Morgunblaðið - 01.10.2006, Síða 46
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
VESTURBERG 161
Mjög fallegt 197,4 fm raðhús á 2 hæðum, þar
af 32 fm bílskúr. 4-5 svefnherbergi. Nýlegt
eldhús. 32 fm stór svalaverönd (mögul. á að
byggja yfir). 2 baðherbergi. Frábært útsýni yfir
borgina. VERÐ 37,9 millj.
María og Jón Ægir bjóða þig og þína
velkomna, sími 557 2430.
Opið hús milli kl. 17.00-18.00 nk. sunnudag
46 SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Í sölu mjög fallegt endaraðhús á tveimur hæð-
um með innbyggðum bílskúr, samtals um 234
fm, þar af bílskúr 31 fm. Eignin skiptist í for-
stofu, hol, eldhús, stofu, borðstofu, bókaher-
bergi, gang, baðherbergi, tvö barnaherbergi,
hjónaherbergi, fataherbergi og bílskúr. Á neðri
hæð er tómstundarými, baðherbergi, herbergi,
þvottahús og geymsla. Eignin er skemmtilega
hönnuð og er vel staðsett á frábærum útsýnis-
stað í Lundarhverfi í Garðabæ. Fallegur gróinn
garður. Verð 48 millj.
Þrastalundur 11 - Garðabæ
Hraunhamar hefur fengið í einkasölu glæsileg-
ar 4ra herbergja íbúðir á annari og fjórðu hæð
í lyftuhúsi. Íbúðirnar afhendast í dag fullbúnar
án gólfefna. Eignirnar skiptast í forstofu, gang,
stofu, 3 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi,
þvottahús og geymslu. Tvennar svalir. Gott
skipulag, traustir verktakar. Upplýsingar veita
sölumenn Hraunhamars. Íbúð 201, verð 20,9
millj. Íbúð 401 með bílageymslu, verð 22,7
millj. Möguleiki á allt að 90% lánum. Til af-
hendingar strax.
Eskivellir 1 - Hf. - 90% lán
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
SUÐURÁS - 110 RVK
Sérlega fallegt raðhús á tveimur hæðum m/
innbyggðum bílskúr og 4 svefnherbergjum.
Alls 191,7 fm. Parket og flísar á gólfum, vel
skipulagt. Falleg timburverönd út frá stofu.
Vönduð og vel með farin eign. VERÐ 47,8
millj.
Upplýsingar gefur Ingvar Ragnarsson
sölufulltrúi Akkurat, s. 822 7300.
NÝTT!
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Fjólugata - Glæsilegt einbýli
Hér er um að ræða glæsilegt og virðu-
legt 287,1 fm þrílyft einbýlishús sem
stendur á 591 fm lóð. Tvær íbúðir eru í
húsinu. Aðalíbúðin er á 1. og 2. hæð
hússins en hin er í kjallara. Á 1. hæð eru
tvær stórar samliggjandi stofur, mjög
stórt eldhús, baðherbergi og tvær for-
stofur. Á 2. hæð er stigapallur, 3 her-
bergi, eldhús og baðherbergi. Í kjallara
eru stofa, eldhús, 2 herbergi, fataher-
bergi, þvottahús/baðherbergi og
geymslur. Lóðin er falleg með miklum trjám, grasflöt, nýlegri upp-
hitaðri hellulagðri heimreið, upphituðu bílastæði o.fl. Húsið var
standsett að utan í september 2000. Húsið hefur einnig verið tölu-
vert endurnýjað að innan, s.s. baðherbergi, eldhús o.fl. Skipt hef-
ur verið um raflagnir og hitalagnir að mestu o.fl. V. 89,0 m. 6131
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Til leigu eða sölu mjög gott 116 fm verslunarhúsnæði á götuhæð í
hjarta miðborgarinnar auk 88 fm rýmis í kjallara með fullri lofthæð.
Bæði innangengt og sérinngangur í kjallara. Mjög góðir
verslunargluggar og góð lofthæð er á verslunarhæð. Nánari uppl.
veittar á skrifstofu.
Bankastræti
Verslunarhúsnæði til leigu eða sölu
VALGERÐUR Sverrisdóttir, ut-
anríkisráðherra greindi frá því í
ræðu sinni á Allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna að Ísland hygðist
auka þróunaraðstoð sína verulega
og stefna að því að ná því marki
sem Sameinuðu þjóðirnar hafa sett
um að þróuð ríki skuli láta 0,7% af
þjóðartekjum renna til þróun-
araðstoðar.
Ráðherra greindi
hins vegar ekki frá
því hvenær þetta yrði,
að öðru leyti en að
það yrði eftir 2009 en
þá rennur núverandi
áætlun út.
Morgunblaðið vekur
athygli á því í for-
ystugrein 28. sept-
ember síðastliðinn að
með „framboði sínu til
öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna, kosn-
ingabaráttunni, opnun
vefsíðu o.s.frv. (hafi) Ísland beint
kastljósinu sem aldrei fyrr að því
hvernig það stendur að þróun-
armálum. Það þýðir að fleiri en áð-
ur vita að við höfum góð áform, en
þeir vita líka að eins og er stendur
eitt ríkasta land í heimi flestum
öðrum þróuðum ríkjum að baki í
stuðningi við hin fátæku þróun-
arlönd. Það verður eftir því tekið
hvort við stöndum við stóru orðin.“
Nú er það raunar svo að Íslend-
ingar hafa látið undir höfuð leggj-
ast að láta Efnahags- og framfara-
stofnun Evrópu, OECD í té
upplýsingar um þróunaraðstoð en
stofnunin hefur fengið það verk-
efni að útbúa samanburðarhæft
talnaefni um þennan málaflokk.
Engu að síður hafa íslensk stjórn-
völd fullyrt að OECD hafi lagt
blessun sína yfir að útgjöld svo-
kallaðrar friðargæslu megi flokka
sem þróunaraðstoð.
Ef íslensk stjórn-
völd telja að framlög
til þróunaraðstoðar
séu með þeim hætti
að það sé Íslandi til
framdráttar í kosn-
ingabaráttunni, hvers
vegna viljum við ekki
láta OECD leggja
mælistiku á þróun-
araðstoð okkar?
Kristinn Hrafnsson,
fréttamaður NFS, bar
upplýsingar íslenskra
stjórnvalda um þróun-
araðstoð saman við tölur OECD og
sagði í frétt sinni á Stöð 2 27. sept-
ember: „Ekkert ríkjanna veitir
innan við 0,20 prósent af lands-
framleiðslu til þróunaraðstoðar –
nema Ísland. Jafnvel Grikkir gefa
meira.“
Þetta segir hins vegar ekki alla
söguna því í þeirri aukningu á
framlögum til þróunarmála sem
utanríkisráðherra stærði sig af á
Allsherjarþinginu, vegur þungt sú
bókhaldslega ákvörðun að flokka
starfsemi svokallaðrar friðargæslu
undir þróunaraðstoð. Hefur ýms-
um þótt skjóta skökku við að
flokka vopnaða starfsemi Íslend-
inga í Afganistan og akstur upp-
hækkaðra jeppa frá Bílabúð Benna
um afgönsk holt og hóla með að-
stoð Íslands við hinn sveltandi
heim.
En batnandi mönnum er best að
lifa og því væri að öllu jöfnu fyllsta
ástæða til að fagna yfirlýsingu Val-
gerðar Sverrisdóttur á Allsherj-
arþinginu um að Íslendingar ætli
að ná 0,7% markinu einhvern tím-
ann eftir 2009. En með fullri virð-
ingu fyrir háttvirtum utanrík-
isráðherra kennir reynslan okkur
að taka ber yfirlýsingum íslenskra
stjórnvalda með fyrirvara þegar
þróunaraðstoð er annars vegar.
Eins og Morgunblaðið benti
réttilega á í þættinum Staksteinum
á síðasta ári samþykkti Alþingi ár-
ið 1971 lög um að þróunaraðstoð
Íslendinga skyldi vera 0,7% af
þjóðarframleiðslu í samræmi við
samþykkt Allsherjarþings Samein-
uðu þjóðanna frá árinu áður. Árið
1985 samþykkti Alþingi áætlun um
að framlög til þróunarmála skyldu
aukin með reglulegu millibili þann-
ig að þau næðu 0,7% þjóðarfram-
leiðslu á 7 árum. Þetta hefði því
átt að nást árið 1992 en núverandi
áætlanir stjórnvalda gera ráð fyrir
að við verðum aðeins hálfdrætt-
ingar árið 2009!
Síðastliðið sumar átti undirrit-
aður ágætt samstarf við tónlist-
armennina Jakob F. Magnússon,
Bubba Morthens og fleiri í fé-
lagsskapnum Átta líf um að lýsa
stuðningi við sjónarmið Live 8 tón-
leikanna m.a. um að stórauka þró-
unaraðstoð: Og þá var spurt: „er
ekki að verða kominn tími til að
efndir fylgi orðum hjá einni rík-
ustu þjóð heims?“
Eftir þrjátíu og fimm ár frá fyr-
irheitum Alþingis, spyrjum við
enn: Valgerður, hefur nánas-
arskapur Íslendinga virkilega níu
líf?
Níu líf nánasarskaparins
Árni Snævarr skrifar um
þróunaraðstoð Íslendigna »Með fullri virðingufyrir háttvirtum ut-
anríkisráðherra kennir
reynslan okkur að taka
ber yfirlýsingum ís-
lenskra stjórnvalda með
fyrirvara þegar þróun-
araðstoð er annars veg-
ar.
Árni Snævarr
Höfundur er fyrrverandi liðsmaður
íslensku friðargæslunnar, starfar nú
hjá Sameinuðu þjóðunum en ritar
greinina í eigin nafni.