Læknaneminn - 01.04.2018, Side 134

Læknaneminn - 01.04.2018, Side 134
R an ns ók na rv er ke fn i 3 . á rs n em a 20 17 13 4 hefji TNFi meðferð fyrir meðgöngu. Nýburum kvenna með alvarlega liðbólgusjúkdóma vegnar jafnvel og nýburum annarra kvenna. Þörf er á frekari rannsóknum með stærra þýði og því er fyrirhugað að leggja þessi gögn fram í samnorræna rannsókn. Helstu gæðavísar og árangur á göngudeild barna og unglinga með sykursýki á Íslandi Sigríður Þóra Birgisdóttir1, Ragnar Bjarnason1,2, Elísabet Konráðsdóttir2,3, Soffía Jónasdóttir2 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2 Barnaspítali Hringsins, 3Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands Inngangur: Sykursýki af tegund 1 er einn algengasti langvinni sjúkdómurinn meðal barna og unglinga og hefur nýgengi farið vaxandi undanfarna áratugi. Eitt af meginmarkmiðum meðferðar hjá börnum og unglingum er að blóðsykurgildi séu sem næst eðlilegum mörkum, en því markmiði er oft erfitt að ná. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi góðrar blóðsykurstjórnunar hjá sykursjúkum til að koma í veg fyrir eða seinka mjög alvarlegum síðbúnum fylgikvillum. Markmið rannsóknarinnar er að meta helstu gæðavísa og árangur á göngudeild barna og unglinga með sykursýki á Íslandi. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin náði til allra barna og unglinga yngri en 18 ára með sykursýki af tegund 1 sem voru í eftirfylgd við göngudeild Barnaspítala á tímabilinu 2006­2016. Upplýsingar voru fengnar úr Swediabkids gagnagrunninum, þar sem helstu breytur eru skráðar við hverja komu sjúklings. Blóðsykurstjórn var metin út frá mælingum HbA1c, og meðaltal mælinga fyrir hvert barn tekið. Einnig var skoðuð tíðni alvarlegra blóðsykurfalla og blóðsýringa. Þá voru nokkrir gæðavísar kannaðir, s.s. notkun á insúlíndælu og hve regluleg skimun á alvarlegum fylgikvillum er. Niðurstöður: Heildarfjöldi barna í eftirfylgd á tímabilinu var 262 (137 drengir og 125 stúlkur), með samtals 5590 komur á göngudeild. Meðalfjöldi barna í eftirliti ár hvert var 116.9, með að meðaltali 4.21 komur. Meðalaldur barna var 13.5 ár og meðaltímalengd með sjúkdóminn 3.6 ár. Ársmeðalgildi HbA1c á tímabilinu var 66.4­70.8 mmol/mol. Meðalgildi HbA1c var 67.81 mmol/mol fyrir allan sjúklingahópinn. 18% barna náðu meðferðarmarkmiðum samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum HbA1c < 57 mmol/mol en 41.2% barna voru með HbA1c > 70 mmol/mol að meðaltali. Stúlkur voru með marktækt hærra meðalgildi HbA1c en drengir og marktæk hækkun var á HbA1c eftir aldri hjá stúlkum. Ekki var marktækur munur á HbA1c fyrir og eftir uppsetningu insúlíndælu. Tíðni alvarlegra blóðsykurfalla á rannsóknartímabilinu var 2.77 atvik / 100 sjúklingaár og tíðni blóðsýringa var 1.45 atvik / 100 sjúklingaár. Skimun fyrir síðbúnum fylgikvillum er ekki nægilega markviss og þarf m.a. að bæta skráningu og samræma vinnulag. Ályktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að árangur meðferðar er ágætur í alþjóðlegum samanburði en nokkuð síðri í samanburði við hin Norðurlöndin þar sem aukinn árangur hefur náðst undanfarin ár. Mikilvægt er að fá sem nákvæmasta mynd af meðferðarárangri hérlendis til að hægt verði að ráðast í markvissar aðgerðir til að bæta árangur og auka öryggi og lífsgæði barna og unglinga með sykursýki á Íslandi. Bráðar blæðingar frá neðri hluta meltingarvegar: Langtímahorfur og tíðni endurblæðinga Silja Ægisdóttir1, Jóhann Páll Hreinsson2, Einar Stefán Björnsson1,2 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Landspítali Háskólasjúkrahús Inngangur: Bráð blæðing frá neðri hluta meltingar­ vegar er algengt heilsufarsvandamál sem leiðir í mörgum tilvikum til innlagnar á sjúkrahús. Fáar rannsóknir eru til sem fjalla um langtímahorfur sjúklinga með bráða blæðingu frá neðri hluta meltingarvegar. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða horfur þessara sjúklinga til 5 ára og þá þætti sem hafa forspárgildi fyrir endurblæðingu. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var þýðisbundin eftirfylgdarrannsókn og náði til allra sjúklinga sem leituðu á Landspítala á tímabilinu frá 1. janúar 2010 til 31. desember 2011. Gögnum frá 2010 var safnað á framsýnan hátt en 2011 gögnum var safnað með aftursýnum hætti. Upplýsingar um einkenni, orsök, meðferð, fylgisjúkdóma, lyfjanotkun og blóðgildi sjúklinga voru teknar saman. Viðmiðunarhópur samanstóð af sjúklingum sem voru speglaðir árið 2010 án þess grunur væri um blæðingu og var valinn með tilliti til aldurs og kyns. Niðurstöður: Alls greindust 323 sjúklingar með bráða blæðingu frá neðri hluta meltingarvegar á tímabilinu sem rannsóknin tók til. Kynjaskipting var nokkuð jöfn en konur voru 52%. Meðalaldur sjúklinganna var 64 ár (±21) og meirihluti þeirra (67%) var 60 ára og eldri. Ristilpokar (24%) voru algengasta orsök blæðinga og gyllinæð (15%) næst algengust. Tíðni endurblæðinga var 21% á eftirfylgdartímabilinu en 2,8% hjá viðmiðunarhópi. Cox aðhvarfsgreining leiddi í ljós að áhættan á endurblæðingum var 8x (95% öryggisbil 2,9­22) meiri í hópi blæðara miðað við viðmiðunarhóp þegar leiðrétt var fyrir aldri, fylgisjúkdómum og blóðþynnandi lyfjum. Þegar hópur þeirra sem blæddu aftur var borin saman við þá sem blæddu ekki aftur með einþátta tölfræðigreiningu voru marktækt fleiri úr hópi endurblæðara með ≥2 stig á Charlson fylgisjúkdóma skalanum. Lógistísk aðhvarfsgreining leiddi ekki í ljós forspárþætti fyrir endurblæðingu. Ályktanir: Um það bil 1 af hverjum 5 sem fá bráða blæðingu frá neðri hluta meltingarvegar koma til með blæða aftur á 5 ára tímabili og eru mun líklegri til þess heldur en viðmiðunarhópur. Aldur, fylgisjúkdómar og notkun blóðþynnandi lyfja virðast ekki geta spáð fyrir um hverjir blæða aftur. Nýir Íslendingar - Heilsufar nýrra Íslendinga sem koma í fyrstu skimun eftir flutning til Íslands á Barnaspítala Hringsins Stella Rún Guðmundsdóttir1, Valtýr Stefánsson Thors1,2, Ásgeir Haraldsson1,2, Ardís Henriksdóttir2, Gestur Pálsson2, Þórólfur Guðnason3 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Barnaspítali Hringsins, 3Embætti sóttvarnalæknis Inngangur: Innflytjendur eru alltaf að verða stærri hluti af íslensku samfélagi. Nýir Íslendingar eiga sér ólíkan bakgrunn. Sumir eru innflytjendur sem höfðu tíma til að undirbúa sig og völdu Ísland sérstaklega. Aðrir eru kvótaflóttamenn, einstaklingar sem eru að flýja stríð og er úthlutað Íslandi og enn aðrir hælisleitendur. Börn eru ættleidd til landsins frá ýmsum heimshlutum. Innflytjendur koma gjarnan frá landsvæðum þar sem heilbrigðiskerfið er ekki sambærilegt því íslenska og algengi smitsjúkdóma ólíkt því sem gerist hér. Vegna þessa setti embætti landlæknis ákveðnar verklagsreglur um að allir umsækjendur um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd sem og kvótaflóttamenn frá Mið­ og Suður­ Ameríku, þ.m.t. Mexíkó, Evrópu utan EES, Asíu eða Afríku skulu gangast undir læknisrannsókn vegna sóttnæmra sjúkdóma. Umsækjendur frá EES, Sviss, Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Nýja Sjálandi eða Ísrael þurfa ekki undirgangast læknisrannsókn. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvert sé algengi smitsjúkdóma hjá börnum sem flytjast til landsins, hvort algengi sé ólíkt eftir ástæðu komu til landsins eða upprunasvæðum. Einnig vildum við athuga hvort margir fleiri greinist með leynda berkla eftir að viðmiðið á jákvæðu Mantoux prófi breyttist. Að lokum kanna hvort ástæða sé til að breyta lista yfir þau lönd sem eru skimuð. Efni og aðferðir: Rannsókn þessi nær til allra barna sem komu í fyrstu skoðun á Barnaspítala Hringsins eftir komu til landsins á tímabilinu frá 1. janúar 2006 til 31. desember 2015 (n=1245). Notast var við gagnagrunn í formi læknabréfa sem teymi innflytjendamóttöku hefur haldið utan um og fengust upplýsingar með leit eftir ICD­10 greiningum í sögukerfi LSH. Niðurstöður: Alls undirgengust 1245 börn skimun á tímabilinu: 724 almennir innflytjendur, 68 flóttamenn, 106 hælisleitendur, 24 skiptinemar og 170 þar sem óljóst var hvernig komu væri háttað. Af börnunum sem undirgengust skimun voru 14,3% með smitsjúkdóm, einn eða fleiri. Flest voru með leynda berkla, 88 börn (7,1% af skimuðum) og sníkjudýr í saur 86 börn (7,4% af skimuðum). Þá voru 9 börn með lifrarbólgu B (0,76% skimaðra) og eitt barn með sárasótt (0,084%). Af leyndum berklum komu flestir frá Filipseyjum, 29 börn eða 17,9% allra sem komu þaðan og Póllandi, 19 börn eða 13,9% pólskra barna. Marktækt fleiri innflytjendur voru með leynda berkla fram yfir hælisleitendur og flóttamenn (p=0,00084). Alls fundust 15 tegundir meinvaldandi sníkjudýra í saur og voru algengustu: Giardia lamblia, Trichuris trichuria og Ascaris lumbricoides. Marktækt fleiri frá löndum sunnana Sahara (p=0,048) og frá Suður Ameríku (p=0,031) voru með sníkjudýr í saur. Einnig voru marktækt fleiri flóttamenn (p=0,0021) en fóru þeir allir í gegnum flóttamannabúðir. Einungis komu 37,4% barnanna með bólusetningaskírteini en af þeim voru 94% vel bólusett. Af börnum með skírteini voru 89,7% með MMR mótefni í blóði borið saman við 81,5% þeirra sem voru ekki með skírteini. Ályktun: Rannsóknin okkar leiðir í ljós að börn sem koma í skimun eru almennt hraust, inngrip af hálfu heilbrigðiskerfisins eru óþörf í flestum tilfellum og skimun mögulega of ítarleg á Barnaspítalanum. Helst fundust leyndir berklar og sníkjudýr í saur. Íhuga ætti að endurskoða lista yfir þau lönd sem eru skimuð fyrir leyndum berklum, með tilliti til Póllands og Eystrasaltslandanna. Hlutverk V-ATPasa í sortuæxlum Áhrif niðurfellingar undireininga V-ATPasa á innanfrumu sýrustig Surya Mjöll Agha Khan1, Sara Sigurbjörnsdóttir1, Eiríkur Steingrímsson1 1Læknadeild Háskóla Íslands Inngangur: Eitt af aðal einkennum illkynja krabbameina er lækkað sýrustig í nærumhverfi æxla, en það eykur frumufjölda, stuðlar að ífarandi vexti og myndun meinvarpa. Sýrustigi umhverfisins er að miklu leyti stjórnað af V­ATPösum en í krabbameinum verður gjarnan aukning á tjáningu þeirra í frumuhimnum. V­ATPasar eru vel varðveitt holensím sem er tjáð í öllum heilkjarnafrumum líkamans. Þeir eru samsettir úr 13 undireiningum sem skipt er upp í tvö virknisvæði, V0 og V1. Hið fyrrnefnda ,V0 svæðið, sér um flutning á róteindum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.