Menntamál - 01.12.1964, Blaðsíða 18
160
MENNTAMÁL
STEFÁN ÓLAFUR JÓNSSON:
Um starfsfræðslu.
/ haust fól menntamálaráðuneytið
Stejáni Ólaji Jónssyni, kennara i Reykjavik, að skipuleggja og
leiðbeina um starfsfrœðslu í skólum. 1 tilefni af þvi
fóru Menntamál þess á leit við Stefán Ólaf, að hann gerði
hér í ritinu nokkra grein fyrir starfsfrceðslu almennt og viðliorfi
sínu lil þeirra mála hér á landi.
í námsskrá, sem menrita-
málaráðuneytið ga£ út árið
1960, er kveðið svo á, að
starlslræðsla og leiðbein-
ingar um stöðuval skuli
fara fram á námsskeiðum í
samtals- og fyrirlestraformi
í II. bekk unglingastigs, og,
þar sem því verði við kom-
ið, sé slík fræðsla skipulögð
í samvinnu við atvinnurek-
endur, fyrirtæki og félaga-
samtök, sem áhuga hafa á
þessum málum. Bent er og
á það, að eðlilegt sé, að
fræðsla á þessu sviði sé
tengd og — að minnsta kosti að nokkru leyti' — byggð á
þeim kynnum af íslenzkum atvinnuháttum og atvinnulífi,
senr nemendur hal'a öðlazt við nám í landafræði, félags-
fræði og íslandssögu.
Með þessu ákvæði í námsskrá er ákveðið, að starfsfræðsla
Slefán Ólafur Jónsson.