Læknaneminn - 01.04.2018, Blaðsíða 93
Sk
em
m
tie
fn
i o
g
pi
st
la
r
93
Hvaða þekking frá preklínísku árunum hefur
gagnast þér mest í klíníkinni? Lyfjafræði,
lyfjafræði og lyfjafræði. Lesið Rang og Dale.
Frábær bók!
Hvaða þekking frá preklínísku námi hefur
gagnast þér minnst í klíníkinni? Sennilega
læknisfræðileg eðlisfræði, lífræn efnafræði
og að sjálfsögðu ólífræn efnafræði sem
blessunarlega er dottin út úr náminu.
Hefur þú önnur ráð eða skilaboð til
læknanema á fyrsta til þriðja ári? Um allt sem
þið lærið nokkurn tímann gildir eftirfarandi:
Einhver, einhvers staðar hefur brennandi áhuga
á því sem þið eruð að læra. Reynið að finna út
úr því hvað það er sem er svona áhugavert og
reynið að nálgast umfjöllunarefnið út frá því.
Það er hægt að finna eitthvað áhugavert við
allt meira að segja patch clamp.
Ráð til lækna -
nema á fjórða
til sjötta ári
Albert Sigurðsson
læknir á lyflækningasviði
Hvaða ráð myndir þú gefa læknanemum
sem eru að stíga sín fyrstu skref í klíník?
Þú ert læknanemi. Þú ert bara rétt að byrja.
Það ætlast enginn til þess að þú kunnir neitt.
Notaðu tækifærið og spurðu.
Hvað fannst þér þú læra mest af í klínísku
námi? Ég lærði mest af kandídötunum og
deildar læknunum sem gáfu sér tíma til að kenna
mér og gáfu mér afmörkuð verkefni. Ekki vera
feiminn við að ræða við deildarlækninn eða
kandídatinn og fáðu að taka að þér sjúkling
með vel skilgreint vandamál og vinna það
upp undir þeirra leiðsögn. Einbeittu þér að
algengu vandamálunum sem þú munt þurfa að
takast á við þegar þú ferð að vinna. Sjaldgæfu
tilfellin eru skemmtileg en ekki missa þig
í smáatriðunum.
Hvað hefur gagnast þér mest þegar út í djúpu
laugina er komið á spítalanum?
• Hringdu eða spurðu reyndari aðila ef
þú ert óörugg(ur) með eitthvað. Það á
enginn að pirrast á því að ungur óreyndur
og heilarými í að læra utanbókar atriði sem
gleymast strax eftir próf er bæði leiðinlegt
og heimskulegt. Eftir á að hyggja hefði ég
kannski viljað leggja enn meiri áherslu á þetta,
skilja meira og páfagaukalæra minna.
Hefur þú önnur ráð eða skilaboð til
læknanema á fyrsta til þriðja ári? Þegar ég
hugsa um síðastliðin sex ár líður mér eins
og ég hafi öðlast alla mína læknisfræðilegu
þekkingu á síðustu þremur árum, í klíníkinni.
Vitaskuld er það ekki rétt heldur er mikið
frekar um vanmat á mikilvægum grunnstoðum
preklíníkunnar að ræða. Þekking sem
manni finnst sjálfsögð núna kostaði margra
klukkustunda grúsk og heilabrot á preklínísku
árunum. Njótið grúsksins en ekki bugast yfir
smáatriðum, verið dugleg að mæta í vísó og
hlakkið til að byrja í klíníkinni!
Sæmundur Rögnvaldsson
kandídat 2017-2018
Hvaða ráð myndir þú gefa læknanemum sem
nú eru á fyrsta til þriðja ári?
Það eru aðallega fimm ráð sem ég myndi gefa
læknanemum á preklínísku árunum:
1) Lesið bókina. Það er ekki það sem færir
manni bestu einkunnirnar en það gefur manni
miklu betri yfirsýn og skilning en að lesa
stikkorðin á glærunum.
2) Prófið að vinna umönnunarstarf. Það er
gríðarlega lærdómsríkt og svo er líka bara
frekar asnalegt að vera læknir sem kann ekki
grundvallarumönnun.
3) Byrjið að læra snemma en hugsið seint um
prófið. Það ætla allir að læra jafnóðum en það
getur verið erfitt að halda sig við efnið. Mitt
ráð er að einbeita sér að því sem manni finnst
skemmtilegt, áhugavert og/eða gagnlegt.
4) Einblínið á það að skilja og kunna en ekki á
einkunnir í prófum. Þær skipta litlu sem engu
máli. Það að eltast við einkunnir með því að
pína sjálfan sig eða að nöldra í kennurum er
leiðinlegt, tímafrekt og ólíklegt til að hjálpa
ykkur á þeirri vegferð að verða góðir læknar
og við fórum jú í læknisfræði til að verða góðir
læknar en ekki til að fá góðar einkunnir á
prófum.
5) Ekki gleyma því að njóta lífsins. Að læra
læknisfræði er ekki bara sex ára „afplánun“
heldur áratugalangt nám sem heldur áfram
að minnsta kosti þangað til maður hættir að
vinna. Reynið að temja ykkur það frá upphafi
að lifa lífinu utan læknisfræðinnar.
læknanemi eða kandídat leiti ráða.
• Þú ert að vinna í teymi. Reyndir
hjúkrunar fræðingar eru ómetanlegir.
• Lærðu klínískar leiðbeiningar fyrir algeng
vandamál, sérstaklega bráð vandamál.
Ef þú getur bent á að þú hafir fylgt
leiðbeiningum ertu ógrillanleg(ur).
• Ég veit ekki hversu oft íslensku íðorðin
hafa bjargað mér. Að kunna fjögur til
fimm heiti á sama nýrnavandamálinu
hefur endurtekið bjargað mér fyrir horn.
Er eitthvað sem þú hefðir viljað gera
öðruvísi? Eftir sjötta ár munt þú aldrei geta
farið í vísó aftur. Notaðu tækifærið. Ég veit
til dæmis ekki í hvaða búningum starfsfólkið
í VISTOR var í á árlega grímuballinu þeirra
2014 og 2015. Einnig frétti ég að NOVA gaf
glimmerhanska í vísó 2014 sem ég væri til í
að eiga í dag.
Eru einhverjar óskrifaðar reglur í klíník inni
sem þú hefðir viljað vita af fyrr? Heilsugáttar
spjallið er ekki besti staðurinn til að reyna
við fólk. Sérstaklega ekki teymis rásirnar og
hópspjöllin. Brenndi mig á því.
Tómas Andri Axelsson
læknir á skurðlækningasviði
Hvaða ráð myndir þú gefa læknanemum
sem eru að stíga sín fyrstu skref í klíník?
Verið dugleg að spyrja. Læknanemar koma oft
ferskir inn í klíníkina og hafa ótal spurningar
sem þeir oft á tíðum þora ekki að spyrja.
Forvitni er lykillinn að velgengni í náminu og
það er gott að venja sig á það snemma að vera
óhrædd að spyrja.
Hvað fannst þér þú læra mest af í klínísku
námi? Ég lærði mest af því að reyna að taka
virkan þátt í klíníkum og öllum kennslum sem
voru í minni hópum. Til þess að læra um hina
ýmsu sjúkdóma, einkenni, meðferð, horfur og
fleira er langbest að reyna að læra í kringum
tilfelli sem maður rekst á í klíníkinni.
Hvað hefur gagnast þér mest þegar út í
djúpu laugina er komið á spítalanum? Ég
tel að helsti kostur lækna séu samviskusemi,
fag legur áhugi og forvitni. Mikilvægt er að
temja sér öguð og skipu lögð vinnubrögð og
fylgja hlutum eftir af sam visku. Það er gott að
vera vel lesinn en það er mikilvægt að átta sig
á því að það kemur ekki í staðinn fyrir að vera
duglegur og samviskusamur.