Menntamál - 01.12.1964, Blaðsíða 9
MENNTAMÁL
151
að nefndina skipi fulltrúar sem flestra starfsgreina, þ. e.
menn, sem vinna ólík störf, þó stærðfræðilegs eðlis, eða við
stærðfræðikennslu.
Tilraunirnar miðast við nemendur á aldrinum 9 til 18
ára. Nemendafjöldinn skiptir þúsundum og er frá mörgum
sérstaklega völdunr skólum.
Fjöldi bóka hefur þegar verið gefinn út á vegum
nefndarinnar, bæði kennsluleiðbeiningar og kennslubækur.
Kennslubækurnar eru miðaðar við sjálfstætt einstakl-
ingsbundið nám. Hver aðferð er fullkomlega skýrð í bókun-
um, og eiga nemendur þannig að geta farið mishratt yfir
námsefnið, eftir því sem hverjum og einum Iientar.
Aðalstöðvar S.M.S.G. voru áður við Yale háskólann, en
eru nú við Stanford háskólann, Palo Alto, Kaliforníu.
Kostnað af þessum kennslutilraunum bera ýmsir sjóðir,
hið opinbera eða félagasamtök. Unnið er að fjöldamörgum
tilraunum og því ógerlegt að geta þeirra allra hér. Mörg
afbrigði er að finna á hinum mörgu og mismunandi stöð-
um, en þó eru meginatriði víða hin sömu.
Ég mun nú freista þess að lýsa nokkrum nýjungum, sem
víða hafa verið teknar upp.
Talnalínan
í flestum kennslustofum 6, 7 og 8 ára barna er talnalína
hangandi efst á skólatöflunni, oft fest með segulkubbum
efst á töfluna sjálfa, eða þá að hún er fest í ca. 2 cm breiða
korkrænru, sem er meðfram töflunni að ofan. (Þess má geta
hér um leið, að skólatöflurnar eru yfirleitt kræktar á járn-
lista á veggnum, og því er mjög fljótlegt að hækka jrær og
lækka eftir þörfum).
Venjulega hangir uppi talnaröðin frá 0—100, talið frá
vinstri til hægri (jákvæðar tölur).
En þörfin fyrir hinar neikvæðti tölur er oft kölluð