Félagsrit KRON - 15.12.1947, Side 74

Félagsrit KRON - 15.12.1947, Side 74
1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 100 110 150 185 190 175 135 175 100 95 120 140 135 115 75 85 Umreiknuð vörusala (1938=100) . .. Umreiknuð vörusala á félagsmann (1938=100) ................. A£ þessari töflu má draga þær á- lyktanir, að vörusala félagsins mið- uð við rnagn hafi farið vaxandi fram til ársins 1943, og hafi þá verið ná- lægt því 90% meiri en árið 1938. Síðan hafi hún farið lækkandi árin 1944 og sérstaklega 1945, og þá að- eins verið um 35% meiri en 1938. Síðan hafi hún aftur vaxið mjög verulega, en þó elcki náð hámark- inu frá 1943. Miðað við tölu félags- manna er vöxtur vörusölunnar ekki nærri eins mikill, en þó nokkur fram til 1942, og er þá um 40% meiri en 1938. Síðan fer vörusala á félagsmann aftur minnkandi og er 1945 25% minni en 1938. Sýnir þetta, að hinn mikli fjöldi félags- manna, er bættist félaginu 1945, hefur aðeins að litlu leyti beint við- skiptum sínum til félagsins, og enn- fremur hve mikið landfélagið á enn ónumið, jafnvel meðal sinna eigin félagsmanna. Að nokkru má þó skýra þetta á þann hátt, að aukning félagsmanna 1945 hafi að talsverðu leyti byggzt á því, að fleiri fjöl- skyldumeðlimir hafi gengið í félag- ið í þeim fjölskyldum, sem þegar áður höfðu skipt við félagið. Til þess að gera sér hugmynd um rekstrarafkomu félagsins hefur ver- ið reynt að setja upp rekstrarreikn- ingana á þann hátt, að sambæri- legt sé frá ári til árs, en á það hefur allmjög skort í ársskýrslunum. Enn- 104 íremur hefur verið reynt að lá fram afkomu hvers vöruflokks fyrir sig, eftir því sem framast hefur verið unnt. Reikningarnir liafa verið sett- ir þannig upp í meðfylgjandi töflu, að fyrir árin 1937—42 er sýnd vöru- sala og kostnaður eftir vöruflokk- um, og kostnaðurinn útreiknaður í hundraðshlutum af vörusölu. Hins vegar hefur ekki fyrir þessi ár verið hægt að fá fram brúttó- og nettó- hagnað eftir vöruflokkum. Þetta hefur aftur á móti verið gert fyrir árin 1943—46. Með kostnaði hefur verið talinn ekki aðeins beinn kostnaður við vörusölu í hverjum flokki, heldur allur sameiginlegur kostnaður, bæði sá kostnaður, sem stendur undir þessu nafni í reikn- ingunum, og ennfremur vextir, opinber gjöld, afskrift áhalda og aðrir þeir kostnaðarliðir einstakra ára, sem bersýnilega standa í nánu sambandi við vörusöluna. Þeim sam- eiginlegu kostnaðarliðum, sem ekki er hægt að tilfæra til neins vöru- flokks sérstaklega, hefur verið skipt niður á milli flokkanna eftir veltu þeirra. Það liggur í hlutarins eðli, að slík skipting er síður en svo ná- kvæm, né er líklegt, að hún gefi al- veg rétta mynd, þar sem þessi kostn- aður raunverulega getur átt rót sína að rekja til hvers vöruflokks á allt öðrum grundvelli en veltan bendir til. Nægir í því sambandi að benda Félagsrit KRON
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Félagsrit KRON

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsrit KRON
https://timarit.is/publication/2018

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.