Morgunblaðið - 03.04.1986, Qupperneq 3
MORGUNBLABtt), FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986
3
Fáskrúðsfjörður:
Fiskumbúðir skemmast
um borð í Skaftafelli
Fáskrúðsflrði.
TÍU TIL ellefu þúsund kass-
ar utan um frosinn fisk
skemmdust um borð í Skafta-
felli en skipið kom til lestun-
ar á Fáskrúðsfirði á mánu-
daginn. Skaftafell er í eigu
skipadeildar SÍS.
Ástæður fyrir óhappinu
Sveitarstiómarkosningar í vor:
Um 20.000 fleiri á kjör-
skrá á landinu en 1982
Kjósendur á kjörskrá f vor
munu verða um 20.000 fleiri en
var i síðustu sveitarstjómar-
kosningum árið 1982. A kjör-
skrárstofnum fyrir allt landið,
sem Hagstofan hefur unnið
vegna sveitarstjórnarkosning-
anna í vor, eru 171.263 menn.
Á kjörskrá 1982 voru 148.648.
Er þessi fjölgun mestmegnis
vegna þess að kosningaréttur
er nú miðaður við 18 ár en var
20 ár áður.
Endanleg talá manna á kjörskrá
verður nokkru lægri en kjörskrár-
stofnamir segja til um. Helstu
breytingar frá kjörskrárstofnum
eru þær, að þeir sem verða átján
ára á árinu eftir kjördag eru frá-
taldir í endanlegu tölunum svo og
þeir sem deyja fram að kjördegi.
Þá kann kjósendum í einstökum
sveitarfélögum að fækka eða
fjölga vegna flutninga.
Vegna lækkunar kosningaald-
urs úr 20 í 18 ár bætast sex nýir
árgangar í kjósendatöluna. Mann-
Qöldi í þessum árgöngum er um
26.500, sem er tæplega 16% af
áætlaðri endanlegri tölu manna á
kjörskrá.
Á kjörskrárstofni Reykjavíkur
fyrir 1986 eru 66.529 en á kjör-
skrá 1982 voru 58.481, í Kópavogi
eru 10.344 en voru 7.680, á
Akureyri em 9.664, vom 8.433
og í Hafnarfírði eru á kjörskrár-
stofni í ár 9.081 en voru 7.680 á
kjörskrá 1982.
Fæstir em á kjörskrárstofni í
Múlahreppi í Austur-Barðastrand-
arsýslu, 10 menn, en vom 12 á
kjörskrá árið 1982. Alls em 9
hreppar með færri en 20 menn á
kjörskrárstofni, allir í Vestfjarða-
kjördæmi nema einn. Árið 1982
vom 8 hreppar með 20 menn eða
færri á kjörskrá.
liggja ekki fyrir en menn hall-
ast að því að gúmmíbelgur, sem
notaður er til þess að stífa af
frakt í skipinu, hafí gleymst á
hitara sem notaður er til að
afhríma kælikerfí í lestum
skipsins. Afleiðingamar hafí
orðið þær að belgurinn hafí
brunnið og sótið lent inn í
kælikerfíð.
Kössunum var skipað í land
á vegum Hraðfrystihúss Fá-
skrúðsfjarðar þar sem skipta
þarf um umbúðir. Mun skipið
því teflast nokkuð af þeim
sökum. Albert
Utanríkisráðherra
ræddi við sovézka
sendiherrann um Gulko
Utanríkisráðherra Matthías Á.
Mathiesen kallaði sendiherra
Sovétríkjanna, Evgeniy A. Kos-
arev, á sinn fund í dag vegna
sovéska stórmeistarans Boris
Gulko, segir i frétt frá utanríkis-
ráðuneytinu.
Samkvæmt upplýsingum Skák-
sambands íslands var Gulko meinað
að yfírgefa Sovétríkin til að taka
þátt í Reykjavíkurskákmótinu dag-
ana 11.—23. febrúar sl. og fór
sambandið þess á leit við utanríkis-
ráðherra að hann aflaði skýringa
sovéskra yfirvalda á synjuninni.
Jafnframt því að koma erindi
Skáksambandsins á framfæri, vakti
utanríkisráðherra máls á neitun
sovéskra yflrvalda að heimila Gulko
og fjölskyldu hans að flytja frá
Sovétríkjunum, en Gulko mun fyrst
hafa sótt um brottflutningsleyfí
fyrir rúmum sjö árum.
Utanríkisráðherra afhenti sendi-
herranum minnisbiað varðandi mál
sovéskra stórmeistarans, þar sem
fram kemur m.a. að það væri í
samræmi við ákvæði ýmissa fjöl-
þjóðlegra samþykkra ef breyting
yrði á í þessu efni.
Ljósm. A. Kemp.
Hluti pakkanna sem skemmdust um borð í Skaftafelli.
Wrangler
HINAREINUOG .
SÖNNCT *
Glæsileqt úrvalyf alls konar
denirri-fatnaði.
l * M
'
Austurstræti 22
Laugavegi 30
Laugavegi 66
Glæsibæ
Sími frá
skiptiborði
45800
INNLENT
Mikki mús
á skjáinn
í sumar
SÝNINGAR á Walt Disney
teiknimyndaþáttunum, sem
sjónvarpið hefur fest kaup á,
hefjast að öllum líkindum i
byijun maí að sögn Hinriks
Bjamaaonar deildarstjóra í
innkaupa- og markaðsdeild
sjónvarpsins.
Alls voru keyptir 24 þættir
til að byija með og verða
þættimir á dagskrá vikulega —
25 mínútur í senn.
„Ég hef áður sagt í fjölmiðl-
um að byijað yrði að sýna
þættina er líða tæki á árið og
það er full þörf á vönduðu
bamaefni á sumrin jafnt sem
um vetur," sagði Hinrik.