Læknaneminn - 01.04.2018, Blaðsíða 92
Sk
em
m
tie
fn
i o
g
pi
st
la
r
92
Góð ráð
dýr!
Lengra komnir
ausa úr visku-
brunninum
Áskoranir læknanema
og ný útskrifaðra lækna
geta verið margar og
mismunandi. Þá er ekki
úr vegi að leita ráða hjá
þeim sem á undan hafa
gengið. Læknaneminn
ræddi við nokkra lækna-
nema, kandídata og lækna
og fékk góð ráð.
Ráð til lækna -
nema á fyrsta
til þriðja ári
Áslaug Dís Bergsdóttir
læknanemi á fimmta ári 2017-2018
Hvaða ráð myndir þú gefa læknanemum
sem nú eru á fyrsta til þriðja ári? Ekki hugsa
of mikið um einkunnir. Þegar maður byrjar
í læknisfræðinni, eftir að hafa loksins komist
í gegnum síuna sem þetta inntökupróf er,
finnst flestum þeir þurfa að standa sig og
gera allt 100%. Svo fær maður út úr fyrstu
prófunum og þá kemur áfallið. „Bíddu, ha?
Er ég UNDIR meðaleinkunn?! Hvað er að
gerast? Þetta hefur aldrei gerst áður!“ Ekki
gleyma því að allir sem komast í gegnum
inntöku prófið eru góðir námsmenn og eflaust
vanir því að vera alltaf með toppeinkunnir úr
grunn og framhaldsskóla. Það sem mestu
máli skiptir er að sú þekking sem maður viðar
að sér í gegnum námið sé hagnýt. Staðreyndir
um kjarnagöng frumuhimnu hjálpa þér tak
markað við að greina sjúkdóma í klíníkinni þó
svo það geti gefið hærri einkunn á prófi!
Hvaða þekking frá preklínísku námi hefur
gagnast þér mest í klíník? Mér finnst
samskiptafræðin, lyfjafræðin og meinafræðin
nýtast manni best í klíníkinni. Öll þessi fög
eru hagnýt en á mismunandi máta.
Hvaða þekking frá preklínísku námi hefur
gagnast þér minnst í klíník? Smáatriði
á sameindastigi.
Hefur þú önnur ráð eða skilaboð til
læknanema á fyrsta til þriðja ári? Ekki sleppa
því að hitta fjölskyldu og vini eða gera þér
glaðan dag af því þér finnst þú þurfa að læra.
Það mun bara enda með því að þú brennir
út áður en þú nærð á kandídatsárið! Njótið
námsins, það er virkilega skemmtilegt, en ekki
gleyma því að það er líf utan við skólann og
læknisfræðina.
Marta Sigrún Jóhannsdóttir
læknanemi á sjötta ári 2017-2018
Hvaða ráð myndir þú gefa læknanemum sem
nú eru á fyrsta til þriðja ári? Nýtið frítímann
sem þið hafið í preklíníkinni, hann er ekki svo
mikill þegar klíníkin byrjar.
Ræktið tengsl við bekkjarfélaga ykkar. Þeir eru
verðandi bestu vinir ykkar og samstarfsmenn.
Ekki stressa ykkur þótt þið munið ekki það
sem þið voruð prófuð úr fyrir mánuði síðan.
Þið fáið fjölda tækifæra til að rifja þessi atriði
upp í hagnýtara samhengi seinna.
Engin spurning er heimskuleg. Spyrjið ef það
er eitthvað sem þið skiljið ekki!
Hvaða þekking frá preklínísku námi hefur
gagnast þér mest í klíník? Sú þekking sem
hefur gagnast mér mest er líklega líffærafræði
og lífeðlisfræðin. Sýklaog veirufræðin fannst
mér vera fyrsta fagið sem kom inn á klíníska
læknisfræði, man hvað mér fannst það
skemmtilegt. Samskiptafræðin var líka mjög
gagnleg. Sérstaklega voru líkamsskoðanirnar,
klínísku æfingarnar og umræðuhóparnir
kærkominn undirbúningur fyrir klíníkina.
Magnús Karl sem kenndi lyfjafræðina á
þriðja ári afsannaði kenningu mína um að
ég væri með áunnin athyglisbrest. Kennslan
var matreidd á einstaklega áhuga verðan og
hagnýtan hátt og manni tókst að halda þræði
heilu klukkutímana án vandræða.
Hvaða þekking frá preklínísku námi
hefur gagnast þér minnst í klíník? Stór
hluti áfanganna af fyrsta ári eru horfnir í
gleymskusvarthol og eiga kannski aldrei
afturkvæmt þaðan. Held að þeir séu mögulega
frekar kenndir til málamynda því það er
hálfhallærislegt að útskrifast sem læknir án
þess að hafa lært nokkuð í til dæmis efnafræði
og lífrænni efnafræði.
Svo voru aðrir áfangar sem voru bagalega
kenndir. Mikil áhersla var lögð á smáatriði
á kostnað grunnatriða svo efnið varð
miklu flóknara en það hefði þurft að vera.
Taugalíffærafræðin og ónæmisfræðin standa
líklega hæst upp úr, þarna kom Google frændi
oft til bjargar.
Er eitthvað sem þú vildir hafa gert öðruvísi?
Ég tók meðvitaða ákvörðun um að reyna
að læra mér til gagns frekar en að einblína
á háar einkunnir þegar ég byrjaði í læknadeild.
Það er áskorun sem getur verið erfið fyrir
einkunnaperrana í deildinni. Það að eyða orku
Hvernig
fór fyrir
líffæra þeganum
sem svindlaði á
biðlista fyrir corneal
transplanti?
– Honum var
gefið hornauga.