Félagsrit KRON - 15.12.1947, Síða 42
vinnu á milli P. V. og K. R., eftir að
slitnað hafði upp úr samkomulags-
umleitunum vorið 1936, þá eykst
samstarf P. V. við Samband íslenzkra
samvinnufélaga óðunr á þessu ári.
Tók P. V. upp samvinnu við SÍS
um innkaup á útlendum vörum og
viðræður um breytingar á sam-
vinnulögunum og lögum Sambands-
ins, er gætu gert P. V. kleift að
ganga í Sambandið. Voru þessar
breytingar aðallega fólgnar í afnámi
samábyrgðarinnar og samþykkti að-
alfundur Sambandsins ályktun unr
þetta efni árið 1936. Þessi breyting
á samvinnulögunum náði franr að
ganga árið 1937, og var á þá leið, að
ábyrgðarskilyrðið var afnumið, en í
stað þess konr ábyrgð, er takmörkuð
var við stofnsjóð og 300 kr. að auki,
en í félögum, senr eingöngu selja
gegn staðgreiðslu, við stofnsjóðinn
einan. Þá skyldi þó leggja í stofn-
sjóð, umfram venjulegt stofnsjóðs-
tillag, helming af tekjuafgangi fé-
lagsmanna, unz innstæða þeirra í
sjóðnum nemur 300 kr. Var þar
nreð búið að ganga þannig frá sam-
vinnulögunum, að neytendafélög
bæjanna álitu sig geta vel við unað,
og ekkert því til fyrirstöðu, að þau
gætu sniðið sín lög eftir samvinnu-
lögununr og fengið inngöngu í Sam-
bandið.
2. Skilyrði sameiningarinnar
Horfurnar í neytendahreyfingu
höfuðstaðarins og nágrennis hans
voru nú þessar. Eitt félaganna,
Póntunarfélag verkamanna í
Reykjavík, var lang fjölmennast,
hafði umfangsmestan rekstur og var
í örustum vexti. Allar líkur virtust
benda til, að þessu félagi ætlaði að
takast það, sem engu samvinnufé-
lagi lrafði tekizt áður, að ná víðtæk-
um og varanlegum áhrifum í höfuð-
stað landsins. Þetta félag hafði hafið
mjög nána samvinnu við pöntunar-
félög verkamanna í Hafnarfirði,
Keflavík og Sandgerði, þannig að
það var í þann veginn að taka að
sér að miklu leyti vöruútvegun fyrir
þessi félög. Það hafði einnig haft
allmikla samvinnu við K. R., sem
verið hafði báðum félögunum til
mikilla hagsbóta, enda þótt hún
að mestu hefði lagzt niður aftur unr
skeið. Félagið var komið í allnáið
samband við SÍS, og það var ósk þess
að ganga í SIS, enda til mikilla hags-
bóta að gera vörukaup í samvinnu
við það og ef til vill að ráðast í önn-
ur fyrirtæki ásamt því. Skortur fé-
lagsins á eigin rekstrarfé var það,
sem mest hafði háð því, og gat það
m. a. af þeim sökum verið þýðingar-
mikið fyrir það að ná góðri sam-
vinnu við aðra fjársterkari aðila.
Hitt neytendafélagið í Reykjavík,
Kaupfélag Reykjavíkur, var í jöfn-
um og nokkuð stöðugum vexti,
bæði hvað veltu og meðlimatölu
snerti, og var fjárhagslega mjög vel
tryggt fyrirtæki, en vöxtur þess og
starfsemi var þó ekki á neinn hátt
sambærilegt við Pöntunarfélagið, og
virtist líklegt, að hin hraða fram-
þróun Pöntunarfélagsins mundi
72
Félagsrit KRON