Menntamál - 01.12.1964, Qupperneq 47
MENNTAMÁL
189
Helztu niðurstöður varðandi „Programed Instruction"
gaetu verið eitthvað á þessa leið:
1. Vélheilar og önnur tæknibrögð kenna engum neitt.
Mestu varðar um undirbúning allan og að fjallað sé
af þekkingu um innihald programanna og tækni við
notkun þeirra.
2. Tækni þessi veldur því, að mikill fjöldi nemenda,
dreifður um allar álfur, getur notið góðs af námsefni,
þannig útbúnu af færustu mönnurn i hverri grein.
3. Vankunnátta eða vanhæfni kennara í starfi kemur síð-
ur niður á nemendum.
4. Skekkjur í námsstarfi eru leiðréttar jafnóðum og valda
því ekki varanlegri mistúlkun eða frekari skekkjum í
])ví, sem á eftir fer.
5. Sérhver nemandi vinnur á eigin spýtur og með þeim
hraða, sem honum hentar.
b. Auðveldara er að krefjast þess, að þeir nemendur, sem
þurfa lengri tíma til námsins og hafa e.t.v. síðri náms-
hæfileika, Ijúki eigi að síður tilskilinni yfirlerð náms-
efnis með þeim árangri, sem krafizt er.
7. Hægfara nemendur verða síður miður sín vegna þess,
að þeir séu seinni eða síðri en aðrir; þeirn finnst eins
og um einkakennslu sé að ræða.
8. I>eir nemendur, sem þurfa skemmri tíma, geta bætt við
sig aukaverkefnum og þannig unnið tíma.
9. Þörfin fyrir próf á meðan á náminu stendur virðist
hverfandi lítil.
h). Nemandi, sem í upphafi finnur, að hann veldur verk-
el'ni sínu, sækir á og fyllist keppnisanda og starfsgleði.
*k Eftir að nemandinn hefur lokið einurn áfanga (pro-
grami), er auðvelt að sjá af þeim villum, sem hann kann
að hafa gert, hvar hjálp kennarans er þörf.
12. Hæfir kennarar, sem annars þyrftu að eyða dýrmæt-
um tíma í yfirheyrslur og þululærdóm, fá með tilkomu