Menntamál - 01.12.1964, Page 25
MENNTAMÁL
107
för arbetsmarknadsstyrelsen och skolstyrelsen ocli överdirek-
tör för överstyrelsen för yrkesutbildning).
I hverju héraði (lan) eru héraðsnefndir, sem ábyrgar eru
fyrir starfsfræðslu, sem tengcl er hinni opinberu vinnumiðl-
un. Við aðalmiðstöð vinnumiðlunarinnar í héraðinu er
deild fyrir starfsfræðslu. Svo geta verið opnar starfsfræðslu-
skrifstofur á ýmsum stöðum í héraðinu eða þá að starfs-
fræðsluráðunautar eru til viðtals ákveðna daga hér og þar
um héraðið. Héraðsskólanefndir eru ábyrgar fyrir starfs-
fræðslu í skólunum.
Engar fastar reglur eru til um það, hvaða menntun sá
þarf að hafa, sem ráðinn er ráðunautur við starfsfræðsluna.
Þeir, sem starfa nú sem ráðunautar, hafa ýmiss konar mennt-
un. Sumir hafa háskólamenntun í ýmsum greinum, aðrir
eru kennarar, félagsráðgjafar, stúdentar eða hafa iðnmennt-
un einhvers konar. Starfsfræðsluráðunautarnir eru laus-
ráðnir í tvö ár, og eru 6 fyrstu mánuðirnir reynslutími.
Að reynslutímanum loknum hefst þriggja mánaða náms-
skeið og svo nokkur styttri námsskeið síðar.
I samfellda 9 ára skólanum (enhedsskolen) sjá kennarar
um starfsfræðsluna. Þeir þurfa fyrst að sækja 6 mánaða
námsskeið, þar sem einkum er lögð stund á sálarfræði,
kynningu atvinnulífs og kennsluaðferðir við starfsfræðslu.
Fræðsluyfirvöld kosta og skipuleggja þessi námsskeið.
Finnland.
Með lögum nr. 43 frá 22. jan. 1960 er ákveðið, að með
yfirstjórn starfsfræðslunnar lari það ráðuneyti, sem fer með
tnál, sem snerta vinnuafl (ministeriet för kommunikations-
vásendet och allmánna arbetena). Til aðstoðar ráðuneyt-
'uu er ákveðið með lögum, að stofnað sé starfsfræðsluráð.
Formaður þess skal vera aðalfræðslumálastjóri landsins. í
raðinu eiga svo sæti fulltrúar fræðslu-, atvinnu- og trygg-
mgamála, og skipa fulltrúar fræðslumála meirihluta.
Starfsfræðslunni er hagað í Finnlandi líkt og í Svíþjóð.