Félagsrit KRON - 15.12.1947, Page 56
stjóri félagsins fengi meiri völd og
meiri ábyrgð. Nokkrar umræður
urðu um þetta, en engar ákvarðanir
voru þó teknar. Formaður félagsins
gat þess, að stjórnin mundi vinna að
samkomulagi um verkaskiptingu
milli framkvæmdarstjóra félagsins,
eða ef það tækist ekki, breytingu á
skipulagi framkvæmdarstjórnar. Það
var ekki fyrr en 1945, sem breyting
var gerð á þessu og ákveðið að vera
skyldi einn framkvæmdarstjóri í stað
þriggja, og voru ekki settir gæzlu-
stjórar honum við hlið, eins og upp-
haflega hafði tíðkazt.
3. Innganga i SÍS
Þegar á stofnfundinum var sam-
þykkt í einu hljóði ályktun þess
efnis, að fela stjórninni að sækja
þegar um upptöku félagsins í Sam-
band íslenzkra samvinnufélaga.
Stjórnin gerði þetta, en nokkur
dráttur varð þó á málinu. Stjórn
SÍS gerði ýmsar athugasemdir við
samþykktir félagsins og gerði það
að skilyrði fyrir inngöngu í sam-
bandið, að samþykktunum yrði
breytt. Var það gert á aðalfundi
1938. Þá kom og það til, að vetur-
inn 1938 bar Einar Árnason fram á
Alþingi frumvarp til laga um breyt-
ingu á lögum um samvinnufélög. í
gildandi samvinnulögum var svo á-
kveðið, að kosning fulltrúa á sam-
bandsfund skyldi eingöngu miða við
tölu félagsmanna. Frumvarpið gekk
í þá átt, að sambandsfundi væri
heimilt að ákveða, að fulltrúatalan
færi jafnframt eftir heildarvöruvið-
86
skiptum félaganna við sambandið.
Þar sem bersýnilegt var, að þessi
breyting myndi geta takmarkað
mjög fulltrúatölu KRON á aðal-
fundum sambandsins frá því, sem
ella hefði orðið, var félagið andvígt
slíkri breytingu á samvinnulögun-
um, enda þótt það viðurkenndi jafn-
franrt, að nauðsynlegt gæti verið að
takmarka réttindi þeirra félaga, sem
aðeins væru til málamynda í sam-
bandinu. Á aðalfundi félagsins 1938
voru því samþykktar ályktanir, sem
lýstu yfir þessari afstöðu félagsins,
og var stjórninni jafnframt falið að
beita áhrifum sínum til þess, að sam-
bandið ákvæði ekki þær reglur um
fulltrúakjör að telja mætti, að hlut-
ur félagsins væri fyrir borð borinn.
Við umræður um frumvarpið í
efri deild Alþingis túlkaði Brynjólf-
ur Bjarnason skoðanir þær, sem
fram komu í ályktun aðalfundar
KRON, en engar breytingar voru
þó gerðar á frumvarpinu í efri
deild. 1 neðri deild þingsins var
frumvarpinu hins vegar nokkuð
breytt, og var það síðan endanlega
samþykkt í því formi. Samkvæmt
því fer tala þeirra fulltrúa, sem
hvert félag má senda á sambands-
fund, eftir tölu félagsmanna, hins
vegar er sambandsfundi heimilt að
ákveða, að fulltrúatalan fari jafn-
fram eftir heildarvöruviðskiptum
félaganna við sambandið til þess að
tryggja viðskipti félaga við sam-
bandið.
Á aðalfundi KRON 1938 höfðu
verið kosnir ellefu fulltrúar til þess
Félagsrit KRON