Læknaneminn - 01.04.2018, Blaðsíða 96
Sk
em
m
tie
fn
i o
g
pi
st
la
r
Hvað einkennir góðan lækni? Auðmýkt,
þolin mæði, að hugsa í lausnum en ekki vanda
málum, hafa meðúð en geta sett mörk til að
verja sig.
Er eitthvað sem þú hefðir viljað gera öðru-
vísi? Finna mína ábyrgðartilfinningu fyrr.
Hvaða ráð myndir þú gefa sjálfri þér þegar
þú varst nýútskrifaður læknir? Hér um bil
allt sem gerist í vinnunni er námstækifæri.
Nýttu þau.
Hefur þú önnur ráð eða skilaboð sem þú vilt
koma til nýútskrifaðra lækna? Sál og líkami
eru ein heild. Hugsaðu vel um hvort tveggja.
Sigurður Guðmundsson
sérfræðingur í smitsjúkdómalækningum og
prófessor við Læknadeild
Hvaða ráð myndir þú gefa nýútskrifuðum
læknum í dag?
Sinnið starfinu af heilindum og sýnið fagi
okkar tiltekna auðmýkt. Berið virðingu fyrir
sjúklingunum ykkar og látið þá finna að ykkur
sé ekki sama um þá. Gleymið því svo ekki að
það er líf utan starfsins, lifið því líka.
Hvaða vinnubrögð eru mikilvæg fyrir ný-
útskrifaða lækna að tileinka sér? Mikilvægt
er að afla sér þekkingar, viðhalda henni og
efla og beita eftir bestu getu. Það er verkefni
lífsins. Með öðrum orðum að koma sér upp
góðu klínísku nefi. Svo er ein af frumskyldum
okkar líka að kenna hvort öðru. Fólk lærir
mest af þeim sem eru komin einu til tveimur
árum lengra á þróunarbrautinni.
Hvað ber helst að forðast? Hroka, stærilæti
og mont. Ekkert okkar er gallalaust og enginn
hefur efni á hrokafullri framkomu, sama
hversu mikla guðsgjöf þeir telja sig vera.
Hvað einkennir góðan lækni? Hann þarf
að kunna sitt fag; þekkingin þarf að vera í
fingurgómunum. Hann þarf líka og ekki síður
að getað talað við sjúklinga sína, sýnt þeim
fram á að hann sé í þeirra liði og sýnt þeim
samhygð.
Er eitthvað sem þú hefðir viljað gera
öðruvísi? Nei, held ekki, hefði líklega gert
hið sama ef ég væri á byrjunarreit núna.
Lækningar eru heillandi fag. Sífellt er kostur
á að læra eitthvað nýtt og hið þríeina hlutverk
læknisins, að stunda lækningar, að búa til nýja
þekkingu með rannsóknum og koma henni á
framfæri með því að kenna hefur höfðað til
mín frá upphafi.
Hvaða ráð myndir þú gefa sjálfum þér þegar
þú varst nýútskrifaður læknir? Stjórnaðu
ákvörðunum lífsins sjálfur. Gott er að leita
ráða og álits en ákvörðunin sjálf á alltaf að
vera manns eigin, hvort sem hún er tekin
af íhugun eða tilfinningum. Lærði þetta
mjög snemma.
Hefur þú önnur ráð eða skilaboð sem þú vilt
koma til nýútskrifaðra lækna? Hlakkið til
fram tíðarinnar, hún er spennandi.
Halldóra Ólafsdóttir
yfirlæknir og sérfræðingur í geðlækningum
Hvaða ráð myndir þú gefa nýútskrifuðum
læknum í dag? Ekki detta niður í sjálfs
vorkunn yfir því að allt sé svo erfitt og
vinnu tíminn langur. Með því að ljúka námi
í læknisfræði hefur þú fengið einstakt tækifæri
í lífinu sem þú getur verið þakklát(ur) fyrir. Þú
átt enn marga valkosti þegar kemur að því að
velja sérgrein og munt vonandi eiga kost á afar
gefandi og mikilvægu starfi í framtíðinni.
Hvaða vinnubrögð eru mikilvæg fyrir ný-
útskrifaða lækna að tileinka sér? Vandvirkni,
nákvæmni, fræðilegur áhugi til að læra
meira í bland við virðingu og umhyggju
fyrir sjúklingum, aðstandendum þeirra og
samstarfsfólki.
Hvað ber helst að forðast? Hroka (hefði sjálf
mátt gera betur þar).
Hvað einkennir góðan lækni? Löngun til að
sjúklingurinn hans nái sem allra bestum bata
og/eða fái sem allra besta þjónustu og meðferð,
jafnvel þótt hann þurfi til þess aðstoð annarra
sem meira kunna. Fræðileg forvitni og vilji til
þess að gera betur og vera sífellt að bæta við
þekkingu sína. Kurteisi og hlýleg framkoma.
Er eitthvað sem þú hefðir viljað gera
öðruvísi? Já, fjöldamargt. Helst hefði ég viljað
hafa þessa 40 ára starfsreynslu mína þegar ég
var nýútskrifuð en það gerir víst enginn. Sumt
af því sem ég hefði viljað gera öðruvísi er
einkamál mitt en af öðru má nefna að ég vildi
að ég hefði aflað mér vísindareynslu snemma
á starfsferlinum.
Hvaða ráð myndir þú gefa sjálfri þér þegar
þú varst nýútskrifaður læknir? Ekki þessa
minnimáttarkennd, Halldóra. Þú ert alveg
jafndugleg og strákarnir!
Hefur þú önnur ráð eða skilaboð sem þú vilt
koma til nýútskrifaðra lækna? Hafðu gaman
af læknisstarfinu og njóttu lífsins líka utan
vinnunnar. Hláturinn lengir lífið.
Hvaða
geðlyf
náði aldrei
útbreiðslu í Kína
kommúnismans?
– MAO-inhibitorar.
Af hverju hóf augnlæknirinn að
njóta lífsins þegar hann fékk gláku?
– Því hann fékk svo mikinn aqueous
húmor
Hvað kallast þegar heilakirurg
í þjálfun gerir frontal lobectomiu
á eigin höfði?
– Sjálfsnám.