Félagsrit KRON - 15.12.1947, Síða 82
talin skiptimynt í búðum. Þessi
liður er yfirleitt mjög lítjill, en
nokkuð breytilegur, eða frá i/£% til
12%, og er það eðlilegt, að keppt.
sé að því að hafa hann heldur lágan,
þar sem þetta fé ber enga eða litla
vexti.
2. Útistandandi skuldir. Þær gætu
virzt allmiklar, sérstaklega þar sem
um fyrirtæki er að ræða, sem viðhef-
ur staðgreiðslu, einkum á þetta við
um tvö síðustu árin. Þess er þó að
gæta, að þessar skuldir eru ekki hjá
einstaklingum, nema þá að hverf-
andi litlu leyti, heldur hjá fyrirtækj-
um, sem KRON hefur viðskipti við,
hjá öðrum kaupfélögum og hjá SÍS.
Hin mikla aukning þessa liðs árin
1945 og 1946, eða úr tæpum 100.000
kr. og um 2% af eignunum, í rúmar
300.000 kr. ogyfir 5% af eignunum,
stafar að mestu af viðskilnaði kaup-
félaganna í Hafnarfirði og Suður-
nesjum, en Jjau skulda KRON veru-
legar upphæðir ennþá.
3. Vörubirgðir. Þessi liður er
stærsti eignaliðurinn eins og nærri
má geta með verzlunarfyrirtæki.
Er hann yfirleitt frá 50 til 70%
af eignunum, og oftast í kring-
nm 60%. Hlutfallslega hæztur er
hann fyrsta árið, enda átti félagið
þá mjög litlar fasteignir. Fyrstu
þrjú stríðsárin vaxa birgðirnar
mjög mikið, og stendur sú aukning
að miklu leyti í sambandi við verð-
hækkanir og stríðsástæður yfir-
leitt. Aukast birgðirnar úr tæpum
500 þús. kr. og 51% af eignunum
árið 1939 í rúmar 3.100.000 kr. og
66% af eignunum árið 1942. Þessi
vöxtur, sem er rösklega sexföldun,
er |x) mun meiri en verðhækk-
anirnar, sem verða á sama tíma,
og einnig meiri en veltuaukning-
in, en veltan fjórfaldaðist rösklega
á þessum árum. Er því ljóst, að
um verulega hlutfallslega aukningu
vörubirgða er hér að ræða. Eins og
verðlagsþróunin varð næstu ár á
eftir er líklegt, að þessi birgða-
auknins' hafi verið félasinu oe með-
o o o
limum Jaess til hagsbóta, svo framar-
lega sem um góðar og útgengilegar
vörur Iiefur verið að ræða. Um
þetta var þó ómögulega að segja neitt
ákveðið fyrirfram, og yfirleitt hefur
það verið regla félagsins að forðast
mikla birgðasöfnun. Þessi birgða-
aukning fyrstu stríðsáranna hefur
einnig ásamt fleiru auðsjáanlega
vakið nokkurn ugg, og stefnunni er
breytt þetta ár og birgðir minkað-
ar, sérstaklega árið 1943. Um þetta
segir í ársskýrslunni 1942: „Stjórn
félagsins gerir sér það fyllilega ljóst,
að nokkur hætta getur stafað af
miklum vfirubirgðum, en einkum
er félaginu erfitt um vik í þessu
efni vegna þess, hve eigið fé fyrri
ára hefur rýrnað hlutfallslega vegna
verðlagshækkana. Hins ber þá jafn-
framt að gæta, að eins og nú er
háttað verzlun og viðskiptum hefur
mátt telja varhugavert að sleppa
möguleikum til kaupa á sumum
vörum, sem ýmist hafa verið mjög
hækkandi eða lítt fáanlegar. Þrátt
fyrir þetta hefur stjórnin lagt til við
framkvæmdarstjórn, að dregið verði
112
Félagsrit KRON