Menntamál - 01.12.1964, Qupperneq 26
168
MENNTAMÁL
Landinu er skipt í umdæmi, sem eru 11, en greinast svo í
76 srnærri deildir, sem hver hefur einn eða fleiri ráðu-
nauta.
Héraðsnefndir sjá um framkvæmd starfsfræðslunnar á
hverjum stað, og er fulltrúi frá skólunum ætíð formaður
nefndanna.
Sérlærðir kennarar annast starfsfræðslu í skólum, og hafa
þeir samstarf við starfsfræðsluráðunauta vinnumiðlunar-
innar. Allir starfsfræðsluráðunautar Finna eru háskóla-
menntaðir með sálarfræði að aðalgrein. Þeir verða auk
þess að sækja Jrriggja rnánaða námsskeið. Námsskeiði þessu
er skipt í þrjú álíka löng tímabil.
Danmörk.
Með yfirstjórn starfsfræðslunnar fer atvinnumálaráðu-
neytið. Sú deild ráðuneytisins, sem sér um vinnumiðlun
(arbejdsanvisning), annast starfsfræðsluna. Samkvæmt lög-
um um starfsfræðslu frá 1961 skal 16 manna starfsfræðslu-
ráð vera ráðuneytinu til aðstoðar við skipulag og fram-
kvæmd starfsfræðslunnar. Ráð ]retta er skipað fulltrúum
frá atvinnu- og fræðslumálaráðuneytinu, vinnuveitendum,
launjregum og samtökum kennara.
Skal ráðið m. a. fjalla um val og menntun starfsfræðslu-
ráðunauta og annars starfsliðs starfsfræðslunnar, um sam-
starf milli stjórnarvalda, stofnana og félaga, sem veita starfs-
fræðslu í einhverri mynd.
Atvinnumálaráðuneytið ræður alla ráðunauta starfs-
fræðslunnar, eltir að skrifstofustjóri vinnumiðlunarskrif-
stofunnar hefur lagt umsóknir fyrir fræðsluyfirvöld Jress
staðar, sem maðurinn á að starfa á, og Jiau gefið honum sín
meðmæli.
Núna eru starfandi 71 ráðunautur við starfsfræðsluna,
Jaar af eru 31 í fullu starfi, en hinir 42 flestir með starfið
að hálfu á móti öðru starfi t. d. kennslu. Menntun þessara
manna er mjög mismunandi. Kennarar eru 43, háskóla-