Læknaneminn - 01.04.2018, Page 50

Læknaneminn - 01.04.2018, Page 50
Fr óð le ik ur 50 Taro er 24 ára gamall maður sem býr með foreldrum sínum í litlu einbýlishúsi í útjaðri Tókýó. Herbergið hans er á annarri hæð og hefur hann eytt síðustu fimm árum að mestu innan veggja herbergisins. Hann hefur nánast ekkert farið út fyrir herbergið megnið af þeim tíma. Faðir hans starfar sem millistjórnandi hjá stóru fyrirtæki og er mikið að heiman. Móðir hans er húsmóðir og hefur að mestum hluta séð um uppeldi barnanna, þrif, eldamennsku og heimilisbókhaldið. Litla systir Taro sem er 17 ára er önnum kafin að undirbúa sig fyrir inntökupróf í háskóla og einnig hefur hún verið að æfa tennis. Taro sefur fram eftir degi og vaknar síð­ degis. Þegar hann er vakandi er hann að vafra á internetinu, spila tölvuleiki og lesa teiknimyndasögur. Hann hefur ekki farið í bað í nokkrar vikur. Móðir hans eldar fyrir hann mat sem hún ber fram á bakka og setur fyrir framan herbergið hans. Hann borðar alltaf einn inni hjá sér. Í herberginu hans er allt í drasli, þar er fullt af tómum snakkpokum, dósum og flöskum, mangabókum og tölvuleikjum. Taro var lagður í einelti á efri árum grunnskóla en bekkjarfélagar hans hunsuðu hann vísvitandi og leyfðu honum ekki að vera með. Honum gekk lengst af vel í námi en hann hætti að mæta vel í framhaldsskóla þar sem honum gekk illa félags lega. Vegna lélegrar mætingar féll hann að lokum úr framhaldsskóla og í kjöl farið fór hann að halda sig meira og meira inni í herberginu sínu. Nú stígur hann ekki út úr herberginu sínu nema til þess að baða sig stöku sinnum og nota klósettið. Þau fáu skipti sem hann fer út úr húsi er það um miðja nótt þegar lítið er um manna ferðir. Hann á enga vini, er ekki í vinnu og er algjörlega óvirkur í félags legum samskiptum. Hann hefur varla talað við foreldra sína síðustu þrjú árin. Hann verður reiður og sparkar í veggi þegar móðir hans hvetur hann til þess að koma út úr herberginu sínu. Ástandið hefur valdið öðrum fjölskyldu meðlimum miklum áhyggjum og kvíða auk þess að vera foreldrum hans fjárhagsleg byrði. Ofangreint tilfelli er skáldað af greinar­ höfundi en byggist á mörgum sjúkratilfellum og lýsingum á fólki sem fellur undir fyrirbærið hikikomori. Hugtakið er vel þekkt meðal fræðimanna og almennings í Japan og hefur á síðustu árum komið fram á Vesturlöndum en það er ólíklegt að hugtakið hikikomori hringi bjöllum hjá Íslendingum. Í stuttu máli er hikikomori hugtak sem notað er yfir fólk sem hefur dregið sig í hlé félagslega og einangrar sig í lokuðu rými, oftast herbergi eða íbúð, í að minnsta kosti sex mánuði. Hikikomori heilkennið (e. Hikikomori syndrome) er ekki eiginleg geðgreining sem finna má í greiningarskilmerkjum DSM­5 eða ICD­10. Japanska ríkið hefur haft ofan­ greinda skilgreiningu til viðmiðunar þegar rætt er um hikikomori.1 Nýlega settu Teo og Graw fram tillögu um greiningarskilmerki fyrir DSM­5 sem má sjá í Töflu I.2 Orðið hikikomori kemur af sögninni „hikikomoru“ sem þýðir bókstaflega „að toga inn“, „að loka sig af inni í rými“ eða „að draga sig í hlé“. Orðið var fyrst notað í Japan þegar verið var að þýða heitið félagsleg ein angrun (e. Social Withdrawal) sem kemur fyrir sem eitt af einkennum þunglyndis og geð klofa í greiningarskilmerkjum DSM­III. Á japönsku var það beinþýtt sem „Shakai-teki hikiko mori“ og var síðar stytt í daglegu tali sem hikikomori.3 Árið 2010 kom út faraldsfræðirannsókn á vegum ríkisstjórnar Japans um hikikomori. Þá kom í ljós að um 696.000 einstaklingar í Japan á aldrinum 15­39 ára féllu undir skilgreiningu hikikomori að einu eða öllu leyti. Gerð var sambærileg rannsókn árið 2016 en þá kom í ljós að fjöldi þeirra sem féllu undir sömu skilgreininguna á hikikomori hafði lækkað niður í 541.000 manns. Ástæðan fyrir þessari lækkun í tíðni er líklega sú að þær faraldsfræðirannsóknir sem hafa verið gerðar um hikikomori á vegum japönsku ríkisstjórnarinnar telja ekki með þá sem eru eldri en 39 ára. Í könnuninni sem gerð var árið 2010 voru 23.7% þeirra sem voru hikikomori á aldrinum 35­39 ára. Því er hægt að áætla að könnunin sem var gerð árið 2016 hafi ekki náð til þess hóps sem komin er yfir þessi aldurstakmörk. Hækkandi aldur þeirra sem eru með hikikomori er orðinn áberandi í samfélaginu í Japan. Eins og fyrr segir er langalgengast að þeir sem hafa lokað sig af inni í herbergjum sínum búi í foreldrahúsum. Með hækkandi aldri þeirra sem eru hikikomori hækkar einnig aldur foreldra þeirra. Það hefur færst í aukana að foreldrar sem komnir eru vel yfir sjötugsaldurinn lendi í líkamlegum, and legum og fjárhagslegum erfiðleikum sem tengjast aðstæðum barna sinna sem eru hikiko- mori. Ekki er mikill kynjamunur á hikiko mori en um sex af hverjum tíu sem eru hikikomori í Japan eru karlmenn.4 Ein af þeim spurningum sem vakna oft í tengslum við umræður um hikikomori er hvort þetta fyrirbæri sé einstakt fyrir japanskt samfélag eða hvort það fyrirfinnist í öðrum löndum. Þegar fyrst var talað um hikikomori þá var mikil áhersla lögð á að þetta væri sérjapanskt vandamál og þekktist ekki í öðrum löndum. Fræðimenn í Japan og annars staðar í heiminum álitu að það væri eitthvað sérstakt í uppbyggingu japansks samfélags og eitthvað menningarbundið sem ýtti undir það að ungt fólk tæki þá ákvörðun að loka sig inni og slíta tengsl við umhverfið.3 Á undanförnum árum hefur hugtakið hikikomori þó orðið þekktara í öðrum löndum en Japan og árið 2012 gerðu Kato et al. könnun á meðal heilbrigðisstofnana Hikikomori Anna María Toma læknanemi á fimmta ári 2017-2018 Halldóra Jónsdóttir sérfræðingur í geðlækningum og yfirlæknir á bráðageðdeild
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.