Félagsrit KRON - 15.12.1947, Side 72
um 260. Mjög fáir ganga úr félag-
inu, eða yfirleitt innan við 20. Á
árunum 1944—46 verða miklu stór-
felldari breytingar. Tala nýrra með-
lima fer þegar nokkuð að vaxa 1944
og nær hinni gífurlega háu tölu
2.132 á árinu 1945. Næsta ár er hún
aftur komin í hið venjulega horf,
255. Á árunum 1945 og 1946 ganga
einnig mjög margir eldri meðlimir
úr félaginu, og stafar það af við-
skilnaði utanbæjardeildanna. Tala
nýrra félagsmanna er þó svo há, að
hún gerir miklu betur en að vega á
móti þessu, einkum árið 1945. Hin
mikla aukning nýrra meðlima á ár-
inu 1945 getur ekki að öllu leyti
talizt eðlileg, heldur mun hún að
talsverðu leyti eiga rót sína að rekja
til þess, að óvenju lieitar fulltrúa-
kosningar til aðalfundar voru háðar
þetta ár.
í árslok 1946 er félagsmannatalan
6.043, og hafði því liðlega tvöfald-
azt á fyrsta tíu ára starfsferli félags-
ins.
7. Rekstur
Eftirfarandi tafla sýnir vörusölu
KRON á ári hverju 1937—46. Töl-
urnar fyrir árið 1937 eru þó ekki
sambærilegar við hinar tölurnar, þar
sem lélagið var ekki starfandi allt ár-
ið. Sölunni hefur verið skipt niður
eftir flokkum þeim, sem notaðir eru
í skýrslum KRON. A-flokkur eru
matvöruverzlanir, B-flokkur vefnað-
arvöru-, skófatnaðar- og búsáhalda-
verzlanir, D-flokkur bóka- og list-
munaverzlanir. „Aðrir flokkar“ nær
yfir allar þær verzlanir aðrar, sem
KRON hefur rekið og ekki heyra
undir neinn hinna flokkanna, og er
því allmismunandi eftir árum. Til
þessa flokks telst brauðbúð, kjötbúð
og kolaverzlun árin 1937—38 kjöt-
búðin ein árin 1939—40, kjötbúðin,
skipaverzlun og mjólkurbúð árin
1941—42, skipaverzlun og mjólkur-
1937 1938 1939 1940 1941
Seldar vörur kr. % kr. % kr. % kr. % kr. %
A-flokkur 678.085 54.9 1.661.174 69.5 1.815.868 72,3 2.408.269 73.8 4.113.594 63.6
B-flokkur 270.095 21.9 558.998 23.4 565.760 22.6 696.743 21.3 1.481.119 22.9
D-flokkur 229.486 3.5
Aðrir flokk. 285.929 23.2 170.546 7.1 128.283 5.1 158.384 4.9 649.759 10.0
Alls 1.234.109 100.0 2.390.718 100.0 2.509.911 100.0 3.263.396 100.0 6.473.958 100.0
1942 1943 1944
Seldar v. kr. % kr. % kr. %
A-flokk. 6.489.286 59.6 9.697.439 69.0 10.259.611 76.6
B-flokk. 2.222.195 20.4 2.699.878 19.2 2.390.416 17.9
D-flokk. 662.966 6.1 957.637 6.8 740.609 5.5
Aðrir fl. 1.507.972 13.9 697.316 5.0
1945
kr. %
7.595.070 70.5
2.269.277 21.1
910.383 8.4
1946
kr. %
10.072.439 70.1
3.229.168 22.5
1.072.979 7.4
Alls 10.882.419 100.0 14.052.270 100.0 13.390.636 100.0 10.774.730 100.0 14.374.586 100.0
102 Félagsrit KRON