Félagsrit KRON - 15.12.1947, Síða 48
síðan ekkert aðhafzt í verzlunarmál-
unum fyrr en árið 1930. Þetta ár
kaus félagið nefnd til þess að koma
fram með tillögur í þessum málum,
og voru kosnir í nefndina Kjartan
Ólafsson, Þorsteinn Björnsson og
Gunnlaugur Kristmundsson. Nefnd-
in skilaði áliti á fundi 7. marz 1931
og lagði til, að félagsmenn „mvnd-
uðu pöntunarfélag, gerðu sameigin-
lega pöntun og borguðu hana við
móttöku vörunnar." Fundurinn tók
þessari tillögu hið bezta og sam-
þykkti að fela nefndinni að starfa
áfram að verzlunarmálinu og sjá
svo um, að vörupantanir gætu hafizt
svo fljótt sem auðið væri.
Vörupantanir hófust þegar á ár-
inu 1931 og námu þá um 30 þús.
kr. Starfsemin gekk vel og varð
nokkur ágóði. Árið 1932 óx veltan
upp í 42 þús. kr. og 1933 upp í 53
þús. kr.
Á aðalfundi 1933 var framtíð
pöntunarfélagsins allmikið rædd, og
voru ræðumenn á eitt sáttir um það,
að deildin hefði gert ómetanlegt
gagn, og væri það fyrst og fremst að
þakka dugnaði og fórnfýsi forstjór-
ans, Þorsteins Björnssonar.
Á fundi Hlífar 2. apríl 1934 var
endanlega gengið frá lögum fyrir
pöntunarfélagið og þau samþykkt.
í aprílmánuði var ráðinn sérstakur
pöntunarfélagsstjóri, Siggeir Vil-
hjálmsson, sem gegndi því starfi þar
til í október 1936, er Guðmnndur
Tryggvason tók við starfinu.
Árið 1934 var keypt verzlunar-
húsnæði í verkamannabústöðunum,
sem þá var verið að reisa, og var búð
opnuð þar 1. júlí 1935. Seint á ár-
inu 1936 var tekið á leigu húsnæði
vefnaðarvöruverzlunarinnar „Flens-
borgar“, Gunnarssundi 5, og keypt-
ar vörubirgðir þeirrar verzlunar.
Rekstur félagsins gekk allvel. Ár-
ið 1934 var veltan kr. 69 þús., 1935
kr. 93 þús., 1936 kr. 95 þús. og þann
helming ársins 1937, sem félagið
starfaði sem sérstakt félag, 78 þús.
kr. Félagsmenn voru þá 380. For-
maður félagsstjórnar 1934—1936 var
Magnús Kjartansson, en 1937 var
Olafur Þ. Kristjánsson kosinn for-
maður, og meðstjórnendur Guðjón
Gunnarsson og Þórður Þórðarson.
Sameining Pöntunarfélagsins og
þeirra annarra félaga, er stofnuðu
KRON, var samþykkt 11. apríl
1937. Við sameininguna fór Ólafur
Þ. Kristjánsson í aðalstjórn KRON
en í deildarstjórn voru kosnir
Magnús Kjartansson, formaður, og
meðstjórnendur Guðjón Gunnars-
son og Þórður Þórðarson.
Nokkru áður en sameiningin varð
hafði Pöntunarfélag Hlífar fest
kaup á nýju og myndarlegu verzlun-
arhúsi við Strandgötu, þótt endan-
lega væri frá þeim kaupum gengið
síðar.
Eins og víðast hvar annars staðar
átti neytendahreyfingin við geysi-
lega örðugleika að stríða í Hafnar-
firði, og þá fyrst og fremst í harðri
baráttu við þær einkaverzlanir, sem
fyrir voru. 1 þessari baráttu naut
Pöntunarfélagið dyggilegrar aðstoð-
ar Sambands ísl. samvinnufélaga.
78
Félagsrit KRON