Læknaneminn - 01.04.2018, Síða 135

Læknaneminn - 01.04.2018, Síða 135
R an ns ók na rv er ke fn i 3 . á rs n em a 20 17 13 5 yfir himnuna en V1 svæðið sér um vatnsrof á ATP. Undireiningar V0 eru 5 og eru tilgreindar með litlum stöfum (a, c, c’’, d og e). Undireining a er aðal skynjari sýrustigs innan frumunnar. Hún er til í 4 mismunandi ísóformum en þau eru talin ákvarða staðsetningu V­ATPasans innan frumunnar. Í ljósi þess að V­ATPasar spila svo stóran þátt í illkynja hegðun krabbameina hafa þeir þótt fýsilegt lyfjaskotmark, sérstaklega vegna þess að nú þegar eru til lyf sem hamla virkni þeirra. Mikilvægt er að komast að því hvaða áhrif það hefur að fella niður tjáningu þeirra í krabbameinsfrumum. Markmið þessarar rannsóknar var að fella niður tjáningu á mismunandi ísóform undireiningar a og athuga áhrif þess á sýrustig innan frumunnar. Efniviður og aðferðir: Útbúnar voru stöðugar 501mel sortuæxlisfrumulínur sem tjáðu flúrmerkt ísóform undirieiningar a í V­ATPösum. Einnig voru búnar til genaferjur sem innihéldu miRNA svæði til niðurfellingar á þessum sömu V­ATPösum. Til þess að athuga virkni þeirra var miRNA genaferjunum var komið fyrir í þessum flúrljómandi sortuæxlisfrumulínum og minnkun á flúrljómun skoðuð með western blot og lagsjá (e. Confocal microscope). Þá var þróuð aðferð til að mæla sýrustig innan frumunnar með flúrljómandi sameind til þess að ákvarða hvort að niðurfelling á V­ATPösum gæti haft áhrif á það. Einnig var staðsetning a undireininganna skoðuð í lagsjá með samlitun V­ATPasa og próteina með þekkta innanfrumustaðsetningu. Niðurstöður: Ekki var hægt að ákvarða með óyggjandi hætti hvort að miRNA­in gætu fellt niður tjáningu á V­ATPösum innan frumunnar. Enginn sjáanlegur munur var á tjáningu V­ATPasanna í lagsjánni í samanburði við frumur án miRNA og tjáning V­ATPasa próteina á Western blotti var ekki marktækt öðruvísi þegar þau voru felld niður í samanburði við viðmið. Mæling á sýrustigi var ekki markverð vegna lítils merkis frá flúrljómandi sameindinni og því var ekki hægt að ákvarða hvort niðurfelling á V­ATPösum með miRNA hefur áhrif á sýrustig innan fruma. Samlitun V­ATPasanna við prótein með þekkta staðsetningu leiddi í ljós að a2 ísóformið var helst staðsett á sein­innblöðrum og endurvinnslu innblöðrum, a3 ísóformið var helst staðsett í frymisnetinu og á frumuhimnunni og a4 ísóformið var helst staðsett í frymisneti, golgi kerfinu, innblöðrum og á frumuhimnunni. Ályktanir: Þar sem ekki var hægt að draga ályktanir um áhrif niðurfellingar V­ATPasa með miRNA er mikilvægt að skoða það betur og notast við aðrar aðferðir til þess. Einnig væri hægt að þróa aðrar aðferðir við mælingar á sýrustigi innanfrumu eða notast við nýrri sameindir til að athuga hvort betra merki næst. Samlitun leiddi í ljós að staðsetning V­ATPasans er að mörgu leyti sambærileg við það sem aðrar rannsóknir hafa sýnt með einhverjum undantekningum þó. Áhugaverð er tjáning a3 og a4 á frumuhimnunni en þær upplýsingar væri hægt að nota í meðferðarþróun gegn meinvarpandi sortuæxlum. Brátt kransæðaheilkenni hjá sjúklingum með eðlilegar kransæðar Sævar Þór Vignisson1, Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir2, Ylfa Rún Sigurðardóttir1, Karl Andersen1,2 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Hjartadeild LSH Inngangur: Sjúklingar með brátt kransæðaheilkenni hafa til þessa verið taldir vera með rof á æðakölkunarskellu með eftirfylgjandi blóðsegamyndun og bráðri blóðþurrð í hjartavöðva. Á undanförnum árum hefur komið í ljós að hjá hluta þessara sjúklinga er ekki um að ræða rof á æðakölkunarskellu heldur aðrar orsakir sem valda þessum klínísku einkennum. Markmið rannsóknarinnar var að finna algengi og undirliggjandi orsakir bráðs kransæðaheilkennis hjá þeim sjúklingum sem reynst hafa verið með eðlilegar eða nær eðlilegar kransæðar við hjartaþræðingu (<50% þrengsli). Sjúkdómsgreiningar voru endurskoðaðar og sjúklingar flokkaðir niður í 6 fyrirfram ákveðna flokka : a) fleiðurmyndun á æðaþeli (e. plaque erosion), b) broddþensluheilkenni (e. Takostubo cardiomyopathy), c) hjartavöðvabólga (e. myocarditis), d) kransæðakrampi (e. spasmi), e) týpu 2 hjartavöðvadrep (e. infarct), f ) annað og óútskýrt. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er afturskyggð gagnarannsókn og leitað var í gagnagrunni hjartaþræðingarstofu LSH (SCAAR). Rannsakaðir voru sjúklingar sem sendir voru í hjartaþræðingu vegna bráðs kransæðaheilkennis (STEMI / NSTEMI) á Landsspítalanum frá 1.janúar 2012 til 31.desember 2016 en reyndust vera með eðlilegar kransæðar eða nær eðlilegar kransæðar. Eftirfarandi breytur voru skoðaðar: aldur, kyn, hæð, þyngd, BMI stuðull, áhættuþættir kransæða sjúkdóma (reykingar, háþrýstingur, kólesteról, sykursýki og ættarsaga) og niðurstöður hjarta þræðinga. Síðan voru niðurstöður hjartalínurits, hjarta ómunar, segulómunar og blóðmælinga metnar til þess að komast að undirliggjandi orsökum sjúklinganna. Tölfræði úrvinnsla var gerð í Microsoft Excel og RStudio. Niðurstöður: Á rannsóknartímabilinu voru 1708 sem fengu greininguna STEMI / NSTEMI og voru sendir í hjartaþræðingu. Af þeim reyndust 225 (13,2%) vera með eðlilegar eða nær eðlilegar kransæðar. Hlutfall þessara sjúklinga jókst úr 3,0% árið 2012 í 9,5% 2013 og í 15,0% árið 2014. Árið 2015 var það 15.3% og 14.4% árið 2016. Alls fengu 72 (32%) sjúklinga greininguna fleiðurmyndun, 33 (14,7%) hjartavöðvabólgu, 28 (12,4%) broddþensluheilkenni, 30 (13,3%) týpu tvö hjartavöðvadrep, 31 (13,8%) kransæðaspasma og 31 (13,8%) fengu greininguna annað og óútskýrt. Ályktanir: Hlutfall þessara sjúklinga hefur aukist síðust ár og er tilkoma hánæms troponin T prófs árið 2012 talin eiga stóran þátt í því. Einungis 23 (10,2%) sjúklinganna voru segulómaður og 164 (74,2%) hjartaómaðir og því gat verið erfitt að komast að undirliggjandi orskum allra sjúklinganna. Engar skýrar verklagsreglur eru til á Landsspítalanum um uppvinnslu á sjúklingum með brátt kransæðaheilkenni og eðlilegar kransæðar. Fyrirhugað er að nýta þá reynslu sem fæst af þessari rannsókn til að útbúa verklagsreglur um uppvinnslu og eftirfylgni þessara sjúklinga. Þannig verður hjartaómskoðun, segulómskoðun, vinstri slegilsmynd í þræðingu (e. left ventricular angiogram) og ákveðnir lífvísar mældir kerfisbundið í framsýnni rannsókn á þessum rannsóknarhóp. Árangur rafvendinga við gáttatifi og -flökti Unnar Óli Ólafsson1, Davíð O. Arnar1,2, Karl Andersen1,2 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Hjartadeild og hjartagátt LSH Inngangur: Gáttatif og ­flökt er algengasta viðvarandi hjartsláttartruflunin og getur haft mikil einkenni í för með sér. Rafvending er mikilvægur hluti í meðferð við þessum sjúkdóm, ásamt blóðþynningu og hraða­ og taktstillandi lyfjum. Nýlegt MB­LATER skor má hugsanlega yfirfæra á sjúklinga sem gengist hafa undir rafvendingu en það var hannað til þess að meta áhættu þeirra sem hafa haldist í sínus takti í 1 ár eftir brennsluaðgerð á að fara aftur í gáttatif. Þetta áhættumat tekur tillit til kyns, greinrofs, stærðar vinstri hjartagáttar, gerðar af gáttatifi og hvort endurkoma þess hafi átt sér stað innan 90 daga eftir aðgerð. Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt: Annars vegar að skoða hversu lengi gáttatifssjúklingar héldust í sínus takti eftir rafvendingu. Hins vegar að meta hvaða þættir hafa áhrif á taktstillingu og hvort MB­ LATER hafi forspárgildi um viðhald sínus takts eftir rafvendingu. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn og náði til allra þeirra sem komu í sína fyrstu rafvendingu á LSH á árunum 2014 og 2015. Tímalengd þessara sjúklinga í sínus takti var reiknuð út frá dagsetningu rafvendingar og hvenær staðfest var hvort viðkomandi sjúklingur væri farinn aftur í gáttatif/­flökt eða hvort hann væri í enn sínus takti. Upplýsingar um lyfjameðferð og MB­LATER skor var reiknað út frá upplýsingum úr sjúkraskrám. Niðurstöður: Af 438 sjúklingum voru 293 (66,9%) karlar og 145 (33,1%) konur. Meðalaldur þeirra var 67,6 ± 12,4 ár. Eftir sex mánuði voru 47,3% í sínus takti en 34,8% eftir eitt ár. Konur voru hlutfallslega á fleiri lyfjum en karlar en lyfjameðferð hafði ekki marktæk áhrif á tímalengd í sínus takti. Stækkun á vinstri gátt (≥47 mm), metið með ómskoðun, hafði neikvætt forspárgildi fyrir tímalengd sjúklinga í sínus takti en eftir eitt ár voru 23,2% af þeim með stækkaða gátt enn í sínus takti á móti 38,4% hjá þeim með eðlilega stóra gátt (p<0.01). Þættir eins og kyn, greinrof eða aldur höfðu hvert um sig ekki marktæk áhrif á tímalengd í sínus takti, en hærra MB­LATER skor hafði neikvætt forspárgildi. Hlutfall sjúklinga í sínus takti eftir eitt ár var 51,1% af þeim með 0­1 stig, 19,7% af þeim með 2­3 stig og 0% þeirra með 4­5 stig (p<0.0001). Eftir að hafa leiðrétt fyrir breytunni „Endurkoma gáttatifs/­flökts innan 90 daga“ voru 36,7% þeirra með 0­2 stig í sínus takti eftir eitt ár á móti 6,1% þeirra með 3­4 stig (p<0.0001). Ályktanir: Sjúklingar með stækkun á vinstri gátt ≥47 mm voru ólíklegri til að haldast í sínus takti til lengri tíma miðað við þá sem hafa eðlilega stóra vinstri gátt. MB­LATER skor virðist gefa góða vísbendingu um hversu líklegir gáttatifssjúklingar eru til þess að haldast í sínus takti til lengri tíma og gæti verið gagnlegt til þess að hjálpa til við að meta hvort þeir sem hrökkva úr takti gætu haft gagn af annarri rafvendingu eður ei. Langtímaárangur hjá sjúklingum í ofþyngd eftir kransæðahjáveituaðgerð Þórdís Þorkelsdóttir1, Hera Jóhannesdóttir1, Tómas Guðbjartsson1,2 1Læknadeild Háskóla Íslands og 2Hjarta­ og lungnaskurðdeild Landspítala Inngangur: Offita er almennt talin auka tíðni fylgikvilla eftir skurðaðgerðir. Rannsóknir á tengslum offitu við snemmkominn árangur opinna hjartaaðgerða eru þó misvísandi en sumar rannsóknir hafa sýnt sambærilega eða jafnvel lægri tíðni fylgikvilla. Langtímaárangur kransæðahjáveituaðgerða hjá sjúklingum í ofþyngd lítið verið rannsakaður og markmið rannsóknarinnar að bæta úr því. Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á 1755 sjúklingum sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð á Landspítala 2001­2013. Úr sjúkraskrám voru skráðir lýðfræðilegir­ og áhættuþættir sjúklinga, þ.m.t. EuroSCORE­II, skammtíma fylgikvillar og 30 daga dánartíðni. Sérstaklega var leitað að eftirfarandi langtíma fylgikvillum; hjartaáfalli, heilablóðfalli, þörf á endurhjáveituaðgerð, kransæðavíkkun með eða án kransæðastoðnets og dauða (major adverse cardiac and cerebrovascular event, MACCE). Sjúklingunum var skipt upp í fjóra hópa eftir líkamsþyngdarstuðli (LÞS); i) kjörþyngd = 18,5­24,9 kg/m2 (n=393), ii) yfirþyngd = 25­29,9 kg/m2 (n=811), iii) ofþyngd = 30­34,9 kg/m2 (n=388) og iv) mikil ofþyngd = >35 kg/m2 (n=113). Sjúklingar með LÞS <18,5 voru aðeins 7 talsins og því ekki teknir með í tölfræðiúrvinnslu. Hinir hóparnir fjórir voru síðan bornir saman m.t.t. áhættu­ og aðgerðartengdra þátta, fylgikvilla og lifunar en langtímalifun og MACCE­frí lifun var áætluð með aðferð Kaplan­Meier. Sjálfstæðir forspárþættir lifunar og MACCE voru fundnir með Cox­aðhvarfsgreiningu. Meðaltal eftirfylgdar var 5,6 ár og miðaðist eftirfylgd við 1. júlí 2014. Niðurstöður: Sjúklingar í ofþyngd reyndust marktækt yngri (67 ár fyrir mikla ofþyngd sbr. 61 ár fyrir kjörþyngd) og hlutfall karla hærra. Sjúklingar í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.