Félagsrit KRON - 15.12.1947, Blaðsíða 58
Á áðalfundi SÍS var síðan ein-
róma samþykkt áskorun um, að end-
urskoðun væri látin fara fram á regl-
unum urn fulltrúakjör. Af slíkri
endurskoðun hefur þó ekki orðið,
og eru reglurnar enn óbreyttar.
Vegna vaxandi viðskipta við SÍS
hefur fulltrúatala KRON ekki
skerzt frá því, sem áður var, og hef-
ur félagið ekki ítrekað óskir sínar
um breytingar á þessum reglum.
Viðskipti KRON við SÍS munu
fljótt hafa vaxið mjög og orðið
mikill hluti af vörukaupum fé-
lagsins. Fullnægjandi tölur um þessi
viðskipti eru þó ekki til fyrir tíma-
hilið 1937—1940. Vörukaup KRON
hjáiSÍS á s.I. 6 árurn sjást hins vegar
á eftirfarandi töflu og sömuleiðis,
hve hárri hlutfallstölu af vörusölu
félagsins að frádregnum brúttó-
hagnaði þau liafa numið þessi sömu
ár.
1941 1942 1943 1944 1945 1946
Vörukaup hjá SÍS kr......... 2.796.354 3.878.939 5.535.476 4.414.770 4.517.637 3.940.257
Hundraðshluti af vörusölu að
frádregnum brúttóhagnaði, % '53.0' 44.0 47.3 40.2 50.7 33.8.
Sýna þessar tölur, að KRON heh
ur þessi ár yfirleitt fengið 40—50%
af þeim vörum, sem það hefur selt,
frá sambandinu, eða að meðaltali
45%. Árið 1946 hefur þetta hlut-
fall þó verið mun lægra.
4. Verzlanir félagsins.
Húsnœðismál og fasteignir
Þegar við stofnun KRON biðu
stórfelld verkefni lausnar hvað fjölg-
un verzlana og útvegun hentugs
húsnæðis snerti, bæði í Reykjavík
og annars staðar, og hinn öri vöxtur
félagsins skapaði nýjar og auknar
þarfir í þessum efnum. Skal hér gerð
nokkur grein fyrir gangi þessara
mála á hverjum stað fyrir sig.
Hafnarfjörður
Sumarið 1938 keypti félagið verzl-
unarhús V. Long í Hafnarfirði, sem
félaaið hafði haft á leisu um eins
o o
árs skeið. Með því að festa kaup á
þessu húsi tókst að leysa húsnæðis-
mál félagsins í Hafnarfirði.
Sandgerði
í Sandgerði höfðu húsnæðisvand-
ræði tálmað vexti og viðgangi félags-
ins meira en víðast hvar annars stað-
ar. Árið 1938 var þar byggt lítið
verzlunarhús, sem leysti úr þessum
erfiðleikum í bili.
Keflavík
I Keflavík var komið upp nýrri
búð árið 1937, en 1940 var svo kom-
ið, að óhjákvæmilegt þótti að búa
betur um starfsemi félagsins þar.
Það ár voru keypt lóðarréttindi við
Hafnargötu. Þá keypti félagið skíða-
skála á Hellisheiði, sem starfsmenn
félagsins áttu, og var ætlunin, að
88
Félagsrit KRON