Læknaneminn - 01.04.2018, Blaðsíða 34
R
itr
ýn
t e
fn
i
34
Mælt er með fyrirbyggjandi aðgerð þar sem
eggjastokkar og eggjaleiðarar eru fjarlægðir
við 40 ára aldur eða þegar kona er tveimur
árum yngri en aldur yngsta þekkta tilfellis
af eggjastokkakrabbameini í fjölskyldunni
(Elísabet A. Helgadóttir, LSH, munnleg
heimild, júní 2018) .
Stigun
Krabbamein í eggjastokkum, eggjaleiðurum
og lífhimnu eru stiguð í fjögur stig við grein
ingu. Krabbamein er á stigi I sé það enn
bundið við eggjastokka eða eggjaleiðara. Hafi
sjúkdómurinn dreift sér utan eggjastokka
og eggjaleiðara en er þó enn bundinn við
grindarhol telst hann vera á stigi II. Á stigi III
hefur sjúkdómur dreift sér um kviðarhol og
á stigi IV eru komin fjarmeinvörp.84 Hvert stig
hefur svo nákvæmari undirflokka (sjá Töflu
IV).84 Flest ífarandi þekjufrumukrabbamein
greinast á stigi III eða um helmingur tilfella.
Um fjórðungur greinist á stigi I og um
1215% á stigum II eða IV.66,74 Aðra sögu er þó
að segja af jaðaræxlum en þar greinast 7090%
á stigi I.77,85
Meðferð
Skurðaðgerð er í flestum tilfellum fyrsta og
mikil vægasta meðferð krabbameins í eggja
stokkum, eggja leiðurum og lífhimnu. Ábend
ing er fyrir aðgerð hjá öllum sjúklingum
með eggjastokka krabbamein óháð vefja gerð
og stigi nema aðrar heilsufars legar ástæður
mæli gegn því.86 Markmið aðgerðar er að
fjar lægja allan æxlisvöxt, fá vefjagreiningu og
meta stig sjúkdóms.86 Fyrir aðgerð skal fram
kvæma myndgreiningar rannsóknir til að meta
æxlisdreifingu og meinvörp og mæla upphafs
gildi CA125 til að meta svörun við meðferð.87
Aðgerðir eru oftast gerðar með kviðarhols
opnun (e. laparotomy) en sé æxlisvöxtur ekki
mikill eða dreifður er kviðarholsspeglun (e.
laparoscopy) einnig möguleiki.88 Í flestum
tilfellum eru eggja stokkar, eggleiðarar, leg
og netja (e. omentum) fjarlægð auk alls
sjáanlegs skurðtæks æxlisvaxtar. Sé kona
þó með sjúkdóm á stigi IA og óskar þess að
viðhalda frjósemi er möguleiki að fjarlægja
annan eggjastokk og –leiðara.87 Einnig getur
komið fyrir að ekki sé hægt að fjarlægja allan
æxlisvöxt vegna samvaxta eða annarra orsaka.87
Magn þess æxlisvaxtar sem eftir verður í lok
aðgerðar hefur marktæk áhrif á lifun sjúklinga
og því er mikilvægt að fjarlægja öll sjáanleg
æxli eins og kostur er.74,8992
Hjá sjúklingum með illkynja þekjufrumu
sjúkdóm á stigi III eða IV tekur tvíþátta lyfja
meðferð samsett af einu platínumlyfi og einu
taxenelyfi við eftir aðgerð. Undantekning
er þó gerð sé sjúklingum ekki treyst í slíka
meðferð og er þá oft gefin einþátta meðferð
með platínumlyfi. Þau lyf sem oftast eru
notuð eru lyfin carboplatín og paclitaxel
(Taxol®).93,94 Þau eru gefin í bláæð á þriggja
vikna fresti, oftast í sex skipti. Reynist
krabbameinið vera á stigi I eða II hafa þættir
eins og vefjagerð og gráða æxlisvaxtar áhrif á
hvort þörf er á lyfjameðferð eftir aðgerð og
hvaða meðferð er valin.94 Eru þá stundum
gefnir færri lyfjaskammtar en hjá konum með
lengra genginn sjúkdóm.95 Oftast er ekki þörf
á lyfjameðferð eftir aðgerð hjá konum með
jaðaræxli af stigi I eða II en sé sjúkdómur
lengra genginn er lyfjameðferð gjarnan veitt.77
Ýmsar nýjungar í lyfjagjöf hafa komið fram
á undanförnum árum. Hlutfall sjúklinga sem
fær lyfjameðferð fyrir aðgerð (e. neo adjuvant
therapy) hefur farið vaxandi að undan förnu
en rannsóknir sýna að hjá ákveðnum hópi
sjúklinga geti meðferð með krabbameins
lyfjum fyrir aðgerð aukið líkur á að brottnám
alls æxlis heppnist.94,96,97 Þetta á aðallega við
þá sjúklinga sem eru með mikinn æxlisvöxt
í kviðarholi við greiningu og ólíklegt
þykir að brottnám alls æxlisvaxtar takist.
Síðustu ár hafa ýmis líftæknilyf komið inn
í meðferð eggjastokkakrabbameins. Ber þar
hæst að nefna bevacizumab (Avastin®) og
PARPhemla (e. poly-ADP-ribose polymerase
inhibitors). Bevacizumab er einstofna mótefni
gegn vaxtarþáttum æðanýmyndunar (e.
Tafla IV. FIGO-stigun krabbameins í eggjastokkum, eggjaleiðurum og lífhimnu.84
I Æxli bundið við eggjastokka eða eggjaleiðara
IA
Æxli í öðrum eggjastokk eða eggjaleiðara, hjúpur eggjastokks órofinn, enginn
æxlisvöxtur á yfirborði eggjastokka eða eggjaleiðara og engar krabbameinsfrumur
í kviðarholsskolvökva
IB Æxli í báðum eggjastokkum eða eggjaleiðurum en uppfyllir annars sömu skilyrði
og IA
IC Æxli í öðrum eða báðum eggjastokkum/eggjaleiðurum ásamt einhverju
eftirfarandi:
IC1 Rof á eggjastokk í aðgerð
IC2 Rof á hjúp eggjastokks fyrir aðgerð eða krabbameinsvöxtur á yfirborði
eggjastokka eða eggjaleiðara
IC2 Krabbameinsfrumur í kviðarholsskolvökva
II
Æxli bundið við grindarholið: Æxli í öðrum eða báðum
eggjastokkum/eggjaleiðurum með dreifingu í grindarhol eða
frumlífhimnukrabbamein (e. primary peritoneal cancer)
bundið við grindarhol
IIA Dreifing til legbols og/eða eggjaleiðara og/eða eggjastokka
IIB Dreifing í annan vef í grindarholi.
III
Æxlisdreifing utan grindarhols en innan kviðarhols: Æxli í öðrum
eða báðum eggjastokkum/eggjaleiðurum með dreifingu í lífhimnu
utan grindarhols, lífhimnukrabbamein utan grindarhols eða
meinvörp til aftanskinueitla (e. retroperitoneal lymph nodes)
IIIA1 Meinvarp til aftanskinueitla eingöngu
IIIA2 Smásæ æxlisdreifing í lífhimnu utan grindarhols með eða án meinvarpa til
aftanskinueitla
IIIB Stórsæ lífhimnumeinvörp utan grindarhols, 2 cm eða minni í mesta þvermál með
eða án meinvarpa til aftanskinueitla
IIIC Stórsæ meinvörp í kviðarholi, stærri en 2 cm í mesta þvermál með eða án
meinvarpa til aftanskinueitla
IV Fjarmeinvörp utan lífhimnu
IVA Krabbameinsfrumur í fleiðruvökva
IVB Meinvörp í starfsvef (e. parenchyma) kviðarholslíffæra eða meinvörp utan
kviðarhols þar með taldir náraeitlar og eitlar utan kviðarhols