Félagsrit KRON - 15.12.1947, Page 20

Félagsrit KRON - 15.12.1947, Page 20
anir. Samábyrgð var engin í félag- inu. Samkvæmt lögunum voru cleild- irnar einingar félagsins. Hver deild hélt sína fundi, og á aðalfundi sín- um kusu þær fulltrúa á aðalfund félagsins, 1 fulltrúa fyrir hverja 12 deildarmeðlimi. Um leið og deild- irnar hélclu sína aðalfundi skyldi haldinn almennur félagsfundur fyr- ir þá meðlimi, sem ekki voru í neinni deild, og voru á þeim fundi kosnir fulltrúar á aðalfund eftir sömu reglum og í deildunum. Aðal- fundur var því fulltrúafundur. Stjórn skyldi skipuð sjö mönnum. 2. Breytingar á skipulagi Það kom fljótlega í ljós, að þetta skipulag, sem byggt var að miklu leyti á hinum einstöku deildum og starfi þeirra eigin meðlima, var hvorki heppilegt né framkvæman- legt, þegar félaginu óx fiskur um hrygg og meðlimatalan jókst. Deild- irnar gátu ekki til lengdar tekið að sér dreifingu vara til meðlimanna, nema skipuleggja þá starfsemi að fullu, og launa liana, og þá var um leið heppilegra, að félagið tæki hana sjálft að sér. Það hafði ennfremur komið í ljós, að verðlagningarað- ferð sú, sem upphaflega var viðhöfð og áður var lýst, hafði mikla ókosti í för með sér, enda þótt hún hafi sjálfsagt verið vinsæl, þar sem hag- urinn af að verzla við félagið kom þá áþreifanlegast í ljós. Með þessari verðlagningaraðferð og hin- um lágu inntökugjöldum var ó- mögulegt fyrir félagið að safna sér eigin rekstrarfé svo nokkru veru- legu næmi. Þannig var eigið fé fé- lagsins í lok fyrsta ársfjórðungs 1935 7,7% af öllum skuldum, og í árslok 1935 16,8%. Séu vaxtabréfin talin með eigin fé, verða þessar tölur 11,7% og 20,9%. Félagið var því að mestu háð lánveitingum við- skiptamanna sinna eða banka. Með- an svo hagaði til hlaut allur fjár- hagur félagsins að verða mjög ó- tryggur, og fjárskorturinn að verða til þess, að félagið yrði að sætta sig við lakari innkaup, og að starfsemi þess væri hamlað á margan hátt. Það varð því fljótlega eitt aðal- atriðið í eflingu félagsins að aulca eigið rekstrarfé þess, en til þess að það væri hægt varð að breyta verð- lagningarvenjum. Slík breyting átti sér að nokkru leyti stað þegar í marz 1935, sem afleiðing af sam- komulagi því, sem þá var gert við Félag matvörukaupmanna og síðar verður vikið að. Pöntunarálagning var ákveðin 10%, en helmingurinn skyldi endurgreiðast sem arður. Á aðalfundi joann 8. marz 1936 er lögum félagsins samkvæmt tillögum stjórnarinnar breytt allverulega með þau tvö atriði, sem hér hefur verið drepið á, sérstaklega fyrir aug- um. Samkvæmt hinum breyttu lög- um áttu deildirnar í úthverfunum að halda áfram starfsemi sinni eftir sínum samþykktum eins og áður var, en deildirnar innanbæjar skyldu liinsvegar lagðar niður. í stað þess átti að skipta bænum niður í hverfi, 50 Félagsrit KRON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Félagsrit KRON

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsrit KRON
https://timarit.is/publication/2018

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.