Læknaneminn - 01.04.2018, Blaðsíða 9
9
Á
vö
rp
o
g
an
ná
la
r
9
Ástráður
Arna Kristín Andrésdóttir
formaður Ástráðs 2017-2018
Undirbúningur fyrir 18. starfsár Ástráðs hófst
sumarið 2017. Þá ákvað nýskipuð nefnd að fá
Elínu Eddu Þorsteinsdóttur, þriðja árs nema
í grafískri hönnun, til liðs við sig og hanna nýtt
logo fyrir félagið. Ég held ég geti sagt að allir
séu ánægðir með útkomuna þó einhverjir
eigi eflaust eftir að sakna grænu bolanna
og Woody Allen. Auk þess þá voru bæði
framhalds skóla og grunnskólafyrirlestrarnir
yfir farnir og uppfærðir bæði með tilliti til inni
halds og útlits fyrir komandi vetur.
Líkt og fyrri ár var Ástráðsvika haldin
í byrjun september í samstarfi við Læknadeild
Háskóla Íslands. Tilgangurinn með vikunni er
að fræða og undirbúa annars árs læknanema
fyrir veturinn sem komandi táningafræðara.
Í vikunni héldu fagaðilar og fulltrúar frá
ýmsum samtökum erindi um kynheilbrigði,
kynlíf, samskipti, ofbeldi og margt fleira. Í lok
vikunnar var haldið á Snæfellsnes í hina marg
rómuðu Ástráðsferð sem heppnaðist ljómandi
vel þrátt fyrir leiðinlegt veður.
Eftir þessa skemmtilegu viku tók alvaran
við hjá annars árs nemunum. Þeir sjá um að
heim sækja alla framhaldsskóla landsins og
fræða framhaldsskólanemendur á fyrsta ári
um kynheilbrigði. Um 150 fyrirlestrar voru
haldnir eins og hefur verið síðustu ár.
Síðastliðin ár hafa þriðja árs læknanemar
heim sótt grunnskóla og félagsmiðstöðvar og
haldið þar fræðslu í nafni Ástráðs. Meirihluti
fyrirlestra fer fram á höfuðborgarsvæðinu
en þetta starfsár höfum við fært út kvíarnar
og haldið fyrirlestra á Akranesi, Selfossi og
í Hvera gerði. Í ár voru haldnir 18 fyrirlestrar
í grunnskólum og félagsmiðstöðvum.
Eins og kunnugt er heldur Ástráður úti
leyndó póstinum (leyndo@astradur.is) sem
fjórða árs læknanemar í stjórn Ástráðs sjá um.
Þar er tekið nafnlaust við spurningum sem
brenna á ungmennum þjóðarinnar.
Í nóvember hlaut Ástráður fræðslu og
vísinda viðurkenningu Siðmenntar fyrir árið
2017. Fram kom í tilkynningu Siðmenntar að
Ástráður hlyti viðurkenninguna fyrir „ötult og
óþrjótandi starf við mikilvægt kynningarstarf
um kynheilbrigði“. Jóhann Björnsson, for
maður Siðmenntar, sagði læknanema hafa
unnið óeigingjarnt starf í mörg ár. Viður
kenningar, líkt og þessi, hvetja okkur til að
halda starfinu áfram og gera enn betur.
Ástráður tekur þátt í verkefni sem miðar að því
að koma smokkasjálfsölum upp á einstaklings
salernum í öllum framhaldsskólum landsins.
Þetta verkefni er unnið í samstarfi við
Embætti Landlæknis, Háskóla Íslands, Kynís
og Halldór Jónsson ehf. Markmiðið með þessu
verkefni er að auðvelda aðgengi að smokkum
sem er jú eina vörnin gegn kynsjúkdómum.
Það hefur verið venja að Ástráður haldi tvisvar
á starfsárinu „hátíð“ sem kallast Kynhvöt
(KYNningar og HVatningarkvöld Ötulla
Táningafræðara). Því miður náðist ekki að
halda Kynhvöt haustannar (I) í ár. Kynhvöt
vorannar (II) er uppskeruhátíð vetrarins en
þá eru þeir annars árs nemar sem halda flesta
fyrirlestra á starfsárinu verðlaunaðir fyrir vel
unnin störf. Þegar annáll er skrifaður hefur
Kynhvöt II ekki farið fram.
Ástráður hefur verið virkur í erlendu sam
starfi á þessu starfsári. Sigríður Óladóttir,
ritari Ástráðs, fór á ráðstefnu læknanema
á Norður löndum (Federation of International
Nordic Students’ Associations, FINO) helgina
9.–12. nóvember 2017 í Svíþjóð. Þemað var
Migration and health og sótti hún fyrirlestra
og tók þátt í hópumræðum um stöðu hinsegin
fólks á flótta. Þórdís Ylfa, varaformaður
Ástráðs, fór í lok febrúar á alþjóðlega ráð
stefnu læknanema í Egyptalandi. Þar sótti hún
námskeið og fyrirlestra tengda kynheilbrigði
og alnæmi. Í lok mars héldu Edda Rún
Gunnarsdóttir og María Rós Gústavs
dóttir, með stjórnendur Ástráðs, á ráðstefnu
The Northern European Co-operation of Sex
Education Projects (NECSE) sem eru samtök
læknanema frá NorðurEvrópu sem standa
að kynfræðslu. Þemað í ár var frjósemi og
getnaðarvarnir.
Við í Ástráði erum ánægð með störf vetrarins
og hlökkum til að sjá nýja stjórn halda áfram
á sömu braut. Við teljum félagið vinna
mikilvægt starf í þágu samfélagsins og viljum
þakka öllum sem hafa stutt okkur og tekið
þátt í starfinu öll þessi ár.
Frá vinstri: Edda Rún Gunnarsdóttir, Stefán Már Jónsson, Hlynur Gíslason, Jón Tómas Jónsson, Oddný
Brattberg Gunnarsdóttir, Guðrún Svanlaug Andersen