Félagsrit KRON - 15.12.1947, Blaðsíða 50
umræður um málið, en engin and-
mæli komu fram. Að lokum fór
fram reynsluatkvæðagreiðsla um
málið, samkvæmt tillögu formanns,
og var sameiningin samþykkt með
11 atkvæðum. Næst er málið tekið
á dagsskrá á félagsfundi 1. ágúst
1937. Engar raddir komu fram gegn
sameiningunni og eftir nokkrar urn-
ræður samþykkti fundurinn með
25:8 atkvæðum, að félagið skyldi
ganga í hið væntanlega sameiginlega
félag neytendafélaganna í Reykja-
vík og á Suðurnesjum, þó með því
skilyrði, að afgreiðsla héldi áfram í
Sandgerði með sama fyrirkomulagi
og áður.
Er félagið gekk í KRON, voru
félagsmenn um 70.
V. Kaupfélctg Reykjavíkur og nágrennis
1. Stofnun félagsins
Kaupfélag Reykjavíkur og ná-
grennis var stofnað á fundi í Kaup-
þingssalnum í Eimskipafélagshús-
inu 6. ágúst 1937. Á fundinum voru
mættir 93 fulltrúar frá Pöntunarfé-
lagi verkamanna, Reykjavík, Kaup-
félagi Reykjavíkur, Reykjavík,
Pöntunarfélaginu Hlíf, Hafnar-
firði, Pönt unarfélagi Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur, Kefla-
vík, og Pöntunarfélagi Sandgerðis,
Sandgerði. Öll þessi félög höfðu áð-
ur samþykkt á fundum sínum að
sameinast í eitt allsherjar félag.
Stofnfundurinn samþykkti í einu
hljóði lagafrumvarp það, sem undir-
búningsnefndin hafði samið, en
fulltrúarnir höfðu áður fengið það
í hendur til athugunar. Stefna fél-
agsins var þar í aðalatriðum mörk-
uð hin sama og sú, sem áðurnefnd
félög höfðu fylgt: Staðgreiðsla, tak-
mörkuð ábyrgð hvers félagsmanns,
hlutleysi um stjórnmál og önnur
mál, sem eru neytendasamtökun-
um óviðkomandi, áherzla lögð á lágt
vöruverð og góðar vörur, út-
breiðslustarfsemi fyrir neytenda-
samtökin og fræðslu um samvinnu-
mál. Nokkrar umræður urðu um
nafn félagsins og kom fram tillaga
um, að það yrði „Kaupfélagið við
Faxaflóa". Þessi tillaga var þó felld,
og félagið hlaut nafnið „Kaupfélag
Reykjavíkur og nágrennis", eins og
undirbúningsnefndin hafði lagt til.
Á fundinum voru kosnir níu
menn í stjórn félagsins, og hlutu
kosningu Friðfinnur Guðjónsson,
prentari, Sveinbjörn Guðlaugsson,
bílstjóri, Margrét Björnsdóttir,
Runólfur Sigurðsson, skrifstofu-
stjóri, Theódór B. Líndal, hæsta-
réttarlögmaður, Benedikt Stefáns-
son, gjaklkeri, Ólafur Þ. Kristjáns-
son, kennari, Þorlákur Ottesen,
verkstjóri, og Hjörtur B. Helgason,
Hílstjóri.
Stjórnin skipti þegar með sér
verkum á sérstökum fundi sama
kvöld, réði framkvæmdai'stjóra og
kaus framkvæmdarstjórn. Formaður
var kosinn Sveinbjörn Guðlaugsson,
80
Félagfsrit KRON