Félagsrit KRON - 15.12.1947, Síða 12
EIGNIR
31. des. 1933 31. des. 1934 31.des. 1935 31. des. 1936 ágúst 1937
kr. % kr. % kr. % kr. % kr. %
1. Bankainnst. og
pen. í sjóði 3.627 8.0 546 0.9 574 0.8 14.749 13.3 1.522 1.9
2. Útist. skuldir 507 1.1 612 1.1 1.034 1.4 3.094 2.8 10.307 12.9
3. Vörubirgðir 27.782 61.4 39.291 67.6 56.793 75.7 77.271 69.5 51.336 64.1
4. Áhöld 2.740 6.0 7.277 12.6 6.921 9.2 6.721 6.0 7.545 9.4
5. Húseign .... 10.643 23.5 10.333 17.8 9.650 12.9 9.386 8.4 9.386 11.7
Alls 45.299 100.0 58.059 100.0 74.972 100.0 111.221 100.0 80.096 100.0
SKULDIR
31. des. 1933 31. des. 1934 31. des. 1935 31. des. 1936 ágúst 1937
kr. % kr. % kr. % kr. % kr. %
l.Lán til sk. tíma 7.572 16.7 14.972 25.8 18.674 24.9 43.322 39.0 47.660 59.5
2 Lán til langs tíma 8.195 18.1 6.738 11.6 6.122 8.2 5.530 5.0
3. Stofnsjóður .... 11.217 24.8 14.282 24.6 19.542 26.1 24.895 22.4 28.599 35.7
4. Varasjóður .... 3.047 6.7 7.162 12.3 11.230 15.0 17.299 15.5 3.837 4.8
5. Tekjuafg. óráðst. 15.268 33.7 14.905 25.7 19.404 25.8 20.175 18.2
Alls 45.299 100.0 58.059 100.0 74.972 100.0 111.221 100.0 80.096 100.0
Þess ber að gasta, að tölurnar i’yr-
ir 1937 eru ekki að öllu sambæri-
legar við tölur fyrri ára, bæði vegna
þess, að þær eru miðaðar við annan
tínra ársins, og vegna þess að vöru-
birgðir munu vera nretnar lægra en
áður hafði verið venja, og stafar það
af samkomulagi, er varð um mat
vörubirgða í öllum þeinr félögum,
senr sarrreinuðust í KRON. Flin
rnikla minnkun varasjóðs og óráð-
stafaðs tekjuafgangs frá fyrri árum
á árinu 1937 stafar af þeim halla, er
varð á rekstrinum þetta ár, og nanr
20.700 kr. Útistandandi skuldir
virðast vera nokkuð miklar á árun-
um 1936—37, þegar þess er gætt, að
um fyrirtæki er að ræða, sem hafði
staðgreiðslufyrirkomulag, en enga
skýringu er á þessu að finna í gerða-
bókum.
Þegar efnahagsaðstæður félagsins
eru athugaðar á grundvelli þessara
reikninga, er eðiilegt að raða eigna-
liðunum saman eftir því til hversu
langs tíma féð er fest í eignunum. 1
fyrsta flokki verður þá handbært
fé, þ. e. bankainnstæður og pen-
ingar í sjóði, í öðrum flokki þær
eignir, er breytast munu í handbært
fé eftir nokkurn tíma, þ. e. vöru-
birgðir og útistandandi skuldir, og
í þriðja flokknum þær eignir, sem
nauðsyn ber til, að fé sé fest í til
langs tíma, þ. e. húseignir og áhöld.
Á sama liátt má skipta skuldunum
niður í lán, er greiða þarf eftir
skamman tíma, þ. e. inneignir við-
skiptamanna og víxilskuldir, lán, er
greiðast eiga á lengri tíma, og að
lokum eigið fé félags og meðlima,
lrvernig svo senr því er skipt á milli
sjóða. Hefur þessi röðun verið fram-
kvænrd í eftirfarandi töflu:
42
Félagsrit KRON