Menntamál - 01.12.1964, Síða 29
MENNTAMÁL
171
Ég vil hér vitna í kafla í norskri námsskrá, en þar segir:
„Starfsfræðslan beinist einkum að:
1. að hjálpa nemendum, sem eiga við erfiðleika að etja
í skólanáminu og við félagslega aðlögun innan skóla og
ntan.
2. að hjálpa nemendum til þess að meta áhugasvið sitt
og árangur í skólanum í bóklegum og verklegum grein-
um samanborið við aðra.
3. að tengja mat nemandans framtíðaráformum, svo að
athugun sú, er hann gerir sjálfur sé raunhæf.
4. að gefa nemendunum yfirlit yfir námsleiðir og at-
vinnumöguleika þá, sem til staðar eru, og eins þær
kröfur, sem gerðar eru til fólks í hinum ýmsu störfum.
5. að veita nemendum fræðslu um algengustu starfs-
venjur, störf og starfsskilyrði, sem mikilvæga þýðingu
geta haft fyrir unglinga, áður en starfsval fer fram.
6. að hjálpa nemendum til að draga saman þá þekkingu,
sem þeir hafa öðlazt, svo að val þeirra við lok hinnar
almennu skólagöngu byggist á eins traustum grunni
og hægt er.“
Við starfsfræðsluna eru notaðar ýmiss konar kennslubæk-
tir, sem samdar hafa verið fyrir hana, veggspjöld, mynd-
ræmur og kvikmyndir. Þá er útvarp og sjónvarp einnig hag-
nýtt við starfsfræðslu og yfirleitt allar þær leiðir, sem not-
aðar eru við aðra kennslu. Algengt er, að farið sé með nem-
endur á vinnustaði og þeir skoðaðir. Nemendur þurfa að
fá góða tilsögn um vinnustaðinn, áður en farið er þangað,
svo að þeim nýtist vel af því að skoða staðinn. Einnig þurfa
þeir, sem sýna vinnustað, að hafa hugfast, hvað það er
helzt, sem nemendurnir þurfa að fá að vita um starfið og
vinnustaðinn.
Nokkuð liefur það verið reynt á Norðurlöndum að láta
Uemendur (7.—-9. bekkjar) dvelja á vinnustað (erhvervs-
praktik) í eina viku í senn og taka þátt í störfum þar, eftir
því sem unnt er. S. 1. vetur dvöldu milli 8 og 9000 nem-