímir - 01.06.1996, Blaðsíða 91

Mímir - 01.06.1996, Blaðsíða 91
þrátt fyrir þá ágalla sem hér hafa verið tíundaðir er þetta vel heppnuð bók og uppfyllir í einu og öllu það markmið að vera aðgengilegt yfirlitsrit yfir sögu kenninga um skáldskaparfræði. Það hefði hins vegar verið spennandi að fá meira að heyra, um bókmenntasögu, tengsl bókmennta- fræða og kenninga í öðrum greinum, t.d. heim- speki, málfræði, sálfræði og guðfræði, og síðast en ekki síst meira um þá höfunda íslenska sem fjöll- uðu um bókmenntir, sama hver aðferð þeirra var. Til þessa hefði þurft að beita meiri greiningu og rýni og minni endursögn en hér er gert. En verk Arna stendur fyrir sínu og stendur við sín mark- mið, aðrir verða að spreyta sig á þeim verkefnum sem hér hafa verið talin og ef til vill heldur Árni áfram á sömu braut. Nú er tuttugasta öldin ein eftir, og það verður spennandi að sjá hvort og hvernig Árni tekst á við það verkefni. Mér er ekki grunlaust um að þá verði hann að taka aðferð sína til róttækrar endurskoðunar enda þýðir lítið að ætla að einblína á skáldskaparfræðina eina í því flóði bókmenntaskrifa sem hefur orðið til á okkar öld. Frágangur bókarinnar er ekki allur eins og best verður á kosið. Efninu er reyndar vel skipað niður eins og áður sagði og í bókinni eru ítarlegar nafna- og atriðisorðaskrár sem gera hana aðgengilega og þægilega í notkun. Það verður hins vegar að segj- ast að útlit bókarinnar er ekki til að gleðja augað. Ég kvarta að vísu ekki yfir kápunni eða ytra útliti en þegar bókin er opnuð er annað uppi á teningn- um. Pappírinn er skjannahvítur, líkastur vélritun- arpappír, og letrið og uppsetning þess með hálf- gerðum tölvubrag og fremur óaðlaðandi. I eintaki undirritaðs eru auk þessa nokkrar síður þar sem blekið hefur smitast, þannig að stafirnir eru ógreinilegir. Prentvillur fann ég nokkrar, og ein þeirra a.m.k. verðskuldar töluverða frægð. Á blaðsíðu 384 segir um Níels skálda: „hann var sjálfmennt- aður og sérkennilegur maður, bóndi um skeið en lifði einkum af ljóðmóðurstörfum síðari hluta æv- innar.“ Þarna er komið starfsheiti sem ritstjórar og útgáfustjórar framtíðarinnar geta borið með stolti. Jón Yngvi Jóhannsson 1 Árni Sigurjónsson: Bókmenntakenningar fyrri alda. Heimskringla. Reykjavík 1991, 9. h 0§ _rY.'' mö' GRAFÍ K Prentsmiöjan Grafík hf. Smiöjuvegi 3, 200 Kópavogi • Sími 554 5000 • Fax 554 6681
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.