Læknaneminn - 01.04.2018, Side 54

Læknaneminn - 01.04.2018, Side 54
Fr óð le ik ur 54 Réttarlæknisfræði er grein innan læknis­ fræðinnar sem fáir kynnast vel í náminu en hún hefur töluverða sérstöðu. Stór hluti greinar innar snýst um að framkvæma réttar­ krufningar en þær eru gerðar til þess að ákvarða dánaratvik og ­orsök. Dánaratvik á við um það hvernig dauðann bar að garði. Dánaratvik eru náttúruleg þegar sjúkdómur er dánarorsökin en ónáttúruleg þegar ytri öfl valda dauðanum. Hið síðarnefnda má flokka í slys, manndráp eða sjálfsvíg. Dánarorsök er sá sjúkdómur eða áverki sem leiðir til stöðvunar á lífsnauðsynlegum þáttum. Í leiðbeiningum frá Evrópuráði í réttar­ læknisfræði (e. European Council of Legal Medicine) fyrirfinnast þrjár mismunandi ábend ingar fyrir réttarkrufningu. Sú fyrsta er grunur um aðild annars aðila að dauða hins látna hvort sem um er að ræða að yfirlögðu ráði eða vegna vanrækslu. Önnur ábendingin er skyld hinni fyrstu en það er til að reyna að komast að dánarorsök og útiloka aðild annars einstaklings að dauða hins látna. Að lokum eru réttarkrufningar framkvæmdar til að bera kennsl á hinn látna. Landlæknisembættið hefur gefið út leiðbeiningar um hvaða andlát skulu tilkynnt til lögreglu sem byggð eru á lögum um dánarvottorð, krufningar og fleira (sjá Töflu I). Læknir sem annaðist sjúklinginn skal tilkynna andlátið en það er lögregla en ekki læknar sem taka ákvörðun um réttarkrufningu og eru þær þannig framkvæmdar að beiðni lögregluyfirvalda. Ekki leiða allar tilkynningar til réttarkrufningar. Áður en krufning hefst ætti réttarlæknirinn að vera upplýstur um aðdraganda málsins til dæmis um möguleg vopn og ferla sem leiddu til andláts, aðstæður og stað þar sem líkið fannst. Mikilvægt er að krufning fari sem fyrst fram og að fram að krufningu sé farið varlega með líkið og að ekki sé hróflað við ástandi þess. Til dæmis getur verið rétt að setja poka um hendur líks til að freista þess að ná af þeim snefilgögnum. Sem dæmi um slíkt má nefna að ef grunur er um sjálfveitta skotáverka má reyna að ná seinna byssupúðri af höndunum. Einnig er hægt að ná DNA­sýni sem tengja má við geranda. Mat á dánarstund fer fram fram í völdum tilfellum og þarf þá að kalla til réttarlækni á vettvang. Á þessu stigi þarf einnig að meta þörf á myndrannsóknum. Að auki við hefðbundnar krufningar eru framkvæmdar hliðarrannsóknir sem geta reynst mjög hjálplegar við að ákvarða dánarorsök og ­atvik. Ytri skoðun Krufningin hefst á ytri skoðun. Byrjað er á að lýsa fötum hins látna. Þá er sérstaklega mikilvægt að lýsa og skrásetja hverskonar skemmdir og bletti, svo sem rifur og blóðbletti, og tengja þær við áverka á líkinu ef við á. Einnig ber að lýsa því sem ekki ber saman við ástand líksins. Næst ber að skoða alla fleti líksins án klæða og er líkið ljósmyndað. Byrjað er á að lýsa kyni, áætluðum aldri, holdafari og líkamsbyggingu, húðlit og sérkennum svo sem húðflúrum og örum. Einnig skal lýsa rotnunarástandi líksins. Þá skal lengdar­ og þyngdarmæla líkið. Sem og við aðrar læknisskoðanir skal svo skoða líkamann á kerfisbundinn hátt. Yfirleitt er byrjað á hárinu og allur líkaminn skoðaður í bak og fyrir niður að iljum. Sérstaka athygli þarf að veita nokkrum þáttum. Alla áverka skal mæla og lýsa vel með tilliti til staðsetningar, litar, lögunar, gróanda og fleira. Þetta á einnig við um áverka sem hlutust við endurlífgun eða önnur læknisfræðileg inngrip. Teknar eru myndir af áverkunum. Í sumum tilvikum gæti þurft að skera í áverkann, svo sem til að meta marbletti, eða skera áverkann á brott til frekari vefjafræðilegra rannsókna. Skoða skal öll líkams op vel, bæði náttúruleg og ónáttúruleg. Taka skal viðeigandi sýni svo sem lífsýni (eins og líkamsvessa og vefjasýni) og snefilsýni (til dæmis byssupúður) frá líkinu áður en innri líkamsskoðun hefst. Innri skoðun Opna ætti inn á kúpu­, brjóst­ og kviðarhol í lögum og leita eftir merkjum um áverka í hverju lagi fyrir sig. Þannig er til dæmis mikilvægt að fjarlægja beinhimnuna af höfuðkúpunni til að athuga hvort sjáist brot eða sprungur. Þegar inn er komið ætti að athuga hvort loft sé í líkamsholunum. Þá ætti að mæla vökva svo sem fleiðruvökva, gollurshússvökva, þvag og blóð. Sérstaklega skal veita athygli blóði sem safnast hefur fyrir, þá einna helst á stöðum þar sem það ætti ekki að vera eins og í gollurshúsi eða kviðarholi. Líffærin ættu að vera skoðuð í upprunalegri legu sinni áður en þau eru fjarlægð og útliti þeirra og áverkum lýst. Eftir það ætti að fjarlægja þau úr líkamanum og skoða vandlega. Líffærin eru svo krufin á viðurkenndan og kerfisbundinn hátt sem tekur tillit til áverka og ummerkja um sjúkdóma eða skaða. Einnig eru klipptar upp æðar, til dæmis kransæðar, slagæðar í heila, ósæð og greinar hennar og portæð (lat. vena portae hepatis). Magainnihald er skoðað til dæmis til að leita eftir leifum af töflum og til að greina hvað manneskjan hefur borðað. Tekin eru sýni úr flestum líffærum fyrir vefjafræðilega greiningu. Hliðarrannsóknir Myndrannsóknir Notkun á myndrannsóknum hefur aukist í réttarlæknisfræði. Tölvusneiðmynd eftir andlát varðveitir upplýsingar um líffæri og meinsemdir hins látna. Þar að auki getur tölvusneiðmynd eftir andlát hjálpað til við að svara spurningum sem getur reynst erfitt að Signý Malín Pálsdóttir læknanemi á fimmta ári 2017-2018 Pétur Guðmann Guðmannson sérfræðingur í réttarlækningum Réttarkrufning Ábendingar, framkvæmd og hliðarrannsóknir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.