Mímir - 01.06.1996, Síða 92

Mímir - 01.06.1996, Síða 92
Vínlandsfarinn Ritdómur Handbók um málfræði Höfundur: Höskuldur Þráinsson Utgefandi: Námsgagnastofnun, Reykjavík 1996. Ut er kominn Höskuldur Þráinsson prófessor eftir langa dvöl á slóðum Þorfinns karlsefnis. Mímislið- ar tóku honum fagnandi enda væntu þeir að hann kæmi hlaðinn efni sem hann vildi miðla þeim. Þess var heldur ekki lengi að bíða að efni kæmi frá kappanum þó að nokkuð væri það í annarri mynd en Mímisliðar ætluðu. Á haustdögum kom út Handbók um málfrœði eftir prófessor Höskuld. Markhópur bókarinnar, ef trúa má formálanum, er þó ekki Mímisliðar heldur 8.-10. bekkur grunn- skóla. Hér á eftir verður reynt að finna kosti og galla bókarinnar þó að tæpast eigi stjörnugjafir vel við handbók um jafn lifandi efni og málfræði. Um útlit og frágang bókarinnar er það að segja að hún er í hefðbundinni kiljuútgáfu. Hana prýðir einhver ljótasta kápa sem íslensk bók hefir fengið. Kápan gerir bókinni þó lítið til því áhugi mark- hópsins á efninu er slíkur að bókinni er nær aldrei lokað. Útgefandi hefir skreytt bókina með gulln- um miða sem upplýsir að bókin hefir verið til- nefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þess skal getið að hún fékk þau ekki enda hefir útlit bóka fremur en inntak ráðið í þeirri verðlaunaaf- hendingu hingað til. Efst á útjaðri hverrar síðu er svartur blettur sem á er uppflettitákn, bókstafur í fyrri hluta bókarinnar en tölur í þeim síðari. Þetta auðveldar mjög notkun bókarinnar. Bókin þarf nýja forsíðu og að bindast inn í gorm til að vera hentugra uppflettirit. Einkunn fyrir útlit og frágang er því 7.5 og hafa margir mátt una við minna. Þegar bókin er opnuð kemur efnisyfirlit að hætti málfræðinga, eins og flestir vita standa þeir þar öðrum framar. Fyrri hluti bókarinnar er skil- greining hugtaka með notkunardæmum. Hugtök- in koma í stafrófsröð. Fyrst er hugtakið skilgreint því næst skýrt þá koma dæmi og loks athugasemd. Auðvitað eru þessi atriði sjaldan öll við eitt og sama hugtakið heldur aðeins þau sem eru þörf. Fyrir aftan hugtakið stendur svigi með tölum sem vísa til kafla í seinni hluta bókarinnar sem er eins konar ítarefni fyrir þá málfræðiþyrstu grunnskóla- nemendur sem bókin er ætluð. Eg gerði nokkrar tilraunir að fletta upp málfræðihugtökum í bók- inni og verður að segjast eins og er að ég fann alltaf svör við því sem ég leitaði að. Þó fann ég ekki hvaða reglur gilda um hvar á að nota pers- ónufornafn og hvar afturbeygt fornafn. Auðvitað kann ég íslensku og veit þetta eins og aðrir Mímis- liðar. Einkunn fyrir uppsetningu og skýringar er því 9.5. Þar sem ég met innihald þrefalt á móti útliti (öfugt við íslensku bókmenntaverðlaunin) þá verður einkunn bókarinnar 9.0. í formála segir höfundur: „Þetta er frekar þurr handbók og höfundur gerir sér engar vonir um að komast í hóp metsöluhöfunda fyrir þetta rit“ (12). Fullyrðingin um að þetta sé frekar þurr handbók er eina missögnin sem ég fann í bókinni því þetta er einhver skemmtilegasta handbók sem ég hef skoðað. Setningadæmin eru oft skemmtileg t.d. „Árni vill verða borgarstjóri" (65). Hitt verður líka að teljast líklegt að bókin eigi eftir að seljst vel um nokkurt skeið og slá mörgum metsölubókun- um við. Bókin er góð eign fyrir markhópinn og þó ekki síður fyrir framhaldsskólanemendur og Mímislið- ar ættu að eiga hana til að fletta upp, svona til að vera vissir, þó að auðvitað viti þeir allt sem í henni stendur og miklu meira en það. Ég vil nota tækifærið og óska höfundi til ham- ingju með bókina ásamt grunnskólanemendum og íslendingum öllum. Því íslensk tunga verður af þessari bók ríkari en hún áður var. Að lokum óska ég Mímisliðum til hamingju með að hafa endur- heimt prófessorinn úr þeirri helju sem Vínland vissulega er. Sigfús Aðalsteinsson 90
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.